Bandaríska bókaverslunarkeðjan Barnes & Noble hagnaðist um 9,99 milljón Bandaríkjadali, eða 14 sent á hlut, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Ein af helstu ástæðum hagnaðarins var metsala á bókum eftir hryllingshöfundinn Stephen King og Jim Cramer, fréttaþul sjónvarpsstöðvarinnar CNBC.
Hagnaðurinn nú er 8 milljónum dollara meira en á sama tíma í fyrra en þá nam hann 9,91 milljónum dala. Þá er afkoman umfram spár sérfræðinga sem bjuggust við 13 senta hagnaði á hlut.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að afkoma fyrirtækisins á yfirstandandi ársfjórðungi verði í takt við væntingar fjármálasérfræðinga á mörkuðum á Wall Street í Bandaríkjunum.
Heildarvelta keðjunnar nan 1,11 milljarði Bandaríkjadala á tímabilinu og er það aukning um 2 prósent á milli ára. Velta á vefverslun keðjunnar nam 91,1 milljón dala og stendur hún í stað á milli ára.