Hlutabréf lækkuðu í Evrópu 10. mars 2006 15:28
Hlutabréf lækkuðu nokkuð á helstu mörkuðum í Evrópu í dag og hefur gengi bréfa á helstu mörkuðum álfunnar ekki verið lægra í þrjár vikur. Ástæðan er lækkuninni er sú að búist er við minni vexti fyrirtækja en væntingar spáðu fyrir um auk þess sem evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti í annað sinn á þremur mánuðunum í byrjun þessa mánaðar. Vísitölur 16 af 18 mörkuðum í Evrópu lækkuðu um 1 prósent um hádegisbil í dag og segja fjármálasérfræðingar að æ erfiðara verði fyrir fyrirtæki að komast til móts við væntingar um vöxt þeirra í bráð m.a. vegna hækkunar stýrivaxta. Helstu vísitölur landa í Evrópu hafa lækkað um allt að 1,9 prósent frá því í febrúarlok. Auk þessa segjast fjármálasérfræðingar búast við að seðlabanki Evrópu muni hækka stýrivextir enn frekar á næstunni þegar verðbólguspá Evrópusambandsins verður birt. Á meðal þeirra fyrirtækja sem lækkuðu á mörkuðum í dag var BHP, eitt stærsta námufyrirtæki í heimi, en gengi bréfa í fyrirtækinu lækkaði um 3,2 prósent. OMV, stærsta olíufyrirtæki álfunnar, lækkaði hins vegar um 4 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Ellefu fyrirtæki til skoðunar vegna bílastæðagjalda Neytendur Fyrsta flýtiverkið boðið út og skal lokið á fimm mánuðum Viðskipti innlent Fleiri bílastæðafyrirtæki til skoðunar hjá Neytendastofu Neytendur Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira