Háttsettir írakskir lögreglumenn grunaðir um aðild að hryðjuverkum 24. janúar 2006 20:51 Mynd/AP
Breskir og írakskir hermenn handtóku í dag fjórtán háttsetta lögreglumenn í borginni Basra. Þeir eru taldir eiga þátt í mikilli fjölgun hryðjuverka í borginni undanfarnar vikur. Bretar hafa sínar eigin aðferðir þegar þeir telja sig þurfa að taka menn úr umferð. Í stað þess að senda skriðdreka og fjölmennar hersveitir, senda þeir litla hópa þrautþjálfaðra hermanna, sem eru búnir að drepa eða handjárna andstæðingana áður en þeir vita hvaðan á þá stendur veðrið. Þannig gekk það til eldsnemma í morgun. Þeir voru búnir að ryðjast inn í hús hinna grunuðu og farnir á brott með þá, áður en nágrannarnir áttuðu sig á því hvað gerst hafði. Enginn maður féll og enginn særðist. Undanfarnar vikur hefur hryðjuverkaárásum í Basra, og í nágrenni borgarinnar, fjölgað mikið. Bæði vegasprengjum, skotárásum og mannránum. Þessum árásum hefur verið beint gegn íröksku lögreglunni en þó einkum óbreyttum borgurum. Yfirmaður bresku sveitanna í Basra segir að hinir handteknu séu ótíndir hryðjuverkamenn. Hershöfðinginn sagði að í einu húsinu hefðu þeir fundið mikið vopnabúr, sem eigandinn hefði ekki getað gefið neina skýringu á. Meðal annars sýndist þeim að þar hafi verið efni til sprengjugerðar, en það sé enn í rannsókn.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira