Skráning Exista einn af hápunktum ársins 28. desember 2006 07:00 Lýður Guðmundsson færði sig um set á árinu og leiðir nú öflugt fjárfestingarfélag sem skráð var á markað eftir að hafa verið í eldlínu uppbyggingar Bakkavarar í tvo áratugi.
Árið 2006 var mikið afmælisár en við bræður héldum upp á það að 20 ár eru liðin frá stofnun Bakkavarar. Lýsing varð einnig 20 ára og Síminn fagnaði 100 ára farsælli sögu. Á sama tíma má segja að Exista sé að hefja sína sögu á mjög sterkum grunni og skráning félagsins á hlutabréfamarkað í september er án efa einn af hápunktum ársins í mínum huga. Við kaupin á VÍS eignarhaldsfélagi síðstliðið vor tók Exista umtalsverðum breytingum. Félagið er nú fjármálaþjónustufyrirtæki á sviði trygginga og eignaleigu sem auk þess er kjölfestueigandi í nokkrum af öflugustu fyrirtækjum landsins, svo sem Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Símanum. Með samþættingu fjárfestingastarfsemi og öflugra rekstrarfélaga eins og VÍS og Lýsingar skapast ný tækifæri. Skráningu Exista á hlutabréfamarkað í september var afar vel tekið og gengu á áttunda þúsund nýir hluthafar til liðs við félagið, m.a. margir af öflugustu fagfjárfestum landsins. Eigendahópurinn stækkaði svo enn frekar þegar Kaupþing banki greiddi hluthöfum sínum hluti í Exista í arð í lok október. Þar með var leyst úr krosseign milli Kaupþings og Exista, sem var á meðal atriða sem greiningaraðilar hjá nokkrum erlendum fjármálafyrirtækum tóku upp í gagnrýni sinni á íslenska banka í upphafi ársins. Gagnrýnin skapaði óróa hjá erlendum fjárfestum skuldabréfa bankanna og í kjölfarið einnig á innlendum fjármálamarkaði. Íslensku bankarnir sýndu hins vegar mikinn styrk í því mótlæti sem þetta olli og brugðust við með ábyrgum hætti. Þá var eftirminnileg 100 ára afmælishátíð Símans, en þar flutti Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri í New York, ávarp sem seint líður úr minni þeirra sem á hlýddu. Rekstur Símans hefur gengið vel á þessu ári og er óhætt að segja að framtíð fyrirtækisins sé björt á aldarafmælinu. Reyndar tel ég Símann vera á meðal áhugaverðustu félaga á sínu sviði í Evrópu í ljósi víðtækrar þjónustu og þekkingar innan fyrirtækisins. Sem fyrr var rekstur Bakkavarar Group afar traustur. Samþætting í kjölfar yfirtökunnar á Geest hefur tekist sérlega vel og sóknarfæri félagsins eru mikil. Eftir 20 ár í starfi forstjóra hjá Bakkavör skipti ég um hlutverk við Ágúst bróður minn snemma í vor, þannig að þátttaka mín í daglegum rekstri fyrirtækisins er minni en áður. Þetta voru vissulega mikil tímamót fyrir mig en ég tek þó enn fullan þátt í uppbyggingu fyrirtækisins sem stjórnarformaður. Almennt finnst mér árið 2006 hafa verið hagstætt fyrir íslenskt atvinnulíf. Rekstur fyrirtækja hefur að jafnaði gengið vel og um leið hefur átt sér stað ákveðin endurskoðun sem að mínu mati mun gera íslenskt atvinnulíf sterkara til lengri tíma litið.
Birtist í Fréttablaðinu Héðan og þaðan Mest lesið Loka Brút og Kaffi Ó-le Viðskipti innlent Standist ekki söguskoðun að tengja uppsagnirnar við veiðigjöldin Viðskipti innlent Sushi Corner lokar Viðskipti innlent Krafa um íslensku leiði til minni samkeppni og hærra verðs Viðskipti innlent Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Samstarf „Mér fannst þetta bara gott hjá Ingu“ Viðskipti innlent Nýir mannauðsstjórar hjá Eimskip Viðskipti innlent BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Samstarf Tekur við sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa Viðskipti innlent „Hann er svolítið eins og Ragnar Reykás“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Krafa um íslensku leiði til minni samkeppni og hærra verðs Loka Brút og Kaffi Ó-le Sushi Corner lokar Standist ekki söguskoðun að tengja uppsagnirnar við veiðigjöldin Tekur við sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa Nýir mannauðsstjórar hjá Eimskip „Mér fannst þetta bara gott hjá Ingu“ Telur að fleiri fyrirtæki muni ráðast í uppsagnir Tuttugu manns sagt upp hjá Play Þorbirna og Ævar til Pálsson Töpuðu milljarði og bauna á stjórnvöld „Þetta endar náttúrulega á saklausu fólki“ Hafna alfarið ummælum um íslensk gagnaver og peningaþvætti Tólf sagt upp á Siglufirði Loka vinnslu og segja upp fimmtíu vegna veiðigjaldahækkunar Eignast meirihluta í Streifeneder Framkvæmdastjórinn hættir og níu sagt upp Rekstur Árborgar jákvæður og bæjarstjóri fagnar Reiknuðu með halla en enduðu í hundruð milljóna króna plús Óvænt en breytir þó ekki spám Verðbólgan hjaðnar þvert á spár Segir stefna í að Vélfag verði lagt niður vegna þvingananna Fjórir ráðnir nýir fagstjórar hjá Kvikmyndaskólanum Fiskar komnir í fyrstu 25 metra eldistankana Ráðin markaðsstjóri Prís Helga nýr fjármálastjóri Ísorku Stefna á gervigreindarver við Húsavík Arnar og Eiríkur til Fossa „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Hermann tekur við söluarmi Samherja Sjá meira