Hundruð mótmæltu lögregluofbeldi 28. nóvember 2006 04:00
Lögregla í New York borg í Bandaríkjunum varð manni að bana og særði tvo í skothríð á laugardag. Hundruð manna komu saman á sunnudaginn til þess að mótmæla þessum verknaði lögreglunnar og kröfðust sumir þess að lögreglustjóri borgarinnar segði af sér. Maðurinn sem lést átti að gifta sig nokkrum tímum síðar. Atvikið átti sér stað fyrir utan nektardansstað þar sem mennirnir höfðu verið að skemmta sér. Þeir voru óvopnaðir, en allir þeldökkir. „Við getum ekki leyft að þetta haldi áfram," sagði Al Sharpton, prestur og mannréttindafrömuður, sem tók sér stöðu með mótmælendum fyrir utan sjúkrahús í borginni þar sem annar hinna særðu lá. „Við verðum að átta okkur á því að við vorum öll í þessum bíl," bætti hann við. Borgarstjóri New York borgar, Michael Bloomberg, sagði lögreglumennina hafa haft ástæðu til að halda að mennirnir væru vopnaðir. Fimm lögreglumenn, sem áttu þarna hlut að máli, hafa verið sviptir skotvopnum sínum og sendir í leyfi. Lögregla skaut fimmtíu sinnum á bíl þeirra og hæfði 21 sinni. Annar eftirlifandi mannanna er þungt haldinn á sjúkrahúsi með ellefu skotsár. Engin vopn fundust í bílnum eða á mönnunum.
Erlent Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira