Lögreglan rannsakar nú ör sem virðist hafa verið skotið úr lásboga á knattspyrnuleik í Stockport.
Um utandeildarleik var að ræða en eftir að dómarinn fann 60 cm lásbogaörina á kafi í vellinum flautaði hann leikinn af.
„Við héldum að þetta væri flugeldur eða eitthvað slíkt sem enginn hefði séð,“ sagði formaður annars liðsins en hann sat í stúkunni og horfði á er leikmenn gengu af velli.
Ekki er vitað hver skaut örinni eða hvað bogamanninum gekk til.