Norska ál- og orkufyrirtækið Norsk Hydro hyggst opna Norður-Atlantshafsskrifstofu í Reykjavík á næstunni. Fyrirtækið hefur áform um frekari starfsemi hér á landi í tengslum við opnun skrifstofunnar. Torstein Dale Sjøtveit, varaforstjóri Hydro og forstjóri Hydro Aluminium Metal, og nokkrir af æðstu yfirmönnum álbræðslu- og súrálsmála fyrirtækisins funda með Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra í dag.
Iðnaðarráðherra þekkir ekki til framtíðaráforma Norsk Hydro á Íslandi umfram opnun skrifstofunnar. Thomas Knutzen upplýsingafulltrúi vildi ekki upplýsa um framtíðarsýn fyrirtækisins hér á landi fyrr en síðar í dag.