Öngvir rasistar! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 14. nóvember 2006 05:00 Það sem eftir stendur í atburðum síðustu daga þ.e. innflytjendamálin/frjálst flæði vinnuafls frá Evrópu " og það situr í mér " er að aðrir flokkar, stjórnmálaspékúlantar og einhverjir fleiri séu að kallastefnu Frjálslynda flokksins rasisma. Það er alls ekki rétt og er bara útúrsnúningur og verið að reyna að veiða fólk í skoðanavillu á stjórnmálaflokki. Væri Frjálslyndi flokkurinn hinsvegar hreinræktaður rasistaflokkur í ætt við hægri öfgasinnaðan þjóðernisflokk af verstu sort þá væri ég ekki þar og hefði aldrei fengið að stíga fæti inn þar með baráttumál mín og minnihlutahóps míns, heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þá hefði flokkurinn aldrei staðið fyrir því að berjast fyrir því að viðurkenna íslenska táknmálið eða þá að vilja texta innlent sjónvarspefni fyrir heyrnarlausa/heyrnarskerta og ÚTLENDINGA svo þeir geti lært íslenskuna af textanum (að heyra hvernig orðin eru borin fram og skrifuð samtímis) og lærðu þar með líka um íslenska menningu og myndu því aðlagast lífinu hérna á þessari sérstöku eyju í Norður-Atlantshafi. Og svo ekki sé minnst á öryrkja og lífeyrismálin sem flokkurinn hefur staðið fyrir á þingi. Í venjulegum rasistaflokkum eru fatlaðir nefnilega útskúfaðir og baráttumál þeirra ná ekki upp á pallborðið hjá rasistum. Því er hér með alfarið vísað til föðurhúsanna að Frjálslyndi flokkurinn sé litaður rasisma og í honum her rasista. Svo ekki sé nú meira sagt um þetta mál. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir er varaþingmaður Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Það sem eftir stendur í atburðum síðustu daga þ.e. innflytjendamálin/frjálst flæði vinnuafls frá Evrópu " og það situr í mér " er að aðrir flokkar, stjórnmálaspékúlantar og einhverjir fleiri séu að kallastefnu Frjálslynda flokksins rasisma. Það er alls ekki rétt og er bara útúrsnúningur og verið að reyna að veiða fólk í skoðanavillu á stjórnmálaflokki. Væri Frjálslyndi flokkurinn hinsvegar hreinræktaður rasistaflokkur í ætt við hægri öfgasinnaðan þjóðernisflokk af verstu sort þá væri ég ekki þar og hefði aldrei fengið að stíga fæti inn þar með baráttumál mín og minnihlutahóps míns, heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þá hefði flokkurinn aldrei staðið fyrir því að berjast fyrir því að viðurkenna íslenska táknmálið eða þá að vilja texta innlent sjónvarspefni fyrir heyrnarlausa/heyrnarskerta og ÚTLENDINGA svo þeir geti lært íslenskuna af textanum (að heyra hvernig orðin eru borin fram og skrifuð samtímis) og lærðu þar með líka um íslenska menningu og myndu því aðlagast lífinu hérna á þessari sérstöku eyju í Norður-Atlantshafi. Og svo ekki sé minnst á öryrkja og lífeyrismálin sem flokkurinn hefur staðið fyrir á þingi. Í venjulegum rasistaflokkum eru fatlaðir nefnilega útskúfaðir og baráttumál þeirra ná ekki upp á pallborðið hjá rasistum. Því er hér með alfarið vísað til föðurhúsanna að Frjálslyndi flokkurinn sé litaður rasisma og í honum her rasista. Svo ekki sé nú meira sagt um þetta mál. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir er varaþingmaður Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi.
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar