Hvassviðri og hríð röskuðu umferð 14. nóvember 2006 03:45 Akureyri Það snjóaði hressilega á Akureyri í gær. MYND/Örlygur „
Það er búið að vera stormur og krapahríð í allan dag," sagði Jón Ingólfsson, bóndi og veðurathugunarmaður á Skjaldþingsstöðum, í gærkvöld. Þar mældist langmest úrkoma í gær á landinu, 51 millimetri. Vonskuveður var víða um land í gær. Lögreglan á Húsavík sagði að þar hefði snjóað allan daginn og gengið á með hvassviðri. Í gærkvöld var orðið þungfært innanbæjar og ekkert ferðaveður um héraðið og austur í land. Milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur var sömuleiðis hríðarveður og þungfært. Á Akureyri var kominn talsverður snjór en lögreglan sagði engin stórtíðindi vegna veðurs þar. Illviðri var milli Hofsóss og Siglufjarðar og stórhríð á Þverárfjalli. Hjá lögreglunni á Blönduósi fengust þær upplýsingar að fólk hefði lítið treyst sér til að aka Langadal vegna gríðarlegs hvassviðris. Vindhviður þar hafi farið um og yfir 40 metra á sekúndu í „baneitruðum" strengjum. Á Blönduósi var nokkuð um að hlutir fykju til, meðal annars bárujárn. Á Skagaströnd skemmdist bátur í höfninni þegar hann rakst utan í annan. Á Vesturlandi var sömuleiðis mikið hvassviðri. Veðurstofan sagði að smám saman drægi úr vindi þegar liði á daginn í dag.
Innlent Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira