Markmið Evrópumanna er að skáka MIT 20. október 2006 06:30 Áformin kynnt Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB (í miðju) og mennta- og rannsóknastjórarnir Jan Fígel (t.v.) og Janez Potocnik kynna áformin á blaðamannafundi. MYND/AP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti á miðvikudag áform um stofnun evrópsks rannsóknaháskóla sem standa ætti bandaríska skólanum Massachusetts Institute of Technology (MIT) á sporði. Samkvæmt áætlun framkvæmdastjórnarinnar er gert ráð fyrir að 2,4 milljörðum evra, andvirði um 210 milljarða króna, verði á tímabilinu 2008-2013 varið til rannsóknamiðstöðvar sem kölluð yrði Tæknistofnun Evrópu (á ensku European Institute of Technology). Mótun rannsóknastefnu og fjármálastjórn yrði á hendi umfangslítillar stjórnsýslueiningar, en rannsóknirnar yrðu stundaðar í svokölluðum þekkingarmiðstöðvum, sem yrðu dreifðar um aðildarríki sambandsins. Framkvæmdastjórnin segist þegar hafa tryggt 300 milljónir evra, rúmlega 2,6 milljarða króna, til að koma stofnuninni á laggirnar, en henni er ekki síst ætlað að skapa betri forsendur í Evrópu fyrir því að vinna upp samkeppnisforskot Bandaríkjanna á sviði rannsókna og þróunar. Ráðherraráð og þing ESB þurfa að samþykkja áformin ef þau eiga að verða að veruleika.
Erlent Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira