Þýski þróunarsjóðurinn KfW, sem hér á landi er einna þekktastur fyrir útgáfu á svokölluðum Jöklabréfum sem hefur áhrif á gengi krónunnar, er sagður hafa hug á að kaupa rúman 7,5 prósenta hlut í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus. Seljandi bréfanna er þýski bifreiðaframleiðandinn DaimlerChrysler sem á 22,5 prósent bréfa í EADS. Kaupverð nemur um 130 milljörðum íslenskra króna.
Viðskipti með bréf í EADS eru næstum fullfrágengin en þróunarsjóðurinn mun aðeins halda í bréfin þar til annar þýskur fjárfestir lýsir yfir áhuga á því að kaupa þau.
Talsverður áhugi er á bréfum í EADS í Þýskalandi. Þýska vikuritið Der Spiegel segir 16 ríki þar í landi vilja sneið af kökunni og hefur eftir borgarstjóra Hamborgar í Þýskalandi um síðustu helgi að borgaryfirvöld hefðu sömuleiðis áhuga á að kaupa hlut í EADS.
Þá segir blaðið að tilgangurinn með því að halda bréfunum í þýskum höndum sé sá að mögulega verði hægt að koma í veg fyrir að Airbus segi upp starfsfólki sínu í Þýskalandi.
Gengi bréfa í EADS hafa fallið um þriðjung á árinu í kjölfar þess að tilkynnt var um tafir á afhendingu A380 risaþotna frá flugvélaframleiðandanum Airbus, nú síðast undir lok september.