Hefur greitt 42 milljónir króna 6. október 2006 05:15 SInfóníuhljómsveit Íslands Seltjarnarnesbær þarf ekki lengur að greiða með sveitinni.
Seltjarnarnesbær hefur á síðustu tíu árum greitt samtals 42 milljónir króna til Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Bærinn hefur greitt til sveitarinnar frá 1982 en tölur um upphæðir ná aftur til 1996. Seltjarnarnes hefur eitt sveitarfélaga, utan Reykjavíkurborgar, greitt til Sinfóníuhljómsveitarinnar. Þeim kvöðum verður aflétt af bænum gangi frumvarp menntamálaráðherra um Sinfóníuhljómsveitina eftir. Í frumvarpinu eru skyldur Ríkisútvarpsins og Seltjarnarness um þátttöku í rekstri hljómsveitarinnar afnumdar. Síðan 1982 hefur ríkissjóður greitt 56 prósent af rekstrarkostnaði sveitarinnar, Ríkisútvarpið 25 prósent, Reykjavíkurborg átján og Seltjarnarnes eitt prósent. Eftirleiðis verður hlutfall ríkisins 82 prósent en Reykjavíkur áfram átján prósent. Þegar þátttaka Seltjarnarness var ákveðin stóð til að fleiri sveitarfélög kæmu að rekstrinum. Af því varð ekki og hefur bæjarstjórn lengi mótmælt fyrirkomulaginu. Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri fagnar því að bærinn losni undan skyldugreiðslum. Hann kveðst hins vegar stoltur af framlögunum og hljómsveitinni og útilokar ekki þátttöku í rekstri hennar með frjálsum framlögum.
Innlent Mest lesið Segir að honum hafi gengið illa að sofna í gærkvöldi af hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Innlent Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Innlent „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Innlent Íranar gera árásir á Kúvæt og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Erlent Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Innlent Fleiri fréttir Segir að honum hafi gengið illa að sofna í gærkvöldi af hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Sjá meira