Nyhedsavisen kom út í fyrsta sinn í morgun. Blaðinu var dreift inn á hátt í hálfa milljón heimila í Kaupmannahöfn, Árósum og Óðinsvéum að íslenskri fyrirmynd. Á öðrum stöðum verður hægt að nálgast blaðið í verslunum og á bensínstöðvum svipað og hér á landi.
Við munum bæta við tíu til fimmtán þúsund heimilum á viku og stefnum að því að dreifa á 550 þúsund heimili fyrir jól, segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar Media.