Ekki rætt í utanríkismálanefnd 24. september 2006 06:15 Steingrímur J. Sigfússon. Segir mistök að ræða málið ekki í utanríkismálanefnd.
Utanríkismálanefnd Alþingis fjallaði ekki um samkomulag um skiptingu landgrunns í Síldarsmugunni milli Íslands, Danmerkur, Færeyja og Noregs, sem undirritað var á miðvikudag, að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fulltrúa Vinstri grænna í nefndinni. „Það stendur í lögum að það eigi að hafa samráð við utanríkismálanefnd um öll meiriháttar utanríkismál. Og það eru fá mál stærri en það að ganga frá meiriháttar samningi sem útkljáir réttindamál og tengist lögsögu landsins um aldur og ævi.“ Steingrímur segist ekki geta útilokað að einhvern tímann hafi verið farið yfir samningsmarkmiðin í nefndinni. „En það á bara ekki að skrifa undir stóra réttindasamninga af þessu tagi áður en farið er yfir málið í utanríkismálanefnd.“ Steingrímur vísar í að það hafi verið venja hingað til eins og þegar gengið var frá miðlínunni milli Íslands og Grænlands annars vegar og Færeyja hins vegar. Því hafi verið um mistök að ræða í þessu tilviki. Steingrímur hyggst spyrjast fyrir um málið á fundi nefndarinnar í næstu viku. Ekki náðist í Halldór Blöndal, formann utanríkismálanefndar.
Innlent Mest lesið „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Innlent „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Innlent Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Innlent Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Erlent Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk matvælaráðherra voru fjarverandi Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Fjölskylda komst lífs af eftir ótrúlega tilviljun Innlent „Áfellisdómur yfir vinnubrögðum Alþingis“ Innlent Fleiri fréttir Bjarni sér ekki eftir að hafa endurnýjað stjórnarsamstarfið Markmið og tilgangur laganna hafi aldrei breyst Fjölskylda komst lífs af eftir ótrúlega tilviljun Ævarandi skömm og tilviljun sem bjargaði fjölskyldu Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk matvælaráðherra voru fjarverandi Þörf á efnisreglum eftir fordæmalausan dóm Ekkert verður af verkfalli í Hafnarfirði „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Bein útsending: Samfélag á krossgötum „Áfellisdómur yfir vinnubrögðum Alþingis“ Lofsamlegar umsagnir um Svanhildi: „Leiðtogi, liðsmaður og drífandi dugnaðarforkur” Deila um Stálskipaauðinn fyrir Hæstarétt Braut bílrúðu með hnefanum og réðst á ökumanninn Fyrsta skóflustunga að Ölfusárbrú á miðvikudag Á sjöunda þúsund hafa kosið utankjörfundar Fuglaflensa greindist í mávi við Reykjavíkurtjörn Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Kvikmyndagerðarfólk bænheyrt og sjóðnum komið til bjargar Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Fjárlög samþykkt en VG sat hjá Sækir um leyfi til hrefnuveiða vegna ofgnóttar fyrir vestan Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Tóku skref í rétta átt um helgina Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Sjá meira