Lyftari ók á starfsmann steypuskála Norðuráls við Grundartanga seint á mánudagskvöld. Maðurinn meiddist lítillega og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur til aðhlynningar.
Að sögn Ragnars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnunarsviðs Norðuráls, fór betur en á horfðist. Maðurinn hlaut engin beinbrot en það brotnaði úr tveimur tönnum auk þess sem hann skarst lítillega.
Maðurinn hefur verið útskrifaður af spítala og mun hann vera á batavegi.