Litlu munaði á efstu mönnum 13. nóvember 2005 12:30 Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi hafði ástæðu til að fagna. Hann skipaði þriðja sæti listans síðast en leiðir hann nú. MYND/E.Ól.
Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi hrósaði sigri í prófkjöri Framsóknarmanna í Kópavogi sem fram fór í gær. Sigur hans var þó naumur því aðeins munaði sjötíu atkvæðum á honum og Samúel Erni Erlingssyni sem lenti í öðru sæti. Atkvæði dreifðust mjög á frambjóðendur eins og sést best á því að Ómar Stefánsson sem hlaut fyrsta sætið fékk aðeins rétt rúmlega fjórðung atkvæða í fyrsta sætið eða 666 atkvæði af þeim 2.556 atkvæðum sem voru greidd í prófkjörinu. Samúel Örn Erlingsson, sem endaði í öðru sæti fékk rúmlega þriðjung atkvæða í fyrsta og annað sætið. Litlu munaði á honum og Unu Maríu Óskarsdóttur varabæjarfulltrúa sem lenti í þriðja sæti. Hefðu fimm stuðningsmenn Samúels Arnar sett Unu Maríu í annað sætið í stað hans hefði hún fengið annað sætið en Samúel Örn orðið að láta sér annað sætið lynda. Samúel Örn var hins vegar aðeins sjötíu atkvæðum á eftir Ómari Stefánssyni sem var kosinn í fyrsta sætið. Það munaði því aðeins um þremur prósentum heildaratkvæðafjölda á þeim tveimur. Niðurstöður prófkjörsins eru ekki bindandi fyrir uppstillingu á lista Framsóknar fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Þær uppfylla hins vegar skilyrði um jafna kynjaskiptingu í sex efstu sætin. Ekki náðist í Ómar Stefánsson fyrir fréttir.
Framsóknarflokkurinn Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira