Að minnsta kosti tuttugu látnir 24. október 2005 19:20
Að minnsta kosti tuttugu manns létu lífið og fjölmargir særðust í Bagdad í dag þegar þrjár bílsprengjur voru sprengdar við hótel sem erlendir fréttamenn dveljast einkum á. Bílsprengjurnar voru gríðarlega öflugar og sagði fréttamaður Sky fréttastofunnar að ein þeirra, sérstaklega, hafi verið sú öflugasta sem hann hefur orðið að vitni að, í Írak. Það mun hafa verið steyputrukkur, fullur af sprengiefni sem þá sprakk. Bílsprengjurnar sprungu við Sheraton Hótelið og Palestinska hótelið, sem standa hlið við hlið í miðri Bagdad. Bandarískir hermenn standa að jafnaði vörð við þessi hótel. Talið er nokkuð víst að þrjár bílsprengjur hafi verið notaðar við þessi tilræði. Fyrst komu tveir bílar á mikilli ferð og keyrðu á varnargirðingu sem er umhverfis hótelin. Þar sprungu þeir í loft upp og ruddu leiðina fyrir sementstrukkinn, sem ók í gegnum gatið sem myndaðist í girðingunni. Hann reyndi að komast á milli hótelanna en á þessum myndum má sjá að fyrri sprengingarnar tvær dugðu ekki til þess að ryðja honum braut alla leiðina. Hér er hann að hjakka á vegatálma, en springur skyndilega í loft upp. Telja má víst að ef hann hefði komist nær hótelunum hefði manntjónið orðið mun meira. Hótelin standa við Firdus torgið, þar sem risastórri styttu af Saddam Hussein var steypt af stalli þegar innrásarherirnir náðu Bagdad á sitt vald árið tvöþúsund og þrjú. Ekki er á þessari stundu vitað hverjir það voru sem létu lífið, en vitað er að að margir erlendir fréttamenn voru meðal þeirra sem særðust.
Erlent Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira