Ákært fyrir framleiðslu amfetamíns 2. september 2005 00:01
Sameinuð voru mál á hendur 34 ára gömlum manni sem setið hefur í gæsluvarðahaldi í rúma fjóra mánuði í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn var ákærður fyrir að hóta og svo ráðast á prófessor í réttarlæknisfræði þannig að sá hlaut af nokkur meiðsli í mars á þessu ári. Í gær var sameinað því máli önnur ákæra á hendur manninum og öðrum 43 ára gömlum fyrir að hafa um nokkurt skeið fram til nóvemberloka árið 2003 staðið að framleiðslu amfetamíns í söluskyni. Á heimili eldri mannsins voru gerð upptæk efni og áhöld sem talin voru ætluð til framleiðslunnar, en við fyrirtöku málsins varð nokkur rekistefna um hvað ætla mætti að hægt hefði verið að framleiða mikið. Yngri maðurinn, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi, sagði að um 300 millilítrar af hlaupkenndu efni hafi í raun verið amfetamín á lokastigi vinnslu, en úr því mætti áætla að yrðu 40 til 60 grömm af hreinu amfetamíndufti. Hann vísaði því hins vegar alfarið á bug að tæpir níu lítrar af öðrum vökva hafi verið til framleiðslunnar. Þá vildi hann meina að um tilraunastarfsemi hafi verið að ræða, fremur en stórfellda framleiðslu til sölu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Fleiri fréttir Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Sjá meira