Neitar að hafa vitað af sýrunni 30. ágúst 2005 00:01
Litháinn sem tekinn var með brennisteinssýru í Leifsstöð neitar að hafa vitað af sýrunni í áfengisflöskum sem hann var með. Aðalmeðferð í máli hans fer nú fram í Héraðsdómi Reykjaness. Litháinn neitar alfarið og segist ekki hafa vitað að brennisteinssýra hafi verið í flöskunum. Hann segist starfa sem bílasali og flytji inn bíla til Litháens frá Þýskalandi. Þá segist hann hafa verið í rútuferð frá Litháen í gegnum Pólland þar sem hann hafi stoppað á götumarkaði og keypt flöskurnar og sett þær í bakpokann en alls ekki vitað af sýrunni. Litháinn gefur þær skýringar á ferðum sínum hingað til lands að hann hafi ætlað að hitta ástkonu sína, litháíska konu sem sé gift og búi í Bretlandi, en hann sé einnig giftur og eigi barn í Litháen. Hann segist hafa komið þrisvar sinnum áður til Íslands og í öll skiptin í frí. Aðalmeðferð í málinu stóð fram undir hádegi en dæmt verður í því á morgun. Verjandi Litháans gangrýndi það harkalega að vökvinn í áfengisflöskunum hefði ekki verið rannsakaður nægilega og taldi að það lægju ekki fyrir sannanir í málinu til þess að dæma manninn.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Glæný könnun og þungavigtarfólk í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira