Mannránið hefndaraðgerð? 3. júlí 2005 00:01
Talið er að ránið á sendiherra Egyptalands í Írak í gærkvöldi hafi verið hefndaraðgerð. Hann hafði aðeins verið nokkrar vikur í starfi. Atburðarás gærdagsins er enn ekki alveg komin á hreint. Haft er eftir egypskum sendiráðsstarfsmanni að sendiherrann, Ihab el-Sharif, hafi verið að kaupa dagblað úti á götu í gærkvöldi þegar tvær BMW-bifreiðar, fullar af vopnuðum mönnum, hafi rennt upp að honum og numið hann á brott. Franska fréttastofan AFP segir hins vegar að honum hafi verið rænt af heimili sínu. Egypska utanríkisráðuneytið hefur ekki staðfest fregnina enn. El-Sharif varð fyrir nokkrum vikum fyrsti fullgildi sendiherra arabaríkis í Írak eftir að Saddam Hussein var komið frá völdum. Raunar höfðu mörg arabalönd kallað sendiherra sína heim eftir að Írakar réðust inn í Kúveit árið 1990. Nú eru fjölmörg arabaríki með sendifulltrúa í landinu en ekkert nema Egyptaland var með fullgildan sendiherra með tilheyrandi réttindum og skyldum. Egyptar buðust til þess í fyrra að aðstoða við þjálfun írakskra öryggissveita og jafnvel er talið að mannránið sé hefnd uppreisnarmanna fyrir það tilboð, þótt það hafi þegar verið dregið til baka. Ekkert hefur heyrst frá mannræningjunum enn.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sjá meira