Máluðu Vík rauða 29. maí 2005 00:01
Lögreglan á Vík í Mýrdal þurfti að hafa talsverð afskipti af gestum á mótorkrossmóti sem þar fór fram. Þrjú fíkniefnamál hafa komið upp í kringum mótið. Á laugardeginum var lagt hald á töluvert magn af fíkniefnum, þrjú grömm af amfetamíni, ellefu grömm af kókaíni, fjögur og hálft gramm af marijúana og ellefu e-töflur. Sjö einstaklingar voru handteknir en þeim sleppt að loknum yfirheyrslum. Eitthvað var um pústra á laugardagskvöld þegar mótinu var slitið en enginn kærður fyrir líkamsárás. Í gærmorgun var svo tilkynnt um innbrot, lögreglan stóð þjófana að verki og handtók fjóra. Að sögn Björns Hjörleifssonar, varðstjóra lögreglunnar í Vík, hafði lögreglan yfirdrifið nóg að gera. Bæjarbúar eyddu sunnudeginum í að þrífa en Björn sagði umgengnina ekki vera mótorkrossmönnum til mikils sóma. Heimferð þeirra gekk að mestu vel en þó sagði Björn að lögregla hefði stöðvað ökumann á 166 kílómetra hraða. Sá hefði ekki verið fyrr kominn með sektina í veskið en hann var stöðvaður aftur, þá á 122 km hraða. Má hann búast við þriggja mánaða ökusviptingu og hárri fjársekt.
Innlent Lög og regla Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Hellisheiði er lokuð Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Innlent Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Innlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent „Við erum ekki hrædd“ Innlent Fleiri fréttir Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Galdrakarlinn í AUS Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Hellisheiði er lokuð „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ „Við erum ekki hrædd“ Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Uppnám á flugvellinum og fyrsti kvenkyns keppandinn Handtekinn á sjöunda tímanum í gær grunaður um ölvunarakstur Stríð, þjóðaratkvæðagreiðsla og stafræn heilbrigðisþjónusta „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Sjá meira