CM5 kemur á leikjatölvur 27. apríl 2005 00:01
Eidos hefur tilkynnt að Championship Manager 5 muni verða gefinn út á Xbox og PlayStation 2 13.maí 2005. Championship Manager 5 er að koma út í fyrsta skipti á PlayStation 2, en þetta er mest seldi knattspyrnustjóraleikur allra tíma. Getur þú gert sem mest úr milljörðum Abramovich? Hefur þig dreymt um að taka við utandeildarliði og gera það að Evrópumeisturum? Í Championship Manager 5 ert þú í sæti knattspyrnustjórans og þarft að leiða liðið þitt til sigurs, með því að sjá um allt frá kaupum og sölu leikmanna að því að setja upp taktík, tækla fjölmiðla og finna stjörnur framtíðarinnar. Championship Manager 5 inniheldur 25 lönd með 59 deildum og gríðarlega stórum gagnabanka leikmanna. Leikurinn inniheldur nákvæmar tölur frá 2004/2005 tímabilinu, 2D sjónarhorn til að sjá leikina spilast, marga möguleika til að setja upp taktík liðsins, öflugt net njósnara, einfalt notendaviðmót og stutta hlöðunartíma. Það er því ljóst að Championship Manager 5 mun færa þig nær hliðarlínunni. Til að tryggja að Championship Manager 5 skili háu raunveruleikastigi, hefur aðalþjálfari Charlton Athletics, Mervyn Day, unnið sem ráðgjafi við gerð leiksins. En Day er einhver virtasti þjálfarinn í heiminum í dag. Hann hefur þróað fyrir leikinn einfalt, en fullkomið þjálfunarkerfi, þar sem þú getur sett leikmennina í gegnum þá þjálfun sem þú kýst. Þekking Day hefur einnig gefið framleiðendum leiksins innsýn inní líf þjálfarans og knattspyrnustjórans, bæði varðandi rekstur liðsins og á hliðarlínunni í miðjum leik. Leikurinn inniheldur: MESTUR FJÖLDI DEILDA – 25 lönd með 59 deildum og gríðarlega stórum gagnabanka um knattspyrnumenn um allan heim. NÁKVÆM GÖGN – Uppfærð gögn um leikmenn, lið og keppnir frá 2004/2005 tímabilinu. Á VELLINUM – Horfðu á leikina spilast í fullkominni 2D leikjavél og gerðu þær breytingar sem til þarf hvenær sem er. Hægt er að horfa á leikina á mismunandi hraða, allt frá helstu atriðum að fullum 90 mínútum. ÞJÁLFUNIN – Notendavænt kerfi sem hannað var að aðalþjálfara Charlton, Mervyn Day. TAKTÍSKUR SNILLINGUR – Fullkominn skjámynd þar sem leikmenn geta sett upp taktík liðsins og sagt leikmönnum hvernig þeir eiga að spila og hvert þeir eiga að hlaupa. STJARNA ER FÆDD – Fullkomið net njósnara er í leiknum þar sem þú getur gefið þeim skipanir um að finna ákveðnar gerðir leikmanna. KLÁRAÐU DÍLINN – Mjög raunverulegt kerfi sem sér um kaup og sölu leikmanna, en inní það spilar fjármál, orðspor og persónuleiki leikmanna. Til að geta náð í Ronaldo og Zidane, þurfa menn að hafa sannað sig fyrst.
Geim-Fréttir Leikjavélar Leikjavísir Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Sjá meira