Stúlkunnar enn leitað

Lögreglan í Reykjavík lýsir enn eftir Jónu Thuy Phuong Jakobsdóttur, fjórtán ára af asískum uppruna. Hún er 160 sm á hæð, svarthærð með brún augu. Ekki er vitað hvernig hún er klædd. Þá er lögreglan að svipast um eftir fjórtán ára dreng sem stakk af frá meðferðarheimilinu að Stuðlum fyrir viku.