Á sér langa afbrotasögu 18. janúar 2005 00:01
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 25 ára Hafnfirðing, Börk Birgisson í sjö og hálfs árs fangelsi, m.a. fyrir að slá annan mann ítrekað í höfuðið með öxi. Hann á sér langa afbrotasögu. Í lok ágústmánaðar síðasta sumar lagði Börkur ítrekað til annars manns með öxi á veitingastaðnum A.Hansen í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut alvarlega áverka á höfði. Í kjölfarið sló hann svo til annars manns með öxinni, með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð við eyra. Í byrjun sama árs sló Börkur mann í andlitið með flösku á sama stað. Flaskan brotnaði við höggið og maðurinn hlaut skurð í andliti. Í kjölfarið barði hann síðan manninn ítrekað með hnefunum. Afbrotasaga Barkar endar ekki þar því að hann var einnig sakfelldur fyrir fjórar aðrar líkamsárásir gegn karlmönnum og fyrir að hafa barið konu í andlitið. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa ítrekað brotið umferðarlög, meðal annars með því að aka yfir gatnamót á rauðu ljósi. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir brot á vopnalögum, en hann var með óskráða haglabyssu í fórum sínum. Dómurinn segir að ekki sé hægt að líta fram hjá því að líkamsárásir Barkar hafi allar nema ein beinst að höfði fórnarlambanna og árásirnar hafi allar verið tilefnislausar eða að minnsta kosti ekki í neinu samræmi við það sem á undan hafi gengið. Dómurinn er óskilorðsbundinn og þarf sakborningur að greiða allan sakarkostnað sem og vel á sjötta hundrað þúsund krónur í skaðabætur til handa fórnarlömbum hans.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Glæný könnun og þungavigtarfólk í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira