Nýtt Abu Grahib hneyksli? 4. desember 2004 00:01
Bandarísk hernaðaryfirvöld kanna nú myndir sem virðast sýna sérsveitarmenn flotans beita írakska fanga pyntingum. Þær þykja minna um margt á hinar óhugnanlegu myndir frá Abu Grahib fangelsinu í Írak. Fréttamaður AP-fréttastofunnar fann myndirnar á vefsíðu þar sem myndaskipti fara fram og er öllum aðgengileg. Þær eru um fjörutíu talsins og ef um ófalsaðar myndir er að ræða má sjá á dagsetningu þeirra að þær voru teknar þó nokkrum mánuðum fyrr en myndirnar úr Abu Grahib fangelsinu, sem vöktu mikinn óhugnað um alla heimsbyggðina. Myndirnar sem nú hafa litið dagsins ljós sýna meðal annars glaðbeitta hermenn niðurlægja alblóðuga fanga á ýmsa vegu. Á sumum myndanna er byssum beint að handjárnuðum föngunum. Þær virðast vera teknar inni á írökskum heimilum eftir að hermenn hafa tekið íbúana til fanga. Á mörgum þeirra eru andlit hermannanna greinileg. Sérfræðingar í herrétti segja óljóst hvort hermennirnir á myndunum séu í raun að brjóta lög með framferði sínu en bandarísk hernaðaryfirvöld segjast munu rannsaka málið í þaula. Myndirnar veki upp fjölmargar spurningar um framferði bandarískra hermanna gagnvart stríðsföngum.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sjá meira