Munu hlusta á mannræningja 30. september 2004 00:01
Talsmaður bresku ríkisstjórnarinnar segir að stjórnvöld séu viljug til að hlusta á kröfur mannræningja ef þeir snúa sér beint til þeirra, en að útilokað sé að greiða lausnargjald fyrir gísla líkt og talið er að ítölsk stjórnvöld hafi gert fyrir tvær ítalskar konur sem sleppt var úr haldi mannræningja í fyrradag. Sjónvarpsstöðin Al Jazeera sendi í gær nýtt myndband með breska gíslinum Ken Bigley, sem verið hefur í haldi mannræningja í tvær vikur. Þar sagði hann Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ljúga þegar hann segði að verið væri að semja um lausn Bigleys. Bigley sagði að Blair væri sama um sig og að líf hans væri einskis metið. Þetta myndband virðist hafa mýkt afstöðu Blairs opinberlega. Hann sagði í kjölfarið að ef mannræningjarnir settu sig í samband við stjórnvöld þá myndu þau svara mannræningjunum. Á meðan þeir geri það ekki sé fátt sem stjórnvöld geti gert. Jack Straw utanríkisráðherra segir hins vegar að útilokað sé með öllu að stjórnvöld greiði hryðjuverkamönnum lausnargjald í skiptum fyrir gísla þeirra. Myndin er af Ken Bigley á myndbandsupptöku sem mannræningjar hans gerðu opinbera í gær.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira