Meeeeeeeee 23. júní 2004 00:01
Ég var helvíti lengi að tengja mig við þessa. Sveitin er bresk og það fyrsta sem hélt mig frá því að ná tengslum var hversu keimlík öðrum breskum sveitum hún er. Er sprottin frá sömu rótum og Starsailor, Snow Patrol, Coldplay, Travis og Doves. Og það versta er að hún minnir mig á þær allar, ekki það að þessar sveitir séu allar slæmar heldur sárvantar þessa sérstöðu til þess að heilla strax. Bara enn ein kindin í sauðahúsið í augum borgarbarnsins. Bændur þekkja það svo vel að því meira sem maður er í kringum kindur, því betur fer maður að þekkja þær í sundur. Þannig að við þriðju hlustun fór þessi frumraun Keane að ná til mín. Hér eru nokkrar sterkar lagasmíðar, svo sem "We Might as Well Be Strangers", "Everybody's Changing" og lokalagið "Bedshaped", en þetta gætu alveg eins verið lög með Coldplay eða Travis. Meeeeee. Þetta er samt frekar gallalaus kind þegar maður skoðar hana gaumgæfilega. Góður flutningur, góður söngur, góður hljómur og ágætar útsetningar. Það er samt ekkert sem fangar athyglina. Ullin er bara eins og á hinum kindunum, augnaráðið jafn tómt og laust við alla dulspeki. Að sama skapi er hún gjörsamlega laus við tilgerð og óþarfa töffarastæla. Þessi kind er bara beint úr kúnni? Hmmm, er hægt að segja svoleiðis? Æi, ég held að ég sé bara kominn með leið á kindum. Ég er meira í pandabjörnunum í augnablikinu og svo var ég að frétta af mauraætu í Afríku sem getur labbað á vatni. Keane: Hopes and Fears Birgir Örn Steinarsson
Mest lesið Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Lífið „Þarna brotnaði ég bara niður og grét og grét“ Lífið Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Lífið Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París Lífið VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Lífið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Richard Chamberlain er látinn Lífið „Þetta má ekki vera feimnismál“ Lífið Fleiri fréttir Eldborg breyttist í vélrænt helvíti Kaldrifjað morð, ungar karlrembur og kæfandi andrúmsloft Strípibúlluást sem hleypir öllu í háaloft Stormur fellur á prófinu Víkingur Heiðar á fjölbreyttri afmælisveislu með ljóslifandi hápunktum Leiksigur Ladda Elísabet fær uppreist æru Sjá meira