
Viðskipti

Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði
Stjórn Kaldalóns hf. hefur samþykkt að hefja viðræður við Regin hf. um möguleg kaup á fasteignum sem telja samanlagt um 47 þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný
Wilson‘s Pizza mun opna aftur á Íslandi á morgun eftir níu ára fjarveru á markaði. Staðurinn verður staðsettur í Minigarðinum í Skútuvogi í Reykjavík.

Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí
Unnið er að því að fá nýja rekstraraðilar til að taka við rekstri Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg. Stefnt er á að opna verslunina aftur þann 15. maí. Það kemur fram í tilkynningu í glugga verslunarinnar í dag.

Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth
Anna Kristín Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þróunar og nýsköpunar (e. CDO, Chief Development Officer) gagnavers- og ofurtölvufyrirtækisins atNorth.

Oculis komið á markað
Viðskipti með verðbréf líftæknifyrirtækisins Oculis Holding AG eru hafin í Kauphöllinni. Félagið var áður skráð á markað í Bandaríkjunum.

Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun
Bréf í augnlyfjaþróunarfyrirtækisins Oculis Holding AG verða tekin til viðskipta í Kauphöllinni á morgun.

Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans
Halla Björg Haraldsdóttir, fjármálastýra Ljósleiðarans, hefur látið af störfum hjá félaginu.

Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma
Síðar á árinu fagnar SL lífeyrissjóður 50 ára starfsafmæli sínu. Stjórn, framkvæmdastjóri og starfsfólk er mjög stolt af farsælli sögu sjóðsins enda hefur hann lengi haft sérstöðu meðal íslenskra lífeyrissjóða.

Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta
Jón Ingvar Bragason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Grænna skáta.

Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar
Tæplega helmingi Íslendinga finnst stundum í lagi að kaupa falsaðar vörur og eftirlíkingar. Þetta er niðurstaða könnunar Maskínu fyrir Hugverkastofu. Níu prósent landsmanna hafa keypt falsanir eða eftirlíkingar síðastliðna 12 mánuði, mest á erlendum vefsíðum. Karlar kaupa mest falsaða merkjavöru og íþróttaföt en konur gleraugu og skartgripi.

„Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“
„Ég er að vinna í alls kyns verkefnum núna. Til dæmis að leggja lokahönd á framleiðslu Ráðherrans seríu 2 sem ég er mjög stolt af að hafa fengið að keyra áfram,“ segir Hlín Jóhannesdóttir framleiðandi með tilvísun í starf sitt hjá Saga Film.

Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun
Á morgun verður hinn alþjóðlegi dagur jarðar haldinn og að því tilefni hefur Krónan ákveðið að bjóða öllum sem mæta með fjölnota innkaupapoka í strætó á höfuðborgarsvæðiu ókeypis far.

Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði
Hjúkrunarfræðingum hefur tekist að minnka skriffinnsku um margar klukkustundir með notkun smáforritsins Iðunnar. Í forritinu eru forskráð verkefni sem starfsfólk hakar við að loknu verki. Forritið minnkar skriffinnsku og eykur yfirsýn að mati rannsakanda.

Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu
Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara.

Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði
Fráfarandi bankaráð Landsbankans segir hluthafa þurfa að breyta tilgangi félagsins ef hlutverk hans á ekki að vera að taka þátt í samkeppni á fjármálamarkaði. Kaup á TM hafi samræmst eigendastefnu ríkisins því þau hámari virði eignarhluts ríkisins.

Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans
Ný stjórn hefur verið kjörin í bankaráð Landsbankans. Jón Þ. Sigurgeirsson, ráðgjafi hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu er nýr formaður ráðsins og tekur við af Helgu Björk Eiríksdóttur sem hefur sinnt formannsstörfum síðustu átta ár.

Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp
Stjórn Sýnar er hætt við að skoða frekar sölu á vefmiðla- og útvarpseiningu sinni. Forstjóri félagsins segir mikil verðmæti fyrir Sýn að hafa einigarnar áfram innan Sýnar.

Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni
Sólbaðsstofan Sælan hefur lokað stöðum sínum og hefur fyrirtækið verið úrskurðað gjaldþrota. Þetta kemur fram í Lögbirtingarblaðinu í dag.

Ný kynslóð vélmenna vekur óhug
Forsvarsmenn fyrirtækisins Boston Dynamics, sem hefur lengi gert garðinn frægan með þróun vélmenna, kynntu á dögunum nýja kynslóð Atlas vélmenna. Atlas vélmennin hafa í nærri því áratug vakið mikla athygli fyrir töluverða hreyfigetu.

Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður
Húrra Reykjavík mun opna nýja fataverslun í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor, í sama rými og Arion banki var áður. Verslunin mun þar bjóða upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir gesti á leið sinni úr landi.

Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna
Dagur verkfræðinnar verður haldinn í níunda sinn á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á í dag og verður í beinu streymi hér á Vísi. Útsendingin hefst kl. 13.00 með setningu Svönu Helen Björnsdóttur, formanns Verkfræðingafélags Íslands.

Stöð 2+ lækkar verð
Frá og með 1. maí næstkomandi mun streymisveitan Stöð 2+ vera aðgengileg viðskiptavinum á lægra verði.

Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum
Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur gert langtímasamning við „leiðandi innkaupaaðila lyfja í Bandaríkjunum“ um sölu og markaðssetningu á Simlandi (adalimumab-ryvk), fyrstu líftæknilyfjahliðstæðunni í háum styrk með útskiptanleika við Humira.

Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku
Katrín Björg Ríkarðsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í kjara- og réttindamálum hjá Visku - stéttarfélagi. Katrín hefur verið framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu frá árinu 2017.

Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni
Gott sjálfstraust í vinnunni getur hleypt okkur gífurlega langt. Ekki aðeins í starfsframa, heldur líka í því hvernig okkur líður og gengur almennt dag frá degi. Í hvaða verkefnum sem er.

Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á
Seðlabanki Íslands hefur vakið athygli á því að slitastjóri hefur ekki enn verið skipaður yfir slóvakíska vátryggingafélaginu Novis, sem var svipt starfsleyfi fyrir tíu mánuðum. Sex til sjö þúsund Íslendingar hafa keypt tryggingarafurðir Novis og mikil óvissa ríkir um stöðu þeirra.

Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum
Orkuveitan heldur opinn fund undir yfirskriftinni „Hrein tækifæri – Straumhvörf í orkumálum“ í beinni útsendingu frá Kaldalóni í Hörpu.

Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina
Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á ferðum til borgarinnar Cardiff í Wales næsta haust. Þetta er gert vegna mikils áhuga stuðningsmanna á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram í október og nóvember.

Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum
Nítján sóttu um stöðu forstjóra Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna sem auglýst var laus til umsóknar fyrr á árinu.

Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus
Edda Valdimarsdóttir Blumenstein og Helgi Logason hafa verið tekin inn í eigendahóp ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækisins Expectus. Ákvörðun um þetta var tekin á aðalfundi fyrirtækisins, sem var haldinn í byrjun marsmánaðar.