Viðskipti

Óánægja með að fagfjárfestar hafi fengið afslátt
Mikil umfram eftirspurn var í fagfjárfesta útboði Bankasýslu ríkissins á tæplega fjórðungs á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Verð á hvern hlut til fagfjárfesta er um 10 prósent lægra en gengi dagsins í Kauphöll nú í morgun og um 4 prósent lægra en í gær. Óánægju gætir með afsláttinn og úthlutun á hlutum.

Handboltahetja til Terra Eininga
Fannar Örn Þorbjörnsson er nýr framkvæmdastjóri Terra Eininga. Starfsemin er hluti af Terra Umhverfisþjónustu og hefur áratuga reynslu af sölu og leigu á húseiningum.

Kemur til Kaptio frá Icelandair
Ásgeir Einarsson hefur verið ráðinn þróunarstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Kaptio. Hann hefur starfað sem hugbúnaðararkitekt og teymisstjóri hjá Icelandair síðustu árin.

Veruleg umfram eftirspurn í útboðinu á hlutum ríkissjóðs
Bankasýsla ríkisins hefur tilkynnt um sölu á 22,5% af útistandandi hlutafé Íslandsbanka sem jafngildir 450 milljón hlutum í bankanum. Söluverð var 117 krónur á hlut og nam söluvirði hlutarins því 52,65 milljörðum króna.

Breyttir tímar: Allt að gerast á Messenger, LinkedIn og Twitter
Fyrirtæki hafa breytt nálgun sinni við viðskiptavini í kjölfar Covid og ný rannsókn McKinsey sýnir að samskiptaform sölumanna og viðskiptavina eru að breytast hratt.

Ríkið selur í Íslandsbanka fyrir tæplega 53 milljarða króna
Umsjónaraðilar söluferlis Bankasýslu ríkisins á hlut ríkisins í Íslandsbanka, sem hófst upp úr klukkan fjögur í dag, hafa lagt til 117 króna leiðbeinandi lokaverð fyrir útboðið og að stærð útboðsins verði 22,5 prósent af heildarhlutafé bankans. Það þýðir að ríkissjóður fær um 52,65 milljarða króna fyrir söluna.

Hlutur ríkisins í Íslandsbanka fer niður fyrir fimmtíu prósent
Bankasýsla ríkisins hefur tilkynnt að söluferli á minnst tuttugu prósent af hlutríkisins í Íslandsbanka sé hafið. Um er að ræða svokallað tilboðsfyrirkomulag sem hæfir fjárfestar, innlendir sem erlendir, geta tekið þátt í. Viðskiptin verða gerð upp þann 28. mars og fer hlutur ríkisins í bankanum þá undir fimmtíu prósent.

Borgarverk bauð lægst í Teigsskóg
Borgarverk ehf. í Borgarnesi átti lægsta boð í vegagerð um Teigsskóg en tilboðsfrestur rann út klukkan 14 í dag. Tilboð Borgarverks er upp á 1.235 milljónir króna og reyndist 86,3 prósent af áætluðum verktakakostnaði, sem var upp á 1.431 milljón króna.

Innkalla framleiðslulotu af Stoðmjólk
Mjólkursamsalan hefur tekið úr sölu og innkallað eina tiltekna framleiðslulotu af Stoðmjólk. Ástæða innköllunarinnar er að umrædd framleiðslulota stenst ekki gæðakröfur vegna geymsluþols.

Torg tapað rúmum milljarði á þremur árum
Torg, útgáfufélag Fréttablaðsins, Hringbrautar, DV og tengdra miðla, tapaði 240 milljónum króna árið 2021. Greint er frá þessu í Fréttablaðinu í dag en ársreikningi félagsins hefur ekki verið skilað inn til ársreikningaskrár. Árið áður tapaði Torg 599 milljónum króna.

Tengja 91 milljarðs króna snekkju við Pútín
Glæsisnekkja sem metin er á um 91 milljarð króna og liggur við bryggju á Ítalíu er í eigu Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Það er samkvæmt bandamönnum Alexeis Navalní, pólitísks andstæðings Pútíns sem situr í fangelsi nærri Moskvu.

Notaðar útivistarvörur í umboðssölu rjúka út hjá Fjallamarkaðnum
Í Fjallamarkaðnum, Kringlunni 7 er hægt að kaupa og selja notaðan útivistarfatnað og -búnað fyrir bæði börn og fullorðna. Fjallamarkaðurinn er í eigu Fjallakofans og hefur slegið í gegn. Áhugi á útvist er mikill og Íslendingar vilja út að hreyfa sig í öllum veðrum.

Listería finnst í kjúklingastrimlum
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á Ali Salt og pipar kjúklingastrimlum sem Matfugl ehf. framleiðir.

Íslenskt útgerðarfyrirtæki segir Rússa hafa reynt að fjárkúga sig
Útgerðarfyrirtækið Vinnslustöðin segir Rússa hafa reynt að beita sig fjárkúgun í tvígang á síðasta áratug. Fyrirtækið á gott samband við hvítrússneskan ólígarka sem fyrirtækið segir að hafi aðstoðað sig úr vandanum á sínum tíma.

Eva Rós, Hafsteinn Gauti og Jóhann Óli til Deloitte Legal
Lögfræðingarnir Jóhann Óli Eiðsson, Hafsteinn Gauti Ágústsson og Eva Rós Haraldsdóttir hafa öll verið ráðin til lögmannsstofunnar Deloitte Legal.

Facebook og Instagram lokað í Rússlandi vegna ofstækis
Rússneskur dómstóll hefur skipað Meta, móðurfyrirtæki Facebook, að stöðva starfsemi Facebook og Instagram í Rússlandi án fyrirvara. Í úrskurðinum er vísað til „ofstækisvirkni“ og Meta skilgreint sem ofstækisfélag.

Áfrýjunarnefnd taldi brot BPO Innheimtu umfangsminni og lækkaði sekt
Áfrýjunarnefnd neytendamála mildaði ákvörðun Neytendastofu í máli innheimtufyrirtækisins BPO Innheimtu og telur að brot fyrirtækisins hafi verið nokkuð umfangsminni en lagt hafi verið til grundvallar í sekt stofnunarinnar.

Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup ríkisins á Auðkenni
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup ríkisins á Auðkenni ehf. á grundvelli skilyrða í sátt sem samrunaaðilar gerðu við Samkeppniseftirlitið. Auðkenni veitir rafræna auðkenningar- og traustþjónustu á Íslandi og gefur út rafræn skilríki.

Oddgeir Ágúst Ottesen nýr framkvæmdastjóri KVH
Oddgeir Ágúst Ottesen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH). Félagið er stéttarfélag sem sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Auk þess sinnir félagið annarri hagsmunagæslu fyrir félagsmenn.

Leggur til hækkun hámarksfjölda rafbíla sem geta notið ívilnunar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að hámarksfjöldi rafbíla sem geta notið ívilnunar frá virðisaukaskatti verði tuttugu þúsund bílar, en ekki fimmtán þúsund eins og nú er.

„Erfitt fyrir marga að hætta í fréttum“
„Það er erfitt fyrir marga að hætta í fréttum. Því þessu starfi fylgir spenna sem er kannski erfitt að finna annars staðar," segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, nýráðinn fréttastjóri RÚV.

„Þetta er það ótrúlegasta sem ég hef lent í“
Veitingamaður sem ákvað að auglýsa sérstaklega eftir starfsfólki sextíu ára og eldri segir viðbrögð við auglýsingunni það ótrúlegasta sem hann hafi lent í. Hann segir ótal kosti við þennan hóp starfsfólks og telur mikla aldursfordóma ríkja í samfélaginu.

Fjármálaráðherra útilokar ekki inngrip haldi miklar eldsneytishækkanir áfram
Fjármálaráðherra útilokar ekki að ríkið lækki tímabundið álögur á eldsneytisverð fari verð þess upp í hæstu hæðir. Það sé hins vegar ekki verið að horfa til þeirra leiðar nú til að ná verðbólgunni niður. Heldur fyrst og fremst sértækra aðgerða fyrir tekjulægstu hópa samfélagsins.

Afinn sem fær meira að segja eiginkonuna til að senda sér fundarboð
Við þekkjum Valgeir Magnússon flest betur sem Valla sport en Valli býr í Osló þar sem hann er að byggja upp Pipar\TBWA og The Engine fyrirtækið upp fyrir Norðurlandamarkað.

Hyggja á áframhaldandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur ákveðið að ráðast í framhald sölumeðferðar á hlutum í Íslandsbanka, í samræmi við tillögu Bankasýslu ríkisins frá því í janúar á þessu ári.

Máli ÁTVR gegn Sante og Bjórlandi vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað málum ÁTVR gegn Sante ehf, Santewines SAS og Bjórlandi vegna smásölu á áfengi frá dómi.

2.050 krónur fyrir fjörutíu mínútna verslunarferð í IKEA á nýjum deilibíl
Tíu deilibílar frá rafskútuleigunni Hopp verða teknir í gagnið á höfuðborgarsvæðinu í dag. Framkvæmdastjóri Hopps segir deilibílana frábrugðna öðrum sambærilegum lausnum sem þegar eru í boði og óttast hvorki samkeppni né skort á eftirspurn.

Tekur við stöðu forstjóra SaltPay
Fjártæknifyrirtækið SaltPay hefur ráðið Jónínu Gunnarsdóttur sem forstjóra félagsins hér á landi. Hún tekur við stöðunni af Reyni Finndal Grétarssyni sem gegnt hefur starfi forstjóra síðan í ágúst en hann mun taka við starfi stjórnarformanns SaltPay.

Vísbendingar um að tilfinningin sé á rökum byggð
Bókunarsíða Niceair, nýs flugfélags sem mun gera út frá Akureyrarflugvelli, var opnuð í gær. Viðtökurnar hafa verið framar vonum að sögn framkvæmdastjóra flugfélagsins.

Helgi stýrir sölu- og markaðsstarfi Niceair
Helgi Eysteinsson hefur gengið til liðs við flugfélagsins Niceair og verður honum falið að stýra uppbyggingu á sölu- og markaðsstarfi félagsins.