
Viðskipti innlent

Ráðinn markaðsstjóri Bónuss
Ólafur Thors hefur verið ráðinn markaðsstjóri Bónus.

Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd
Alþjóðlega tæknifyrirtækið HERE Technologies ætlar í sumar að kortleggja stærstan hluta íslenska vegakerfisins úr fólksbílum á vegum fyrirtækisins. Tilgangurinn er meðal annars sá að styðja við akstur sjálfkeyrandi ökutækja.

Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun lækkun stýrivaxta um 25 punkta og verða þeir 7,5 prósent. Seðlabankastjóri segir hagkerfið að kólna en erfitt sé að spá fyrir um hvort hægt verði að halda áfram lækkun stýrivaxta, sumarið verði að segja til um það.

„Ég held að þú þurfir ný gleraugu“
Varaseðlabankastjóri peningastefnu segir ljóst að verðbólga þurfi að hjaðna verulega ef halda eigi vaxtalækkunarferlinu áfram. Seðlabankastjóri segir af og frá að slakað hafi verið á aðhaldi með 25 punkta lækkun stýrivaxta.

Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka
Fjárfestar sem gerðu tilboð í tilboðsbók B í útboðinu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka fá hlutum sínum úthlutað í dag. Áætlað er að hlutir að virði 3,7 milljarða króna verði úthlutað til 56 aðila.

Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta
Seðlabankinn hefur boðað til fundar í húsakynnum bankans klukkan 09:30 þar sem ákvörðun peningastefnunefndar bankans um lækkun stýrivaxta verður rökstudd. Sjá má fundinn í beinni útsendingu hér á Vísi.

Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur
Reitir fasteignafélag og Háskólinn í Reykjavík (HR) hafa undirritað rammasamning um samstarf til þriggja ára. Samstarfið felur í sér árlega hugmyndasamkeppni fyrir nemendur HR þar sem þau fá tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni úr starfsemi Reita.

Vaxtalækkunarferlið heldur áfram
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta og fara þeir því úr því að vera 7,75 prósent í 7,5 prósent.

Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands sendir í dag frá sér sína reglulegu yfirlýsingu, meðal annars um hvernig vextir verði hér á landi á næstunni. Yfirlýsingin verður send út klukkan hálfníu og í framhaldinu fer fram kynning á stöðu mála í seðlabankanum auk þess sem ritið Peningamál kemur út.

Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða
Bæjarráð Kópavogs hefur falið bæjarstjóra að undirbúa málshöfðun til ógildingar úrskurðar innviðaráðuneytisins, sem úrskurðaði á dögunum að lóðaúthlutun bæjarins hefði verið ólögmæt. Væntar tekjur af úthlutuninni voru 2,7 milljarðar króna. Fulltrúi minnihlutans segir fjárhag bæjarins í verulegu uppnámi vegna málsins.

Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi
Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar nam 12 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi á þessu ári.

Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara
Guðbjartur Flosason framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf var látinn fara í lok mars en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá blautu barnsbeini.

Niðurstöður álagningar birtar á fimmtudag
Niðurstöður álagningar einstaklinga 2025, vegna tekna 2024, verða birtar á þjónustuvef Skattsins á fimmtudag 22. maí. Inneignir verða greiddar út á föstudegi 30. maí og launagreiðendur fá upplýsingar um skuldir til að draga af launum.

Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“
Eigendur fataverslunarinnar Gyllta kattarins, sem rekin hefur verið við Austurstræti í tvo áratugi, hafa gefist upp á því að reka verslun í miðborginni. „Dagur eyðilagði þetta, það er bara þannig,“ segir annar þeirra.

Rökrétt að lækka lyfjaverð í Bandaríkjunum
Margföld umframeftirspurn var í hlutabréfaútboði Alvotech í Stokkhólmi í morgun. Róbert Wessman forstjóri félagsins segir rökrétt að lækka lyfjaverð í Bandaríkjunum líkt og Trump hefur boðað.

Rapyd sé íslenskt fyrirtæki með kennitölu frá 1983
Forsvarsmenn Rapyd á Íslandi segja fyrirtækið íslenskt og að starfsemi þess byggi á áratugalangri sögu Valitor og Korta, sem hafi verið sameinuð undir merkjum Rapyd. Þeir sýni því skilning að fólk hafi skoðun á átökum fyrir botni Miðjarðarhafs en umfjöllun þurfi að byggja á staðreyndum.

Þurfi að líta ofar í tekjustigann í næstu kjarasamningum
Jón Ólafur Halldórsson er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins er bjartsýnn á horfur í íslensku atvinnulíf en segir stjórnvöld þurfi að vinna með atvinnulífinu. Það sé gríðarlega mikilvægt að samtalið sé virkt og opið þar á milli. Jón Ólafur ræddi efnahags- og tollamál í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Hefja viðskipti með bréf í Alvotech í Stokkhólmi
Viðskipti með hluti í Alvotech hefjast í dag á Nasdaq markaðnum í Stokkhólmi í Svíþjóð. Bréf í félaginu verða þar með skráð samhliða á þremur aðalmörkuðum - Nasdaq í Bandaríkjunum, Nasdaq á Íslandi og Nasdaq í Stokkhólmi.

Óttast að háir vextir sogi sparnaðinn til Tenerife
Dósent í fjármálum við Háskóla Íslands segir það sitt mat að stýrivextir Seðlabankans eigi að lækka í vikunni en vaxtaákvörðunardagur er á miðvikudag. Hann veltir því upp hvort einkaneysla sé að aukast einmitt vegna hárra vaxta og segir hækkandi leiguverð þar spila inn í.

Ráku framkvæmdastjórann og komust svo að rafmyntagreftrinum
Landsréttur staðfesti á dögunum dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að fyrirtæki hafi verið heimilt að rifta ráðningarsamningi við framkvæmdastjóra sinn. Framkvæmdastjórinn fyrrverandi hafði farið fram á að fyrirtækið myndi greiða honum þriggja mánaða uppsagnarfrest, sem samsvaraði 3,5 milljónum króna auk vaxta. Landsréttur féllst ekki á það.

Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans
Hagfræðingur segir jákvætt að tekist hafi að selja allan hlut ríkis í Íslandsbanka. Mikil þátttaka almennings sé góð fyrir markaðinn. Ríkið hljóti nú að íhuga að selja Landsbankann.

Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir fagnaðarefni hve mikinn áhuga almenningur hafi haft á útboði í eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. Hann hefur ekki áhyggjur af því hve lítinn hluta fagfjárfestar fengu í útboðinu og segist ekki telja að selja hefði mátt hlutina á hærra verði.

Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“
Fyrirtækið Heinemann, sem nýverið tók við rekstri fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli, segir ekki rétt að fyrirtækið hyggist meina starfsmönnum verslananna að vera félagsmenn í Sameyki eða skikka þá til aðildar að VR. Þá segir fyrirtækið formann Sameykis hafa farið með rangfærslur í bréfi til félagsmanna sinna á dögunum. Hins vegar staðfestir fyrirtækið að frá og með febrúar 2028 muni „aðeins kjarasamningur VR og SA geta gilt“ um starfsfólk fríhafnarinnar.

Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili
Reitir hafa gengið til samninga við Ríkiseignir um leigu á Nauthólsvegi 50 í Reykjavík undir rekstur hjúkrunarheimilis til næstu tuttugu ára. Fasteignin hýsti áður höfuðstöðvar Icelandair.

Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins
Tilboð í tilboðsbók A í útboði á öllum eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka námu 88,2 milljörðum króna. Þau bárust frá 31.274 einstaklingum.

„Þetta er framar okkar björtustu vonum“
Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka segir að eftirspurn almennings í nýafstöðnu útboði á eftirstandandi hlutum ríkisins í bankanum hafi verið fram úr þeirra björtustu vonum. Tilkynnt verður um það í fyrramálið hverjir fá hvaða hlut, en hann telur ólíklegt að fagfjárfestar fái úthlutun vegna gífurlegrar eftirspurnar almennings, sem eru í forgangi.

Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings
Heildarvirði nýafstaðins útboðs ríkissjóðs á hlutum í Íslandsbanka nemur 90,58 milljörðum króna. Líkur eru á því að nær allir seldir hlutir fari til almennings. Meira en tvöföld umframeftirspurn var eftir hlutum í útboðinu og nam hún um 100 milljörðum króna.

Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi
Ritstjóri Innherja telur líklegt að hátt í hundrað milljarðar króna fáist fyrir hlut ríkisins í Íslandsbanka í yfirstandandi söluferli. Líklega sé um að ræða stærstu eignasölu ríkissjóðs frá upphafi.

Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka
Tilkynnt hefur verið um aukið magn í útboði almennra hluta í Íslandsbanka og til stendur að selja allan eignarhlut ríkisins.

Sjóvá tapar hálfum milljarði
Sjóvá tapaði 540 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025. Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta var rúmur milljarður, 1.126 milljónir króna, en hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta var 821 milljónir króna.