Viðskipti innlent
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 334 ›
Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Nýtt flugfraktfélag, Odin Cargo, hefur gengið frá langtímasamningum við birgja og hyggst bjóða uppá sömu flugáætlun og Bláfugl, sem nýverið skilaði inn flugrekstrarleyfi sínu. Odin Cargo mun bjóða upp á fraktflug alla virka daga milli Keflavíkur, Billund og Kölnar. Viðskipti innlent 3.5.2024 10:54
Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Á Suðurlandi er greiða Grindvíkingar að meðallagi 32 prósent hærri leigu en aðrir. Viðskipti innlent 3.5.2024 10:10
Guðný og Sigurður Helgi til SI Guðný Hjaltadóttir og Sigurður Helgi Birgisson hafa verið ráðin viðskiptastjórar á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. Guðný ber ábyrgð á framleiðsluiðnaði og Sigurður Helgi landbúnaði og matvælaiðnaði. Viðskipti innlent 3.5.2024 09:46
Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, hefur tekið við stöðu sviðsstjóra SAFT - Netöryggismiðstöðvar Íslands (Safer Internet Center á Íslandi). Viðskipti innlent 3.5.2024 08:30
Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Íslandsbanki hagnaðist um 5,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Kostnaðarhlutfall bankans hækkar á milli ára og er rétt nær fjárhagslegu markmiði bankans. Viðskipti innlent 2.5.2024 17:46
Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Arnar Már Magnússon hefur verið gerður að aðstoðarforstjóra flugfélagsins Play. Arnar Már hefur verið framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play og mun áfram sinna þeirri stöðu meðfram nýju hlutverki. Viðskipti innlent 2.5.2024 16:50
Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Vinnunetföng sem notuð eru í persónulegum erindagjörðum geta orðið hluti af alvarlegum öryggisbresti fyrir tölvukerfi vinnuveitandans. Mörg dæmi eru um að netföng starfsfólks birtist á mismunandi vefsíðum sem eru ótengd vinnuveitandanum, eins og X (Twitter), Einkamál, Strava, Bland.is og jafnvel á klámsíðum. Viðskipti innlent 2.5.2024 14:01
Sjö vilja taka við af Gunnari Alls bárust sjö umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 9. apríl síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 30. apríl. Gunnar Jakobsson baðst á dögunum lausnar og var Arnór Sighvatsson settur tímabandið í embættið. Viðskipti innlent 2.5.2024 13:54
Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður. Viðskipti innlent 2.5.2024 12:55
Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Aðaldagskrá Iceland Innovation Week var birt í morgun. Þátttakendur frá meðal annars Google, Microsoft, Snapchat, NATO Innovation Fund og UN World Food Programme eru væntanlegir til landsins á hátíðina, sem fer fram dagana 13-17. maí. Viðskipti innlent 2.5.2024 11:02
Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Sala hófst í dag á fyrsta áfanga af fjórum á Orkureitnum svokallaða. Um er að ræða 68 íbúðir í sjö hæða húsi við Suðurlandsbraut, vestan við Orkuhúsið. Stærð íbúða er á bilinu 38 - 166 fermetrar. Viðskipti innlent 2.5.2024 10:40
Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Askur – mannvirkjarannsóknasjóður og Rannís bjóða standa fyrir fundi um stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði og hefst hann klukkan 10. Hægt að fylgjast með fundinum í streymi í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 2.5.2024 09:58
Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Haraldur Þorleifsson hefur lokað veitingastað sínum Önnu Jónu á Tryggvagötu. Hann segist enn vera að melta hlutina en segir ákvörðunina vera gríðarlega mikinn létti. Erfitt rekstrarumhverfi hafi spilað sinn þátt. Viðskipti innlent 2.5.2024 09:26
Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Arion banki hagnaðist um 4,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er nokkur samdráttur sé fjórðungurinn borinn saman við sama tímabil í fyrra, þegar Arion hagnaðist um 6,3 milljarða. Bankastjóri segir afkomuna undir markmiðum. Viðskipti innlent 30.4.2024 16:24
Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Opnað hefur verið fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga úthlutunar í Vatnsendahvarfi, sem er nýjasta hverfið í Kópavogi. Viðskipti innlent 30.4.2024 15:07
Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Aðalfundur Landsvirkjunar hefur samþykkt tillögu stjórnar um þrjátíu milljarða króna arðgreiðslu í ríkissjóð. Það er tíu milljörðum króna hærri arðgreiðsla en stjórnin lagði til þegar ársreikningur fyrirtækisins var birtur í febrúarlok. Fjármála- og efnahagsráðherra óskaði eftir því að arðgreiðslan yrði hækkuð í ljósi þess að árið 2023 var besta rekstrarár í tæplega sextíu ára sögu Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 30.4.2024 13:39
Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Atvinnulíf, stjórnvöld og stéttarfélög ræða eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn í beinu streymi frá Hörpu klukkan 11:45 undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir. Viðskipti innlent 30.4.2024 11:41
Landa stórum sölusamningi Alvotech tilkynnti í dag að nýgerður samningur í Bandaríkjunum um dreifingu og sölu á líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech í háum styrk með útskiptileika við Humira (adalimumab) sé við Quallent Pharmaceuticals, dótturfélag Cigna. Samningurinn sé gerður með samþykki Teva Pharmaceuticals, sem er samstarfsaðili Alvotech í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 30.4.2024 08:34
Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Stjórn Regins hefur ákveðið að afturkalla samrunatilkynningu félagsins, sem send var inn til Samkeppniseftirlitsins í september í fyrra, vegna fyrirhugaðs samruna félagsins og Eikar fasteignafélags. Samhliða hyggst Reginn óska eftir heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands til að falla frá valfrjálsu tilboði félagsins í allt hlutafé Eikar Viðskipti innlent 29.4.2024 20:41
Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Stýrivextir verða ekki lækkaðir fyrr en undir lok árs og verðbólga mælist yfir markmiðum seðlabankans næstu tvö árin samkvæmt nýrri Hagspá Landsbankans. Hagfræðingur telur að uppkaup á húsnæði Grindvíkinga hafi talsverð áhrif á verðbólgu næstu mánuða. Viðskipti innlent 29.4.2024 11:45
Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Íslenski tölvuleikurinn Island of Winds (Eyja vindanna) sem framleiddur er af Parity Games hefur tryggt sér útgáfu. Útgefandinn er fyrirtækið ESDigital Games. Mun leikurinn koma út á heimsvísu samtímis á PC, PlayStation 5 og Xbox X/S á fyrsta árshluta 2025. Viðskipti innlent 29.4.2024 11:22
Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Verðbólgan hefur náð hámarki en mun hjaðna hægt og ekki fara niður fyrir efri vikmörk Seðlabanka Íslands fyrr en árið 2026. Þá verða stýrivextir ekki lækkaðir fyrr en á síðasta ársfjórðungi þessa árs. Viðskipti innlent 29.4.2024 09:12
Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Fyrstu tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum til nota á jörðu niðri gætu farið fram á Íslandi samkvæmt nýjum samstarfssamningi sem íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs hefur gert við breska fyrirtækið Space Solar. Viðskipti innlent 29.4.2024 08:14
Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðanna B5 og Exit og áfengisverslunarinnar Nýju vínbúðarinnar, segir rekstur B5 hafa verið þungan í kjölfar afskipta lögreglu af staðnum. Inngrip Ríkisskattstjóra sé því eðlilegt hvað B5 varðar, en ekki hvað varðar Exit og Nýju vínbúðina. Viðskipti innlent 26.4.2024 17:35
Fjármálastjóri Play segir upp Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, lætur af störfum að eigin ósk. Ólafur mun áfram sinna stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs þar til eftirmaður hans tekur við. Viðskipti innlent 26.4.2024 16:14
Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Sprotafyrirtækið Prescriby, sem þróar hugbúnaðarlausn til að veita öruggari meðferðir uppáskrifaðra ópíóíða og annarra sterkra lyfja, tilkynnti í dag 300 milljóna króna fjármögnun leidda af Crowberry Capital. Viðskipti innlent 26.4.2024 15:40
Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur innsiglað skemmtistaðinn Exit við Ingólfstorg. Fyrr í dag var skemmtistaðurinn B5 innsiglaður en þeir eru báðir í eigu Sverris Einars Eiríkssonar. Þá hefur húsnæði Nýju vínbúðarinnar, sem er í eigu Sverris Einars, einnig verið innsiglað. Viðskipti innlent 26.4.2024 14:42
Innsigla B5 að kröfu Skattsins Nokkuð fjölmennt lið lögreglu var við skemmtistaðinn sem kallaður er B5 í miðbæ Reykjavíkur á fjórtánda tímanum í dag. Að sögn aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var verið að innsigla staðinn að beiðni skattyfirvalda. Viðskipti innlent 26.4.2024 13:24
Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Tekjur PLAY á fyrsta fjórðungi ársins voru 7,6 milljarðar króna. Það er aukning um 66 prósent, borið saman við sama fjórðung í fyrra, þegar tekjurnar voru 4,6 milljarðar króna. Rekstarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og skatta var þó neikvæð um 2,9 milljarða á árshlutanum. Viðskipti innlent 24.4.2024 17:51
Farsímatekjur undir væntingum Reiknað er með því að EBIT afkoma Sýnar á fyrsta ársfjórðungi verði umtalsvert minni en samanborið við sama tímabil í fyrra eða sem nemur rúmum 308 milljónum króna. Þetta kemur fram í afkomuviðvörun til Kauphallar. Áætluð EBIT afkoma verður um 120 milljónir króna en var 428 á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 24.4.2024 17:08