Viðskipti innlent
114 115 116 117 118 119 120 121 122 … 334 ›
Strandveiðisjómenn landa 275 þúsund króna aflaverðmæti að jafnaði úr róðri Mánuði eftir að strandveiðar hófust er búið að veiða um 35 prósent kvótans. Aflinn nemur samtals 3.672 tonnum en strandveiðipottur sumarsins er tíu þúsund tonn af þorski. Auk þess hafa veiðst 353 tonn af ufsa, samkvæmt samantekt Fiskistofu í morgun. Viðskipti innlent 1.6.2022 18:35
Vara við sólhlífum í Costco sem geti valdið eldsvoða Costco á Íslandi hefur innkallað sólhlífar með sólarsellum og LED-ljósum frá SunVilla vegna hættu á því að rafhlaða þeirra ofhlaðist og valdi þannig eldsvoða og brunahættu. Viðskipti innlent 1.6.2022 16:12
Viðskiptahalli ekki verið meiri frá hruni Viðskiptahalli á fyrsta ársfjórðungi ársins mældist hærri en hann hefur mælst frá fjármálakreppunni árið 2008. Aldrei þessu vant var halli á öllum helstu undirliðum viðskiptajafnaðarins en greiningardeild Íslandsbanka hefur ekki hringt viðvörunarbjöllum enda reiknar hún með því að þjóðarbúið rétti úr kútnum innan skamms. Viðskipti innlent 1.6.2022 16:01
Í skýjunum með að hafa fært stóran hluta fyrirtækisins í eigu þjóðarinnar Tæplega sjö þúsund nýir hluthafar hafa bæst í hóp eigenda Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar eftir hlutafjárútboð fyrirtækisins sem lauk á föstudag. Rúmlega tvöföld eftirspurn var eftir hlutafé í fyrirtækinu þar sem almenningur keypti á genginu 8,9 krónur á hlut og stærri fjárfestar buðu 10,03 krónur á hlut. Viðskipti innlent 1.6.2022 15:44
„Það mun ábyggilega taka nokkur ár að ná fyrra trausti“ Mannauðsstjóri ISAVIA telur að það muni taka nokkur ár að ná því trausti sem fólk hafi áður borið til flugvalla sem vinnustað eftir þrengingarnar sem fylgdu kórónuveirufaraldrinum. Fylgifiskur sóttvarnatakmarkana sem ýmist voru hertar eða víkkaðar út var skert starfshlutfall og uppsagnir. Viðskipti innlent 1.6.2022 13:20
Fjögur ráðin í lykilstöður hjá Controlant Áslaug S. Hafsteinsdóttir, Jens Bjarnason, Ragnhildur Ágústsdóttir og Sæunn Björk Þorkelsdóttir hafa öll verið ráðin í lykilstöður hjá hátæknifyrirtækinu Controlant. Viðskipti innlent 1.6.2022 12:01
Arion appið liggur niðri Arion appið liggur nú niðri og er sem stendur ekki aðgengilegt. Viðskipti innlent 1.6.2022 11:43
Fossar nýr fjárfestingarbanki Fossar markaðir hafa fengið starfsleyfi sem fjárfestingabanki hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og fengið nafnið Fossar fjárfestingarbanki hf. Fossar voru stofnaðir árið 2015 og þjónusta innlenda og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Viðskipti innlent 1.6.2022 11:09
Hildur Björk stýrir markaðsmálum hjá Isavia Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá Isavia. Viðskipti innlent 1.6.2022 10:33
Halli á viðskiptajöfnuði jókst milli ára Rúmlega fimmtíu milljarða króna halli á viðskiptajöfnuði við útlönd var á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er um 27 milljarða króna verri niðurstaða en á sama ársfjórðungi í fyrra. Viðskipti innlent 1.6.2022 10:03
Helmingur nýráðinna hafa áður starfað hjá Eflingu Efling hefur nú lokið við að ráða í störf tæplega tuttugu starfsmanna sem auglýst voru í apríl. Á heimasíðu félagsins segir að rúmur helmingur þeirra hafi reynslu af störfum fyrir félagið. Viðskipti innlent 1.6.2022 08:01
Vill að Íslendingar leggi áherslu á gæði umfram magn í ferðaþjónustu Forstjóri Brimborgar vill að Íslendingar marki sér stefnu í ferðamannamálum um að laða til landsins ferðamenn sem borgi vel. Leggja þurfi áherslu á gæði umfram magn í ferðamennsku. Hann kveðst sannfærður um að það myndi leysa mönnunarvanda og gera greinina sjálfbærari. Viðskipti innlent 31.5.2022 14:32
Mjólkurvörur Örnu á Bandaríkjamarkað Forsvarsmenn Örnu mjólkurvinnslu í Bolungarvík skrifuðu nýverið undir viljayfirlýsingu með forsvarsmönnum Reykjavík Creamery, mjólkurvinnslu í Pennsylvaníu, um samstarf milli fyrirtækjanna um framleiðslu og sölu á mjólkurvörum Örnu í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 31.5.2022 12:12
Ferðamenn, ferðalög og einkaneysla knýja mikinn hagvöxt Hagstofa Íslands áætlar að landsframleiðsla hafi aukist að raungildi um 8,6 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, borið saman við sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 31.5.2022 10:31
Gunnar Zoëga leiðir sameinað félag Opinna Kerfa og Premis Upplýsingatæknifyrirtækin Opin Kerfi og Premis hafa sameinast undir merkjum OK. Félögin undirrituðu samning um sameiningu í janúar og lá samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir um mánuði síðar. Viðskipti innlent 31.5.2022 10:16
Miklar tilfinningar þegar Súlur kom í heimahöfn Þota norðlenska flugfélagsins Niceair, Súlur, flaug í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri í dag. Forsetafrúin fékk þann heiður að nefna flugvélina. Viðskipti innlent 30.5.2022 22:00
Ráðinn listrænn stjórnandi hjá Hér&Nú Jónbjörn Finnbogason hefur verið ráðinn listrænn stjórnandi (e. art director) hjá auglýsingastofunni Hér&Nú. Jónbjörn hefur starfað sem grafískur hönnuður á stofunni frá árinu 2020. Viðskipti innlent 30.5.2022 14:43
Mesta hækkun á leiguverði í tæp tvö ár Hækkun á leiguverði á höfuðborgarsvæðinu milli mánaða mældist 2,1 prósent í apríl og er um að ræða mesta hækkunin síðan í júní 2020. Viðskipti innlent 30.5.2022 14:33
Slegist um þjóna og kokka í ferðaþjónustunni Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ferðaþjónustuna hafa tekið hraðar við sér eftir faraldurinn en fólk almennt hafði gert ráð fyrir og er svo komið að mörg ferðaþjónustufyrirtæki hafa lokað fyrir sölu. Mikil vöntun er þó á matreiðslufólki og þjónum í sumar og er slegist um þetta starfsfólk. Viðskipti innlent 30.5.2022 13:57
Rjómablíða tók á móti þotu Niceair Eyjafjörðurinn skartaði sínu fegursta í dag þegar Súlur, flugvél Niceair, kom til heimahafnar á Akureyri, nú fyrir stundu. Viðskipti innlent 30.5.2022 13:31
Mun stýra Running Tide á Íslandi Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri alþjóðlega loftslagsfyrirtækisins Running Tide á Íslandi og mun hann stýra daglegri starfsemi þess hér á landi. Viðskipti innlent 30.5.2022 10:29
Daði stýrir markaðs- og umhverfismálum hjá Krónunni Daði Guðjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðs- og umhverfismála hjá Krónunni og mun hefja störf í ágúst. Viðskipti innlent 30.5.2022 08:57
Þota Niceair kemur til Akureyrar Airbus farþegaþota akureyrska flugfélagsins Niceair kemur til Akureyrar í dag en jómfrúarflug vélarinnar verður farið næsta fimmtudag. Viðskipti innlent 30.5.2022 07:12
Metársfjórðungur hjá útflutningsstoðunum þremur Útflutningsverðmæti Íslands jukust mikið á fyrsta ársfjórðungi þessa árs ef miðað er við sama ársfjórðung síðasta árs. Mest aukning varð í útflutningsverðmætum allra stoðanna þriggja; ferðaþjónustu, sjávarútvegi og stóriðju. Viðskipti innlent 28.5.2022 14:11
Loka BioBorgara til að elta drauminn Veitingastaðurinn BioBorgari við Vesturgötu í Reykjavík lokar dyrum sínum í seinasta sinn á sunnudag eftir um fimm ára rekstur. Hamborgarastaðurinn, sem rekinn er af Vífli Rúti Einarssyni og eiginkonu hans Alejandra Hernandéz, hefur markað sér þá sérstöðu að nota fyrst og fremst lífrænt hráefni. Viðskipti innlent 27.5.2022 15:50
Næsta þáttaröð True Detective tekin á Íslandi með Jodie Foster í aðalhlutverki Bandaríska stórleikkonan og leikstjórinn Jodie Foster mun snúa aftur á sjónvarpsskjáinn í fjórðu þáttaröðinni af HBO-seríunni True Detective. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að taka þættina upp á Íslandi næsta vetur en þeir gerast í Alaska í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 27.5.2022 15:00
Fyrrum félag Björgólfs og Róberts endaði í fjórtán milljarða þroti Skiptum er lokið í þrotabúi Mainsee Holding ehf. en engar eignir fundust upp í lýstar kröfur sem námu 13,87 milljörðum króna. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar árið 2018. Viðskipti innlent 27.5.2022 14:44
Jóhannes til Viðskiptaráðs Jóhannes Stefánsson hefur verið ráðinn lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Jóhannes mun gegna stöðunni í fjarveru Öglu Eirar Vilhjálmsdóttur, sem er í fæðingarorlofi. Viðskipti innlent 27.5.2022 14:20
Skuldabréf Ljósleiðarans komin í Kauphöllina Skuldabréf Ljósleiðarans, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í dag að fenginni staðfestingu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á útgefenda- og verðbréfalýsingu. Viðskipti innlent 27.5.2022 09:30
Þörungaræktandi telur Ísland geta orðið miðstöð kolefnisbindingar Tugir manna gætu fengið vinnu hér á landi við verksmiðju bandarísks nýsköpunarfyrirtækis sem ætlar sér að binda kolefni með þörungarækt í Atlantshafi á næstu árum. Stofnandi fyrirtækisins segir Ísland geta orðið miðstöð kolefnisbindingar í heiminum. Viðskipti innlent 26.5.2022 07:30