Viðskipti innlent
112 113 114 115 116 117 118 119 120 … 334 ›
Lilja telur langt sumarfrí og styttingu vinnuvikunnar ýta undir verðbólgu Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, telur að of fáar vinnandi hendur á vinnumarkaði leiði til verðbólguþrýstings. Lengri sumarfrí og stytting vinnuviku séu áhrifaþættir og færri hafi skilað sér aftur á vinnumarkað eftir Covid. Viðskipti innlent 15.6.2022 22:47
Sér fram á milljarðatap ef þorskkvóti verður minnkaður frekar Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segist sjá fram á að útflutningstekjur af sjávarafurðum dragist saman um allt að sjö milljarða króna fari sjávarútvegsráðherra að ráðlegginum Hafrannsóknastofnunar um minni þorskkvóta. Viðskipti innlent 15.6.2022 20:23
Margir komist ekki inn á markaðinn eftir inngrip Seðlabankans Varaformaður Félags fasteignasala telur að ákvörðun Seðlabankans um að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur geti leitt til þess að margir komist ekki inn á fasteignamarkaðinn. Viðskipti innlent 15.6.2022 20:02
Segir leiguverð ekki þurfa að fylgja hækkandi fasteignaverði Leiguverð hefur ekki mælst lægra að raunvirði síðan 2017. Hagfræðingur hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun segir leiguverð ekki alltaf þurfa að fylgja fasteignaverði. Kostnaður við að eiga og reka íbúð hafi ekki hækkað mikið Viðskipti innlent 15.6.2022 14:21
Óttast endurkomu verðtryggðra lána Fyrstu kaupendur munu þurfa að leggja út 15 prósent af kaupverði fasteignar í stað 10 prósent, samkvæmt tilmælum Seðlabanka Íslands sem kynnt voru í morgun. Bankinn hefur áhyggjur af óhóflegri skuldsetningu en með aðgerðunum vill seðlabankastjóri fyrst og fremst hemja endurkomu verðtryggingarinnar. Viðskipti innlent 15.6.2022 12:07
Kaupmáttur jókst þrátt fyrir mikla verðbólgu Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimila hafi aukist um 9,64% á fyrstu þremur mánuðum þessa árs í samanburði við sama tímabil í fyrra. Þegar tekið er tillit verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi aukist um 1,23%. Viðskipti innlent 15.6.2022 11:13
Hækka spá sína og gera ráð fyrir 8,7 prósent verðbólgu í júní Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að ársverðbólga mælist 8,7% í júní en hún var 7,6% í maí. Um er að ræða talsvert meiri hækkun en bankinn hafði áður spáð og skýrist það fyrst og fremst af því að verð á eldsneyti hefur hækkað mun meira en hagfræðideildin átti von á. Viðskipti innlent 15.6.2022 10:13
Bein útsending: Gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fulltrúar fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans munu gera grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar á blaðamannafundi sem sýndur verður klukkan 9:30 í dag. Viðskipti innlent 15.6.2022 09:00
Lækka hámarkshlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur Gæta þarf þess að vaxandi efnahagsumsvifum fylgi ekki yfirdrifin áhættusækni og óhóflegur vöxtur útlána sem gæti veikt viðnámsþrótt fjármálakerfisins. Verði bakslag í alþjóðlegum efnahagsbata gæti það haft áhrif á fjármálastöðugleika hér á landi. Bankinn hefur ákveðið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90 prósent í 85 prósent. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:37
Leiguverð sem hlutfall af launum ekki mælst lægra síðan 2013 Umsvif á fasteignamarkaði halda áfram að dragast saman og framboð af íbúðum til sölu er farið að aukast á nýjan leik eftir verulegan samdrátt allt frá því í maí 2020. Hátt hlutfall íbúða sem seldist á yfirverði í apríl og stuttur sölutími er hins vegar vísbending um að eftirspurnarþrýstingur hafi þó enn verið mikill í mánuðinum. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:15
„Menn hjálpast að, „play nice““ Niceair fór í sitt fyrsta samstarfsverkefni í gær þegar Airbus-vél félagsins flaug utan til Gautaborgar í Svíþjóð fyrir flugfélagið Play. Viðskipti innlent 14.6.2022 10:47
PCR-heildsali Landspítalans hagnaðist um tæpa tvo milljarða í fyrra Heilsölufyrirtækið Lyra hagnaðist um 1.955 milljónir króna fyrir skatt árið 2021 en mikil söluaukning varð hjá fyrirtækinu vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Alls seldi Lyra vörur og þjónustu fyrir 4.250 milljónir króna í fyrra en Landspítalinn var langstærsti viðskiptavinur fyrirtækisins. Kaup spítalans fóru fram án útboðs. Viðskipti innlent 14.6.2022 07:44
Spá því að verðbólga fari úr 7,6 í 8,4 prósent Greining Íslandsbanka spáir 8,4% verðbólgu í júnímánuði en tólf mánaða verðbólga mældist 7,6% í maí og hefur ekki mælst svo mikil frá því í mars 2010. Gangi spá bankans eftir væri um að ræða 1,0% hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrri mánuði. Viðskipti innlent 13.6.2022 14:35
Ferðagleði Íslendinga birtist í metkortaveltu erlendis Heildarvelta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 21,5 milljörðum króna í apríl og hefur ekki verið hærri frá því að mælingar hófust árið 1997. Jókst veltan um tæpa 12,4 milljarða frá sama tíma árið 2021. Viðskipti innlent 13.6.2022 10:12
„Þetta er fúlt“ Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair segir að það sé óneitanlega fúlt að hafa þurft að fella niður ferðir félagsins til London út mánuðinn. Hann vonast til þess að lausnir sem félagið hefur borið á borð breskra yfirvalda dugi til að leysa málið. Viðskipti innlent 12.6.2022 12:24
Stækkuðu útboðið vegna eftirspurnar Rúmlega fimm þúsund áskriftir bárust í almennu hlutafjárútboða Nova Klúbbsins hf., sem lauk á föstudaginn. Andvirði áskriftanna var um tólf milljarða króna og samsvarar það tæplega tvöfaldri eftirspurn, sé miðað við grunnstærð útboðsins. Viðskipti innlent 12.6.2022 11:35
Aðgerðirnar til þess fallnar að ala á sundrungu í stað samstöðu Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýkynntar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum helst bitna á grunnþjónustunni við landsmenn á meðan aðrir sleppi algerlega. Ríkisstjórnin sé að grafa undan velferðarþjónustu þar sem almennum borgurum er kastað fyrir bílinn. Viðskipti innlent 11.6.2022 21:08
Starfsmaður Búllunnar fékk skellinn í kjötmálinu Starfsmaður Búllunnar sem ákærður var fyrir tollalagabrot með því að veita rangar upplýsingar um innflutt kjöt þarf að greiða um fjörutíu milljónir í sekt vegna málsins. Sektin fellur þó niður haldi viðkomandi skilorð næstu tvö árin, meðal annars vegna þess að starfsmaðurinn var sú eina sem var látin svara til ábyrgðar fyrir málið, án þess þó að hafa haft af því nokkurn ávinning. Viðskipti innlent 11.6.2022 13:32
Íslenskur vafri sem heldur utan um tölvupóstinn, dagatalið og hlaðvörpin Íslenska fyrirtækið Vivaldi hefur uppfært netvafrann sinn og bætt við innbyggðu póstforriti, dagatali og lesara fyrir strauma. Hægt er að sameina marga tölvupóstreikninga í vafranum. Viðskipti innlent 10.6.2022 23:35
Síldarvinnslan kaupir rúmlega þriðjungshlut í norsku laxeldisfyrirtæki Samkvæmt fréttatilkynningu frá Síldarvinnslunni hf. hefur sjávarútvegsfyrirtækið gengið frá samkomulagi við Bremesco Holding Limited ásamt hópi hluthafa, sem eiga samanlagt 34,2%, í Arctic Fish Holding AS um kaup á hlutum þeirra í félaginu. Viðskipti innlent 10.6.2022 18:01
Stjórn Festar segist hafa haft frumkvæði að starfslokum Eggerts Festi hf. hafði forgöngu að samtali við Eggert Þór Kristófersson, forstjóra Festar, um starfslok hans á fimmtudag í síðustu viku. Félagið segir starfslok hans ekki tengjast Þórði Má Jóhannssyni, fyrrverandi stjórnarformanns félagsins. Viðskipti innlent 10.6.2022 17:34
Innköllun á núðlum frá Lucky Me! Í fréttatilkynningu frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kemur fram að Vietnam Market hafi í samráði við stofnunina stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Instant Noodles Pancit Canton Chili frá Lucky Me! Viðskipti innlent 10.6.2022 15:43
Brynhildur hættir sem upplýsingafulltrúi Rauða krossins Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, er að hætta eftir fimm ár í starfi sínu. Þar áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum svo ákvörðunin markar endalok áralangs tímabils. Það er ekki ljóst hvert hún fer næst. Viðskipti innlent 10.6.2022 15:19
Kviku heimilað að kaupa færsluhirðingarsamninga frá Rapyd og Valitor Samkeppniseftirlitið hefur lokið rannsókn sinni á kaupum Kviku banka á færsluhirðingarsamningum úr fórum sameinaðs félags Rapyd og Valitors. Bankanum er nú formlega heimilað að kaupa samningana en kaupin eru þó háð því að Seðlabankinn heimili Rapyd að kaupa Valitor. Viðskipti innlent 10.6.2022 15:17
Ekki í fyrsta sinn sem þingmaður stökkvi upp í pontu án þess að kynna sér málið Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi lífeyrissjóður ákváðu í gær að breyta áunnum lífeyrisréttindum sjóðfélaga þannig að réttindi eldri kynslóða aukast á kostnað hinna yngri. Þingmaður Viðreisnar segir þetta tugmilljarða millifærslu frá réttindum yngra fólks til þess eldra en í sameiginlegri grein Benedikts Jóhannessonar og framkvæmdastjóra sjóðanna tveggja segir að breytingin stuðli að jafnræði milli sjóðfélaga. Viðskipti innlent 10.6.2022 13:32
Niceair aflýsir öllu Bretlandsflugi í júní Norðlenska flugfélagið Niceair mun aflýsa fyrirhuguðum ferðum félagsins frá Akureyri til Bretlands í júní. Viðskipti innlent 10.6.2022 12:27
Fimm milljarða fjárfesting til málmleitar á Grænlandi Nokkrir stærstu auðlinda- og vogunarsjóðir heims munu taka þátt í fimm milljarða króna fjárfestingu í leyfum AEX Gold á Suður-Grænlandi til að leita að og vinna efnahagslega mikilvæga málma, svo sem kopar, nikkel og aðra svokallaða tæknimálma. Viðskipti innlent 10.6.2022 11:51
Skáluðu í Kristal eftir að Ölgerðin var hringd inn í Kauphöllina Forstjóri Ölgerðarinnar segist sannfærður um að allir þeir sjö þúsund nýju hluthafar félagsins muni haga sér eins og erindrekar þess. Hann hringdi félagið inn í Kauphöllina í morgun. Viðskipti innlent 9.6.2022 22:20
Faraldursveiking gengin til baka og spá frekari hækkun Íslenska krónan hefur styrkst verulega frá því að hún var hvað veikust undir lok árs 2020 þegar áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru gætti hvað mest. Kostar evran núna það sama og fyrir faraldurinn. Viðskipti innlent 9.6.2022 17:07
Kauphöllin með starfslok Eggerts til skoðunar Kauphöllin er með starfslok Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra Festar til skoðunar. Staðhæfingar félagsins um að Eggert hafi sagt starfi sínu lausu virðast ekki halda vatni. Viðskipti innlent 9.6.2022 16:41