
Viðskipti erlent

Nokia segir upp tæplega 2.000 manns
Finnski farsímarisinn Nokia ætlar að segja upp tæplega 2.000 manns á næstunni. Er þetta gert í hagræðingar- og sparnaðarskyni.

Hlutir í Debenhams falla eftir slæmt uppgjör
Hálfsársuppgjör Debenhams var verra en menn gerðu sér vonir um en það nær til síðustu mánaðarmóta. Sökum þessa féllu hlutir í Debenhams um 12% í morgun, niður í 40,5 pens.

Óvíst hvaða áhrif gjaldþrot Baugs hefur á Saks
Óvíst er hvaða áhrif gjaldþrot Baugs hefur á Saks verslunarkeðjuna í Bandaríkjunum en Baugur á 8,5% í Saks.

Bréf í Asíu hækkuðu þriðja daginn í röð
Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði þriðja viðskiptadaginn í röð sem er lengsta samfellda hækkunartímabil í sjö vikur. Bréf nokkurra banka hafa hækkað þar sem lækkaður útlánakostnaður þeirra hefur bætt afkomutölur með þeim hætti að síður þarf að afskrifa skuldir þegar lántakendur hafa betri tök á að standa í skilum.

Vill koma í veg fyrir bónusgreiðslur AIG
Barack Obama forseti Bandaríkjanna hefur látið íljós reiði sína á 165 milljóna dollara bónusgreiðslunum sem yfirmenn AIG tryggingarrisans hafa fengið greidda, en fyrirtækinu var bjargað af ríkinu frá gjaldþroti.

Hlutir í SAS hækka gífurlega – greinendur eru gáttaðir
Hlutir í SAS á mörkuðum á Norðurlöndunum hafa hækkað gífurlega í dag eða á bilinu 30 til 50%. Greinendur eru gáttaðir á þessari þróun enda ekkert í kortunum sem styður þessar hækkanir.

Cherie Blair ráðin til að lögsækja RBS og sir Fred Goodwin
Cherie Blair, fyrrum forsætisráðherrafrú Bretlands, hefur verið ráðin til að stjórn lögsókn gegn Royal Bank of Scotland (RBS) og sir Fred „The Shred" Goodwin fyrrum forstjóra bankans.

Heimsmarkaðsverð á olíu hríðfellur á mörkuðum í dag
Verð á hráolíu hríðféll á mörkuðum í kjölfar þess að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, ákváðu að fresta enn ákvörðun um að hægja á framleiðslu sinni.

Skuldir Manchester United seldar á tombóluverði
Skuldir enska fótboltafélagsins Manchester United eru nú seldar á tombóluverði þar sem lánadrottnar félagsins eru óttaslegnir yfir skuldastöðu félagsins. Forgangslán félagsins ganga nú kaupum og sölum á 70% af nafnvirði.

Fjárfestar í Debenhams styðja hlutafjáraukningu
Fjárfestar í Debenhams eru reiðubúnir til að styðja hlutafjáraukningu í verslunarkeðjunni verði hún tilkynnt samhliða ársuppgjöri keðjunnar í þessari viku.

Verðbréfamiðlun Straums í London er til sölu
Teathers, verðbréfamiðlun Straums í London er til sölu og er vonast til að nýr eigandi taki við henni fyrir lok þessarar viku.

Asíubréf hækkuðu
Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun og voru það bréf hátæknifyrirtækja og bílaframleiðenda sem hækkuðu mest. Japanski Mitsubishi-bankinn hækkaði um sex prósent og bréf bílaframleiðandans Mazda hækkuðu um tæplega 10 prósent en Japanar hafa nú á ný öðlast bjartsýni á að bílasala þeirra á erlendri grundu aukist.

Olíuríkin draga ekki úr framleiðslu
Samtök olíuframleiðsluríkja, OPEC, ætla ekki að minnka olíubirgðir og ná þannig fram hækkun á heimsmarkaði. Þess í stað verður lögð áhersla á að koma í veg fyrir að aðildarríki samtakanna framleiði olíu umfram kvóta.

AIG dregur úr bónusgreiðslum
Bandaríska trygginga- og fjárfestingafélagið AIG Investments hefur ákveðið að draga úr bónusgreiðslum til starfsmanna. Greiðslur til lykilstjórnenda verða lækkaðar um 30%. Þetta kemur fram í bréfi sem Edward Liddy, stjórnarformaður AIG, skrifaði Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna.

Leita leiða til að hækka olíuverð
Samtök olíuríkja koma saman til fundar nú um helgina til þess að leita leiða til að minnka olíubirgðir og hækka þannig verðið á heimsmarkaði. Mikil andstaða er við það hjá neysluríkjunum.

Íranir vilja minni olíu
Olíumálaráðherra Írans lagði til á fundi OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, að olíuríkin dragi enn frekar úr framleiðslu sinni. ,,Það er alltof mikil olía á markaðnum," sagði Gholam Hossein Nozari, olíumálaráðherra Írans, við blaðmenn í Vín í Austurríki þar sem fundurinn fer fram.

Stærstu iðnveldin funda um efnahagsmál
Nú um helgina funda fjármálaráðherrar og seðlabankastjórar 20 helstu iðnvelda í Bretlandi. Ríkin endurspegla rúmlega 80% af efnahag heimsins.

Íslensku bankarnir bjarga All Saints frá þroti
Tískuvörukeðjan All Saints hefur verið bjargað frá þroti eftir að íslensku bankarnir Kaupþing og Landsbankinn, aðallánadrottnar All Saints, féllust á fjárhagslega endurskipulagingu keðjunnar.

Whelan ræðir við JJB Sports um kaup á líkamsræktarstöðvum
Íþróttavörukeðjan JJB Sports á nú í viðræðum við Dave Whelan, stofnanda keðjunnar og núverandi eigenda Wigan Athletic um sölu á líkamsræktarstöðvum JJB Sports.

Baugsmenn stofna nýtt félag í Bretlandi
Forstjórar Baugs í Bretlandi, þeir Gunnar Sigurðsson og Don McCarthy, hafa stofnað nýtt félag í Bretlandi undir nafninu Tecamol. Jón Ásgeir Jóhannesson er sagður tengjast félaginu.

Danski skatturinn notar Al Capone aðferðir gegn glæpahópum
Danski skatturinn vinnur nú allan sólarhringinn með lögreglunni í Danmörku við að koma Vítisenglum og öðrum glæpahópum bakvið lás og slá. Samkvæmt Jyllands Posten notar skatturinn Al Capone aðferðir í baráttu sinni, það er reynir að ná til glæpamannanna í gegnum skattsvik þeirra og efnahagsbrot.

Heimsmarkaðsverð á olíu í mikilli uppsveiflu
Heimsmarkaðsverð á olíu var í mikilli uppsveiflu á mörkuðum í gær. Þannig hækkaði bandaríska léttolían um 11% yfir daginn og endaði í tæpum 47 dollurum á tunnuna í gærkvöldi.

Enn hækka hlutabréf í Asíu
Hlutabréf hækkuðu í verði á mörkuðum Asíu í morgun eftir að stjórnvöld í Japan og Kína blésu til frekari aðgerða gegn efnahagslægðinni.

Hlutabréf héldu áfram að hækka á Wall Street
Hlutabréf héldu áfram að hækka í kauphöllinni á Wall Street í New York í dag. Þetta þriðja daginn í röð sem þau hækka almennt en helstu hlutabréfavísitölur tóku mikla dýfu í seinustu viku.

Aðhaldsaðgerðir og niðurskurður hjá Nordic Partners
Fjármálakreppan hefur gert það að verkum að aðhaldsaðgerðir og niðurskurður eru nú í gangi hjá Nordic Partners. Félagið á hótelin D´Angleterre, Kong Frederik og Front ásamt veitingahúsinu Copenhagen Corner í Danmörku.

Útlán hjá NIB slógu öll met í fyrra
Útlán hjá Norræna fjárfestingarbankanum (NIB) slógu öll met í fyrra og námu rúmum 2,7 milljörðum evra eða um 386 milljörðum kr. Til samanburðar má nefna að útlán bankans árið 2007 voru 2,2 milljarðar evra.

Græddi tugi milljarða á breska bankahruninu
Vogunarsjóður bandaríska fjárfestisins John Paulson græddi 311 milljónir punda, eða um 50 milljarða kr. á hruni breska bankakerfisins í vetur. Og þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Paulson græðir tugi milljarða á því að skortselja hlutabréf í breskum bönkum.

Milljarðamæringar Forbes: Napurt ár hjá Björgólfi Thor - myndir
Enginn Björgólfur Guðmundsson er á lista Forbes tímaritsins yfir ríkustu einstaklinga veraldar. Forbes tekur saman lista yfir þá sem eru metnir á að minnsta kosti einn milljarð bandaríkjadala. Talið er að tvö þúsund milljarðar hafi horfið úr vösum þessa hóps sem telur nú 793 einstaklinga.

Hróarskelduhátíð veitir Íslendingum og Svíum neyðarhjálp
Aðstandendur Hróarskelduhátíðarinnar í Danmörku leita nú leiða til að veita Íslendingum og Svíum neyðarhjálp í tengslum við hátíðina næsta sumar.

Danski bankatryggingasjóðurinn þarf að borga vegna Straums
Vegna hruns Straums mun danski bankatryggingasjóðurinn (Indskydergarantifonden) þrufa að greiða dönskum sparifjáreigendum hluta af innistæðum sínum í bankanum.