Viðskipti erlent

Hlutabréf í bönkum hækka um allan heim

Hlutabréf í bönkum og fjármálafyrirtækjum hafa hækkað mikið á mörkuðum í morgun, eftir að ákveðið var að gefa alþjóðlegum bönkum lengri tíma til þess að styrkja efnahag sinn, en tilkynning þess efnis var birt í gær. Samkvæmt fyrstu drögum nefndar á vegum Alþjóðagreiðslubankans í Basel, sem Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, seðlabanka Bretlands, fer fyrir.

Viðskipti erlent

Atvinnuleysið stendur í stað

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 7,8 prósent í desembermánuði og hefur atvinnuleysið haldist óbreytt frá því í september. Það þykir mikill sigur fyrir Barack Obama, forseta landsins, að atvinnuleysið sé ekki að aukast en um 12,2 milljónir manna eru án atvinnu. Eitt af baráttumálum Obama í forsetakosningunum í haust var að minnka atvinnuleysið. Til samanburðar er atvinnuleysi á Ísland 5,4 prósent en um mitt ár 2009 var atvinnuleysið hér landi um átta og hálft prósent.

Viðskipti erlent

App vikunnar

Á nýju ári strengja margir áramótaheit. Erfitt getur verið að halda þessi áramótaheit og drífa sig út að hlaupa ef engin hvatning er fyrir hendi nema aukakíló og slen. Þá er ráð að kynnast fjölmörgum æfinga- og hlaupaöppum fyrir snjallsíma.

Viðskipti erlent

AGS segir að meira þurfi til í Bandaríkjunum

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) telur að samkomulagið sem kom í veg fyrir svokallað fjárlagaþverhnípi í Bandaríkjunum nú um áramótin sé ekki nægileg aðgerð til þess að takast á við efnahagsörðugleika landsins og fjárlagahalla þess til lengri tíma. Mun meira þurfi að koma til.

Viðskipti erlent

Markaðir bregðast vel við samkomulagi í Bandaríkjunum

Verðbréfamarkaðir víða um heim hafa brugðist vel við samkomulagi í bandaríska þinginu sem kemur í veg fyrir að svonefnt fjárlagaþverhnípi hafi myndast, en ef samkomulagið hefði ekki náðst hefðu opinber fjármál bandaríska ríkisins komist í uppnám. FTSE vísitalan breska hækkaði um 1,5 prósent, DAX vísitalan þýska um 1,6 prósent og CAC 40 vísitalan franska um 1,4 prósent. Nær allsstaðar hækkuðu vísitölur og má rekja þær til samkomulagsins í Bandaríkjunum, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Viðskipti erlent

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarhækkað frá því í gærkvöldi en ástæðan fyrir þessum hækkunum eru að báðar deildir Bandaríkjaþings hafa samþykkt frumvarp sem forðaði landinu frá svokölluðu fjárlagaþverhnípi.

Viðskipti erlent

Fjárlagaþverhnípið blásið af í nótt

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt frumvarpið sem kemur í veg fyrir svokallað fjárlagaþverhnípi í Bandaríkjunum. Öldungadeild þingsins samþykkti þetta frumvarp með miklum meirihluta í gærmorgun. Í fulltrúadeildinni voru 257 meðmæltir frumvarpinu en 167 voru á móti.

Viðskipti erlent

Verslun að stóreflast í Rússlandi

Verslun í Rússlandi hefur stóreflst á skömmum tíma og hafa verslanir sprottið upp, einkum í nágrenni höfuðborgarinnar Moskvu. Stórar verslunarmiðstöðvar hafa verið byggðar á undanförnum árum og sér ekki fyrir endanum á uppbyggingartímabilinu, að því er fram kemur í grein New York Times um verslun í Rússlandi.

Viðskipti erlent

Fréttaskýring: Þræðir seðlabankamanna liggja víða

Þræðir margra af valdamestu seðlabankastjórum heimsins liggja saman í gegnum alþjóðlegt samstarf seðlabanka, sem hefur stóraukist eftir að þrengja tók að fjármálamörkuðum um allan heim, um mitt ár 2007. Frá haustmánuðum 2008 hefur samstarfið aukist jafnt og þétt, ekki síst í gegnum starfsemi Alþjóðagreiðslubankans í Basel.

Viðskipti erlent

Bankia er minna en einskis virði

Virði stærsta banka Spánar, Bankia, er talið vera neikvætt um 4,2 milljarða evra, eða sem nemur um 680 milljörðum króna. Eigið fé bankans er neikvætt um fyrrnefnda fjárhæð, samkvæmt gögnum frá sérstökum björgunarsjóði fyrir bankakerfi Spánar, sem breska ríkisútvarpið BBC vitnar til í frétt um málið

Viðskipti erlent

Forstjóri Apple fær 4,2 milljónir dala í laun - lækka um 99 prósent milli ára

Tim Cook, forstjóri Apple, fékk samtals 4,2 milljónir Bandaríkjadala í launabónus vegna starfsemi Apple á þessu ári. Það er upphæð sem svarar til tæplega 550 milljóna króna. Það er smánarupphæð í samhengi við heildarlaun hans í fyrra, en þá var hann launahæsti forstjóri fyrirtækis í heiminum, fékk samtals 378 milljónir Bandaríkjadala í laun, eða næstum 50 milljarða króna. Laun Cook lækkuðu því um næstum 99 prósent milli ára. Stærsti hluti launa Cook í fyrra voru eignarhlutir í Apple, sem stjórn fyrirtækisins ákvað að afhenda honum fyrir vel unnin störf.

Viðskipti erlent

Skuldir Bandaríkjanna ná hámarki á nýársdag

Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir að það verði að grípa til róttækra aðgerða til þess að ríkissjóður geti staðið við skuldbindingar sínar og ríkið fari ekki á hausinn. Að kvöldi nýársdags munu skuldir Bandaríkjanna náð 16400 milljörðum bandaríkjadala, en það var það takmark sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafði sagt að það mætti ná. Fari skuldir ríkissjóðs yfir þetta mark mun ríkið þurfa að grípa til alvarlegra aðgerða sem fela sér niðurskurð og skattahækkanir.

Viðskipti erlent

Toyota greiðir 130 milljarða vegna bilana

Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur samþykkt að greiða 1,1 milljarða dala, jafnvirði um 130 milljarða króna, í sektargreiðslu gegn því að fallið verði frá málsóknum á hendur fyrirtækinu, vegna bilana sem komu upp í nokkrum Toyota-bifreiðum árin 2009 og 2010 sem rekja mátti til galla. Þetta leiddi meðal annars til innkallana á mörg hundruð þúsund bílum frá fyrirtækinu um allan heim.

Viðskipti erlent