
Veður

Dálítil rigning eða slydda suðvestantil
Veðurstofan spáir breytilegri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en að smám saman snúist í norðaustanátt. Skýjað verður að mestu og dálítil él eða slydduél fyrir norðan og austan.

Víða bjart og fallegt sunnan- og vestantil
Lægð suður í hafi og víðáttumikil hæð yfir Grænlandi beina nú norðaustlægum vindum yfir landið, sums staðar strekkingi, en annars yfirleitt mun hægari.

Búast við lítilsháttar éljum á Ströndum og fyrir norðaustan
Víðáttumikil lægð vestur af Írlandi og hæð yfir Grænlandi beina til okkar norðaustlægri átt að mati Veðurstofunnar. Víða má búast við kalda eða strekkingi.

Víða kaldi og allhvasst suðaustantil
Víðáttumikil lægð suður í hafi og hæð yfir Grænlandi stýra veðrinu næstu daga. Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar.

Stormur við suðausturströndina
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag þar sem víða verður strekkingur en gengur í hvassviðri eða storm við suðausturströndina. Búið er að gefa út gula viðvörun fyrir Suðausturland.

Víða rigning eða slydda
Lægð suðvestur af landinu stýrir veðrinu í dag og má víða reikna með norðaustankalda eða strekkingi og rigningu eða slyddu með köflum. Spáð er snjókomu til fjalla norðanlands.

Víða rigning með köflum
Hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu í dag þar sem áttin verður suðvestlæg, yfirleitt gola eða kaldi og rigning með köflum. Þó má gera ráð fyrir að þurrt verði að mestu á Suðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld.

Suðvestlæg átt og víða dálítil rigning
Grunn lægð á Grænlandshafi og hæð fyrir sunnan land beina nú suðvestlægri átt til landsins og má gera ráð fyrir að verði víða kaldi eða strekkingur í dag, súld eða dálítil rigning. Þó verður þurrt að mestu um landið austanvert.

Hinn fallegasti dagur í vændum
Lægðin sem olli úrkomu á mestöllu landinu um helgina fjarlægt nú hratt og örugglega en mun enn valda norðvestan strekkingi með stöku éljum á norðaustanverðu landinu. Þar mun þó lægja og létta til nærri hádegi.

Lægð stjórnar veðrinu um helgina
Lægð nálgast landið úr suðri og kemur til með að stjórna veðrinu um helgina. Hún er þó grunn, sérílagi miðað við lægðir við Ísland á þessum árstíma.

Lægðardrag þokast suður
Yfir landinu er nú dálítið lægðardrag sem þokast suður. Gera má ráð fyrir dátítilli rigningu suðaustantil fram eftir degi. Það mun hins vegar létta heldur til vestanlands og í kvöld má búast við stöku éljum á norðausturhorninu.

Rigning eða slydda norðan- og austanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag þar sem yfirleitt má reikna með vindi þremur til tíu metrum á sekúndu.

Dregur úr vindi og ofankomu
Í dag er búist við því að það dragi smám saman úr vindi og ofankomu. Víða verði norðan gola síðdegis og dálítil væta á norðaustanverðu landinu, en bjartviðri sunnan- og vestanlands.

Svalt í veðri og gengur í blástur
Lægðardrag nálgast nú landið úr norðaustri og mun þá ganga í norðvestan blástur eða strekking með rigningu eða slyddu norðaustantil. Einnig má reikna með snjókomu til fjalla síðdegis.

Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit
Útlit er fyrir áframhaldandi rólegheit í veðrinu í dag þar sem spáð er hægviðri og léttskýjuðu víða um land. Þó má gera ráð fyrir skýjuðu veðri og að líkur séu á smá súld af og til við suðurströndina.

Milt veður en lægð nálgast
Hægfara hæðarhryggur teygir sig nú yfir landið og heldur því lægðuðum fjarri, en milda loftinu kyrru, um sinn að minnsta kosti.

Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri
Hæðarhryggur er nú yfir landinu sem þokast norðaustur og má yfirleitt reikna með hægum suðvestanvindum, en kalda og sums staðar strekkingi á Vestfjörðum.

Allt að 17 stig á Austurlandi
Nú er lægð á leið norðaustur yfir land með rigningu víða og mildu veðri, en þurru og hlýju á Austurlandi framan af degi. Hiti verður á bilinu sex til 17 stig og hlýjast austantil. Svo snýst í norðvestan golu eða kalda seinnipartinn, þá styttir upp sunnan- og vestanlands og kólnar í veðri.

Næsta lægð nálgast úr suðvestri
Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og er spáð björtu og fremur hlýju veðri á Norðaustur- og Austurlandi, en að verði skýjað og sums staðar smávæta í öðrum landshlutum.

Gular viðvaranir í hvassviðris
Það gengur í austlæga átt, átta til fimmtán metra en fimmtán til 23 metra á sekúndu sunnanlands í dag. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna vinds fyrir Suðurland og miðhálendið.

Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun
Gular veðurviðvaranir taka gildi á Suðurlandi og miðhálendi um og upp úr hádegi á morgun vegna hvassviðris. Á Suðurlandi er búist við austan og suðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu, hvassast undir Eyjafjöllum og í Selvogi þar sem vindhviður geta nálgast allt að 40 metrum á sekúndu.

Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands
Í dag verður norðan og norðvestan 5 til 10 metrar á sekúndu en 10 til 15 á austanverðu landinu framan yfir hádegi. Þá verður skýjað og rigning eða slydda norðaustanlands, jafnvel snjókoma inn til landsins, en styttir upp síðdegis. Yfirleitt bjart í öðrum landshlutum. Í kvöld á svo að lægja. Hiti verður líklega í dag á bilinu 3 til 12 stig og verður hlýjast sunnanlands.

Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis
Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi til hádegis í dag. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að hvasst verði fram yfir hádegi og rigning í flestum landshlutum en þurrt að kalla vestan- og norðvestantil. Seinnipart á að draga úr vindi og stytta upp. Hitastig verður líklega á bilinu fjögur til 12 stig og þá verður hlýjast á Suðausturlandi.

Gular viðvaranir vegna storms sunnantil
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna norðaustan hvassviðris eða storms á Suðurlandi og Suðausturlandi á morgun.

Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt
Lítil hæð er nú yfir landinu og verður víða léttskýjað og sólríkt í dag og vindur fremur hægur.

Þurrt og bjart nokkuð víða
Sérfræðingar Veðurstofunnar segja útlit fyrir þurru og björtu veðri nokkuð víða í dag þó að lítilsháttar skúrir gætu látið á sér kræla við Breiðafjörð, á Faxaflóa, á Reykjanesi og jafnvel vestantil á Suðurlandi einnig.

Norðanáttum beint til landsins
Lægðasvæði milli Íslands og Noregs og hæð yfir Grænlandi beinir nú norðanáttum yfir landið og verða þær allhvassar austantil, en má reikna með hvassviðri og sums staðar stormi suðaustanlands. Mun hægari vindur verður vestantil.

Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi
Gera má ráð fyrir að vindur fari í 35 metra á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi þar til eftir hádegi á morgun.

Kalt, blautt og hvasst
Veðurstofan gerir ráð fyrir strekkings norðanátt með rigningu á Norður- og Austurlandi í dag og slyddu eða snjókomu til fjalla. Sunnan heiða verður hins vegar yfirleitt bjart.

„Þetta er alvöru hret“
Appelsínugular viðvaranir vegna hvassviðris og snjókomu hafa verið gefnar út fyrir allt Norðurland annað kvöld og fram eftir þriðjudegi. Veðurfræðingur segir þetta ansi glögg veðurafbrigði en þó ekki í líkingu við fjárfellishretið haustið 2012.