Veður

Gul við­vörun vegna austan stórhríðar á mánu­dag

Lovísa Arnardóttir skrifar
Viðvörunin er í gildi fyrir landið allt.
Viðvörunin er í gildi fyrir landið allt. Veðurstofan

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna austan stórhríðar á landinu öllu á mánudag. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta á mánudagsmorgun og er í gildi þar til klukkan fjögur aðfaranótt þriðjudags.

Í viðvörun segir að það gangi austan 18 til 28 metra á sekúndu, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi.

„Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, einkum sunnan- og austantil. Hlýnar smám saman um kvöldið og fer að rigna sunnantil. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám,“ segir í viðvörun Veðurstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×