Tónlist

Nýrri plötu Emilíönu Torrini lekið á netið
Platan Tookah kemur út níunda september en Emilíana hyggur á tónleikaferðalag um Evrópu í nóvember

Lestu þetta ef þú elskar Pink Floyd
Samtals hefur Dark Side of the Moon verið á Billboard listanum í yfir 1500 vikur eða í tæp 30 ár. Í rólegri viku þá selst á milli 8000-9000 eintök af plötunni á viku bara í Bandaríkjunum.

Monáe syngur um vélmenni
Önnur hljóðversplata bandarísku R&B- og sálarsöngkonunnar Janelle Monáe, The Electric Lady, kemur út eftir helgi á vegum Wondaland Arts Society og Bad Boy Records, sem Sean "Diddy“ Combs stofnaði.

Útlendingar kaupa íslenskt indí
Vinsælasta platan hér á landi í sumar var This Is Icelandic Indie Music. Hún hefur setið í efsta sæti Tónlistans undanfarnar vikur og hefur, að sögn útgefandans Haralds Leví Haraldssonar hjá Record Records, selst í um þrjú þúsund eintökum.

Spila bestu lög Dire Straits í Hörpu
"Þetta verða frábærir tónleikar,“ segir tónleikahaldarinn Guðbjartur Finnbjörnsson. Hljómsveitin The Straits, sem er skipuð tveimur fyrrverandi meðlimum hinnar heimsfrægu Dire Straits, spilar í Eldborgarsal Hörpu 25. nóvember.

Biggi með lag í Hollywood-stiklu
Lagið Lost Control af fyrstu sólóplötu Bigga Hilmars, All We Can Be sem kom út fyrir síðustu jól, hljómar í stiklu við nýjustu mynd leikstjórans Kevin Macdonald, How I Live Now, sem verður frumsýnd á næstunni.

Verða með pissuflöskur í rútunni
Rokkararnir í Skálmöld leggja af stað í sex vikna tónleikaferðalag um Evrópu á fimmtudaginn.

Hera Björk beint í 20. sæti
Two Divas, EP plata með Heru Björku og Chiara fór beint í 20. sæti á iTunes listanum á Möltu. "Þetta er snilld. Það hefur nú gerst reglulega að lög sem maður syngur detta inn á lista hér og þar um heiminn.

Það er hundaæði á Íslandi
Lagið Glaðasti hundur í heimi skoðað yfir 100 þúsund sinnum á Youtube.

Húðfletta gesti með hávaða
Bubbi Morthens mætir með stjörnum prýdda rokksveit á hátíðina í Kaplakrika.

Undirbúningurinn stendur sem hæst
Undirbúningur fyrir Iceland Airwaves hófst í nóvember í fyrra. Fréttablaðið skyggndist á bak við tjöldin hjá starfsfólki hátíðarinnar.

Allt að 25 þúsund á tónleikum Of Monsters and Men
Tónleikarnir gengu að mestu leyti vel fyrir sig fyrir utan nokkra ölvaða einstaklinga.

Hlaðin lofi
Ný plata hljómsveitarinnar Hjaltalín, Enter 4, hefur hlotið frábæra dóma

Nýtt lag frá Paul McCartney
Fyrrverandi bítillinn og sjarmörinn Paul McCartney hefur nú sent frá sér nýja smáskífu sem heitir einfaldlega New og verður á samnefndri plötu hans sem kemur út 15. október næstkomandi.

Bitlaust bossaskak
Fjórir dagar eru nú liðnir frá umdeildu atriði Miley Cyrus á VMA-hátíð MTV-sjónvarpsstöðvarinnar og andköfin heyrast enn.

Jakob Frímann notaði sumarfríið til að taka upp plötu og semja lag með Steed Lord
Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður og miðborgarstjóri, dvaldi nýlega í Los Angeles við upptökur á nýrri plötu.

Eminem með nýja plötu
Von er á nýrri plötu frá rapparanum Eminem. Þeir sem horfðu á MTV-tónlistarverðlaunin á sunnudaginn ráku upp stór augu þegar rapparinn tilkynnti útgáfu plötunnar í auglýsingu sem birtist á meðan á hátíðinni stóð

Ásgeir Orri: Maður semur alltaf lag í þeim tilgangi að það verði gert að smáskífu
Lagið Disco Love, sem upptökuteymið Stop Wait Go samdi fyrir bresku stúlknasveitina The Saturdays, hefur vakið lukku. Áframhaldandi samstarf er í skoðun.

Anda að sér ómenguðu kántríi
"Það verður gaman að koma þarna og anda að okkur ómenguðu kántríi,“ segir Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur.

Aukatónleikar og leiksýning
Miðasala á tónleika Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu hófst í gærmorgun. Viðbrögðin voru það góð að ákveðið hefur verið að halda aukatónleika 29. nóvember.

Erum eins og ítölsk fjölskylda
Ævintýrið byrjaði í dansiballahljómsveitinni Tívolí á 8. áratugnum. Þar kviknað ást stjörnuparsins Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunnarssonar. Ávöxtur þeirrar ástar eru fjögur börn sem öll hafa fundið sinn farveg í tónlistinni eins og foreldrarnir.

35 þúsund hafa séð Mercury
Alls hafa 35 þúsund manns séð tónleika til heiðurs Freddie Mercury sem hafa verið haldnir hér á landi undanfarin ár. Fram undan eru tvennir tónleikar í Hofi á Akureyri sem verða báðir 5. október.

Stórtónleikar X977 og Bar 11 á Menningarnótt í þriðja sinn
"Núna verðum við með stærra svið, stærra hljóðkerfi og stærri bönd,“ segir Össur Hafþórsson á Bar 11.


Huggulegur maður
Rokkarinn Rúnar Þór Pétursson hefur skemmt landsmönnum um hverja helgi í brátt 30 ár. Hann verður ekki sextugur í haust.

Mömmurappið nýtur vinsælda
Rappsveitin Múfasa Makeover hefur vakið nokkra athygli fyrir lag sitt, Mömmurapp.

Meira popp og indí hjá 1860
Hljómsveitin 1860 hefur gefið út sína aðra plötu, Artificial Daylight.

Helgi Björns: Þetta er alveg frábært band
Helgi Björnsson spilar með þýskri hljómsveit á tónleikum í Eldborg í október.

Nýtur forréttinda í tónlist
Macklemore kveðst meðvitaður um þau forréttindi sem hann nýtur sem hvítur tónlistarmaur.

Nítján ára undrabarn
Fyrsta plata King Krule kemur út á nítján ára afmælisdegi hans á laugardaginn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð ótrúlegum þroska sem tónlistarmaður.