
Tíska og hönnun

Kærustupar og tískusálufélagar gefa út einstaka fatalínu
„Við höfum þekkst í um fimmtán ár og erum við fyrst og fremst bestu vinir. Við vinnum vel saman, virðum skoðanir hvors annars og á milli okkar ríkir mikið traust,“ segir parið Díana Breckmann og Bjarki Geirdal. Þau voru að fara af stað með fatamerki undir nafninu Harajuku Appparel. Blaðamaður ræddi við Díönu.

Tískugyðjur komu saman í Kaupmannahöfn
Það var hátísku líf og fjör í Kaupmannahöfn í síðastliðinni viku þar sem hin sívinsæla tískuvika fór fram. Vikan var stærri en nokkru sinni fyrr og sóttu stórstjörnur á borð við Pamelu Anderson sýningarnar og tóku púlsinn á norrænu tískunni.

Klæðir sig upp til að komast í betra skap
Tískuspekúlantinn Haukur Ísbjörn sér um hlaðvarpið Álhattinn ásamt vinum sínum en þar er því gjarnan varpað fram að hann sé einn best klæddi maður landsins. Haukur sækir innblástur til tíunda áratugarins, nýtir hvert tækifæri sem gefst til þess að klæða sig upp og er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískan á Ólympíuleikunum
Sumarólympíuleikarnir 2024 verða settir með pomp og prakt í dag í París. Tískurisinn Louis Vuitton tók forskot á sæluna og bauð í fyrirpartý fyrir leikana í gær í höfuðstöðvum sínum þar sem stórstjörnur, hátískubransinn og atvinnu íþróttafólk kom saman í sínu alflottasta pússi.

Finnst yfirleitt erfitt að klæða sig upp
Margrét Einarsdóttir búningahönnuður hefur komið víða að og sér meðal annars um klæðaburð karakteranna í stórmyndinni Snertingu. Tíska hefur alltaf verið stórt áhugamál hjá henni og er auðvitað órjúfanlegur hluti af hennar lífi en Margrét er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískuheimurinn í London setti sterkan svip á stílinn
Samfélagsmiðlastjórinn og laganeminn Hekla Gaja Birgisdóttir segir klæðaburðinn hennar helstu listrænu útrás í mjög praktísku námi en hún varð ástfangin af fjölbreytileika tískunnar þegar hún bjó í London. Hún er með einstakan og öðruvísi stíl, verslar mikið notuð föt og er óhrædd við sterka og áberandi liti. Hekla Gaja er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Í smávegis vegferð að líta á ADHD-ið mitt sem fallegan hlut“
Söngkonan og fagurkerinn Viktoría Kjartansdóttir er nýflutt heim frá París og vinnur nú við kvikmyndagerð. Hún var að ljúka verkefni sem þriðji aðstoðarleikstjóri í þáttum um Vigdísi Finnbogadóttur sem Vesturport framleiðir. Viktoría er stöðugt á ferðinni og því alltaf með ýmislegt í töskunni sinni en hún opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Myndaveisla: Aron Can, Issi og Patti í tískupartýi ársins
Síðastliðinn fimmtudag kynnti 66°Norður nýju samstarfslínu sína við íslenska fatamerkið Reykjavik Roses. Tilhlökkun tískuunnenda var gríðarleg og mikil röð myndaðist upp Laugarveginn fyrir opnun.

Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði
Ofurþjálfarinn og glæsikvendið Lóló Rósenkranz er með einstakan og litríkan stíl sem vekur athygli en appelsínugulur er hennar uppáhalds litur. Lóló er á stöðugri hreyfingu, er með fólk í einkaþjálfun í World Class, starfar sem fararstjóri hjá Úrval útsýn, kennir pílates og skriðsund svo eitthvað sé nefnt og er sömuleiðis dugleg að klæðast skemmtilegum íþróttafatnaði. Lóló er viðmælandi í Tískutali.

Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn
„Eftir margra ára erfiðisvinnu og enn meiri ákefð síðasta árið þar sem nærri hver dagur, kvöld og oft nótt hefur verið eytt í þetta er það bara frábært að fá viðurkenningu úr mismunandi áttum. Við erum bæði svo þakklát að hönnunargeirinn sjái okkur og vinnuna sem við höfum lagt í þetta,“ segir húsgagnasmiðurinn Jón Hinrik Höskuldsson sem var að ljúka meistaranámi í Kaupmannahöfn og vann til eftirsóttra verðlauna.

„Með 40 prósent af óþarfa með mér og virðist ekki læra af því“
Ljósmyndarinn Elísabet Blöndal er vön því að vera á ferðinni og sökum vinnu sinnar er hún gjarnan með bæði stórar og þungar töskur með sér. Hún opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

„Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“
Markaðsstjórinn og tískuunnandinn Tania Lind Fodilsdóttir elskar takmarkaleysi tískunnar og eru einstakar og áberandi flíkur í miklu uppáhaldi hjá henni í bland við stílhreinan klæðaburð. Tania Lind er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Enn að ná sér niður eftir að hafa hitt Miuccia Prada
Feðginin Anna María Þorsteinsdóttir og Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson eru bæði tvö miklir tískuunnendur. Í vor barst þeim draumaboð á tískusýningu risans Prada og þurftu þau ekki að hugsa sig tvisvar um þó að þeim hafi reynst mis erfitt að velja klæðnað fyrir þennan stóra viðburð. Blaðamaður ræddi við Önnu Maríu um þennan eftirminnilega dag, þar sem þau rákust meðal annars á hin einu sönnu Miuccia Prada og Raf Simons.

Leyfir bumbunni að njóta sín á meðgöngunni
Fyrirsætan og förðunarmógúllinn Hailey Bieber er tískufyrirmynd margra en tæplega 53 milljónir fylgja henni á samfélagsmiðlinum Instagram. Hailey og Justin Bieber eiginmaður hennar eiga von á barni og hefur meðgöngustíll hennar vakið mikla athygli, þar sem hún fer eigin leiðir og er ótrúlega smart.

Sjóðheit trend beint af tískupallinum í París
Tískurisinn Chanel afhjúpaði nýja hátískulínu sína fyrr í dag á glæsilegri sýningu í óperuhúsinu Palais Garnier í París.

Skvísuviðburður þar sem hátískuflíkum rigndi yfir gesti
Fatamarkaður Regn var haldinn með pomp og prakt um síðastliðna helgi á Hafnartorgi þar sem tískuunnendur, skvísur landsins og nokkrir hundar sameinuðust í að skoða ýmsar gersemar. Regn er forrit sem endurselur notuð föt og ákváðu forsvarskonur Regn að færa þetta frá skjánum yfir í raunheima um stund.

Þotulið listagyðja fögnuðu að sænskum stíl
Margar af ofurskvísum landsins komu saman síðastliðið miðvikudagskvöld í svokallaðri Miðsumar veislu Ginu Tricot, Essie og Elísabetar Gunnars en viðburðurinn dregur innblástur til Midsommer hátíðarinnar sem haldin er um öll Norðurlönd.

„Ef ég væri ekki prestur væri gaman að vera poppstjarna“
Presturinn og verðandi biskup Íslands sr. Guðrún Karls Helgudóttir er með glæsilegan og einstakan stíl og segir tískuna mikilvægt tjáningarform fyrir sér. Hún þekkir stíl sinn vel, veit upp á hár hverju hún vill klæðast og er hrifin af íslenskri hönnun. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir er viðmælandi í Tískutali.

„Mér þykir alltaf vænt um hlutina mína“
Stílistinn, jógakennarinn og Swimslow eigandinn Erna Bergmann er mikil smekkskona sem er oft með marga bolta á lofti og tvær til þrjár töskur á sér hverju sinni. Uppáhalds taskan er einstakur erfðagripur frá látinni frænku og það má stundum finna orkusteina í renndum hólfum hjá Ernu. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti
Félagsmiðstöðvarforstöðukonan og tískuáhugakonan Yrsa Ósk Finnbogadóttir er með einstakan og líflegan stíl og sækir mikið í skandinavíska hönnun. Hún er viðmælandi í Tískutali.

Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðarlegri“ fatalínu Heiðar
Förðunarfræðingurinn Heiður Ósk Eggertsdóttir fagnaði nýrri fatalínu með pomp og prakt í gærkvöldi. Fatalínan AndreA x Heiður er unninn í sameiningu við hönnuðinn Andreu Magnúsdóttir og mættu ofurskvísur landsins í teitið sem haldið var í verslun Andreu í Hafnarfirði.

Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína
Tískuáhugakonan og ofurskvísan Selma Lind er með einstakan stíl og hefur saumað skemmtilegar flíkur á sjálfa sig. Í fyrra eignaðist Selma sitt fyrsta barn og segist hún nú vera að finna sinn stíl upp á nýtt eftir meðgönguna. Hún er viðmælandi í Tískutali.

„Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“
Leikkonan og tónlistarkonan Elín Sif Hall hefur verið áberandi í íslensku menningarlífi undanfarin ár, bæði í tónlistinni og á stóra skjánum. Hún skein skært á rauða dreglinum í Cannes á dögunum í fötum frá tískurisanum Chanel og býr yfir einstökum stíl sem vekur athygli. Elín Sif Hall er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískan á körfuboltaleiknum
Það var gríðarleg stemning og mikil spenna á Hlíðarenda í gær þegar að Valur varð Íslandsmeistari í körfubolta karla eftir sigur á Grindavík. N1 höllin var troðfull af stuðningsmönnum sem margir hverjir nýttu tækifærið til þess að klæða sig upp.

Mikil væntumþykja í garð lyklakippunnar
Markaðsfræðingurinn, áhrifavaldurinn og tískuáhugakonan Sigríður Margrét er dugleg að finna gersemar á nytjamörkuðum og þar á meðal fallegar töskur. Hún opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Alltaf að stela fötum af kærastanum
Fyrirsætan Nadía Áróra Jonkers elskar að klæða sig upp og gefur sér góðan tíma til að skipuleggja klæðnað fyrir þemapartý. Hún hefur engin boð eða bönn þegar að það kemur að tískunni, er með fjölbreyttan og einstakan stíl, fer sínar eigin leiðir og heldur ekki aftur af sér í fatavali. Nadía Áróra er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Allt frá ofnæmistöflum yfir í míní gjaldeyrissjóð“
Hönnuðurinn og tískuskvísan Katrín Alda eigandi KALDA er mikil töskukona og elskar töskur sem virka jafn vel á mánudagsmorgni og laugardagskvöldi. Katrín Alda opnar töskuna sína fyrir lesendum Vísis í fasta liðnum Hvað er í töskunni?

Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði
Glamúr, íslensk hönnun, látlaust eða litaglatt. Stíll hjá konunum sem eru í forsetaframboði árið 2024 er eins fjölbreyttur og þær eru margar og það getur sannarlega verið áhugavert að fylgjast með framboðsstíl hvers og eins.

„Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“
Tískuáhugamaðurinn og lífskúnstnerinn Jón Breki Jónas er óhræddur við að tjá sig í gegnum tískuna og fer sínar eigin leiðir í klæðaburði. Jón breki er alinn upp í Danmörku en hefur verið búsettur á Íslandi síðastliðin sjö ár. Hann lifir og hrærist í tískuheiminum en stefnir á markaðsfræði í danska háskólanum KEA og elskar að ferðast. Jón Breki er viðmælandi í Tískutali.

Alltaf með jager skot í töskunni
Útvarpskonan og áhrifavaldurinn Guðrún Egilsdóttir, jafnan þekkt fyrir Instagram nafn sitt Gugga í gúmmíbát, gengur með sólgleraugu hvort sem það er sól eða ekki og passar að vera alltaf með lítið skot í töskunni þegar að hún fer út á lífið. Hennar stærsti ótti er að lykta illa þannig að hún er sömuleiðis með ilmvatnið á sér en Gugga opnar tösku sína fyrir lesendum Vísis í fasta liðnum Hvað er í töskunni?