
Skoðun

Orkunýlendan Ísland?
Kapphlaupið um Ísland er í algleymingi, náttúru og auðlindir þjóðarinnar. Um landið sveima lukkuriddarar og leppar erlendra stórfyrirtækja og ríkjasambanda, ásamt fleira landsölufólki og íslenskum meðhlauppsmönnum.

Ég vil ekki þennan veruleika
Enn eitt barnið hefur verið myrt. Lítil 10 ára stúlka úr hverfinu mínu. Ég fékk illt í hjartað þegar ég sá frétt um að barn hafi verið myrt af foreldri sínu. Það sem var mér efst í huga var að biðja til guðs að þessi litla stúlka hafi ekki upplifað angist og sársauka á síðustu augnablikum lífs síns. Það næsta var það sama og ég hef hugsað í hin tvö skiptin á undan þegar barn hefur verið myrt á árinu - að enginn sem ég þekki tengist þessu barni persónulega. Hversu hryllilegt áfall að missa barn í lífi sínu á svona skyndilegan og ofbeldisfullan hátt. Ég óska engum svoleiðis sársauka og sálarkvalir.

Grímulaus grænþvottur
SA keyptu sér skoðanakönnun. Spurt var: „Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aukinni grænni orkuframleiðslu á Íslandi?“ Að sögn, var hugtakið „græn orkuframleiðsla“ notað að aðgreina virkjun umhverfisvænna og endurnýjanlegra orkuauðlinda frá raforkuframleiðslu með bruna jarðefnaeldsneytis.

Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði?
Ímyndum okkur að vírus breiddist yfir jörðina og allir veðurfræðingar, jöklafræðingar, sjávarlíffræðingar ásamt gestum á COP ráðstefnum vöknuðu einn daginn og gætu bara sagt: EBITA EBITA! EBITA. Alveg sama hver spurningin væri, þá væri svarið bara EBITA! Öllum væri ljóst að þeir væru fallnir fyrir einhverjum Zombí-vírus.

Skortur á serótónín
Mikil umræða hefur verið upp á síðkastið um skerta samkennd og hnignun í siðferði í samfélaginu. Eins og að fólk vakni í smá stund þegar meðbræður og systur á öllum aldri eru myrt og svikin. Í þessu litla samfélagi sem við búum í eru allir á einhvern hátt tengd svo allir þekkja einhvern sem allavega þekkir einhvern sem upplifir missir og ómælda sorg. Þessi sorg vekur okkur, opnar augu okkar í eitt augnablik þar sem við spyrjum gildra spurninga. Af hverju gerast þessir hlutir og hvar liggur orsakasamhengið?

Þegar sorgin bankar upp á
Sá sorglegi atburður sem átti sér stað þann 24 ágúst í miðborg Reykjavíkur er ungur maður ræðst á ungmenni með hníf sem leiddi til dauða ungrar stúlku fáum dögum síðar hefur valdið sorg um allt samfélagið og komið af stað miklum umræðum um unga fólkið okkar.

Halldór 21.09.2024
Skopmynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

Látum þá hlæja því þeir tapa hvort sem er
Ég ákvað að skrifa þessa grein fyrir alla sem orðið hafa verið fyrir einelti og öllu því ofbeldi sem fylgir. Þú ert ekki ein/n, því mjög margir eru með þér.

Alzheimer - mennska og mildi
Hinn 21. september er Alþjóðlegur dagur Alzheimer og mig langar að minna okkur öll á þau sem gleyma, þau sem eru greind með Alzheimer eða aðra tegund heilabilunar og hvað við hin getum gert til að efla lífsgæði þeirra.

Lýðheilsa bætt um 64 milljarða
Í vikunni var uppfærður sögulegur samgöngusáttmáli samþykktur í borgarstjórn Reykjavíkur. Svo ánægjulega vill til að þetta var gert í evrópsku samgönguvikunni. Samgöngusáttmáli sveitarstjórnanna á höfuðborgarsvæðinu og ríkisvaldsins er sannkallað tímamótasamkomulag.

Er krónan að valda átökum á milli kynslóða?
Eins og hlutirnir hafa verið að þróast í samfélaginu undanfarin ár með auknum kröfum á stjórnvöld og sveitarfélög er að mínu viti að byggjast upp mikil spenna á milli kynslóða. Þessi spenna lýsir sér þannig að unga fólkið sem er að koma sér af stað í samfélaginu með því að stofna fjölskyldur kallar eftir meiri og meiri stuðningi opinberra aðila við að koma sér þaki yfir höfuðið og eignast börn. Nýjasta krafan sem fékkst fram eru fríar máltíðir í skólum óháð efnahag foreldra.

Varhugaverð þróun í leikskólamálum
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hefur verulegar áhyggjur af þróun leikskólamála í nokkrum sveitarfélögum hér á landi. Þróunin hefur einkennst af hagræðingu sem bitnar á þjónustu við foreldra á vinnumarkaði, t.d. með hvötum til styttri dagvistunar, færri opnunardögum og hærra gjaldi fyrir foreldra sem reiða sig á fullan leikskóladag fyrir börnin sín.

Bóf-ar(ion)?
Stundum virðist vera sem svo að ákveðnir aðilar séu bara alls ekki í neinu sambandi við það sem er að gerast út í samfélaginu. Þá er ég auðvitað að tala um bankana.

Þetta er ekki allt að koma með fjárlagafrumvarpinu
Fjárlagafrumvarpið dregur ekki úr verðbólguvæntingum, eftirspurn og framboðsskorti á húsnæði fyrir venjulegt fólk. Ríkisfjármálunum er ekki beitt gegn verðbólgunni, aðhald minnkar og hallarekstur dregur ekki úr verðbólgu.

Ómarktæk skoðanakönnun
Með fullri virðingu fyrir Gallup, þá er ekkert hægt að lesa út úr svörum við spurningunni „Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aukinni grænni orkuframleiðslu á Íslandi?“

Ef Trump tapar kosningunum…
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru að verða spennuþrungnari dag frá degi. Ég sé að allir helstu fjölmiðlar á Íslandi eru með sérstaka umfjöllun um kosningarnar þar sem fleiri fylgjast með fréttum og það eru aðeins nokkrar vikur til þriðjudagsins 5. nóvember, þá er kjördagur.

Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael
Eftir heilt ár af linnulausum og grimmilegum hernaði Ísraels gagnvart Palestínumönnum getur alþjóðasamfélagið ekki setið hjá lengur. Brýnt er að ríki heims taki sig saman um aðgerðir sem setja raunverulegan þrýsting á ísraelsk stjórnvöld.

Áherslur ráðherra skipta máli
Ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um að höfuðstöðvar nýrrar umhverfis- og orkustofnunar verði staðsettar á Akureyri felur í sér mikil tækifæri ekki aðeins fyrir okkur íbúa Norðurlands heldur einnig fyrir landsbyggðina alla og íslenskt samfélag.

Snúum hjólunum áfram
Á sama tíma og ríkisstjórninni gengur sífellt verr að ná árangri í loftslagsmálum kemur á óvart að annað árið í röð þurfi að berjast fyrir stuðningi við hóp fólks sem hefur tekið sér mikilvægt hlutverk í þágu grænni og betri framtíðar.

Búðu til pláss – fyrir öll börn
Landsnefnd UNICEF á Íslandi fagnar nú 20 ára afmæli sínu með ákalli til þjóðarinnar sem vitnar í ljóðið þar sem upphafsorð þessarar greinar er um finna. Ákall um að landsmenn búi til pláss í hjartanu sínu fyrir öll börn sem þurfa á okkur að halda og gerist Heimsforeldrar UNICEF.

Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif
Á dögunum sendi ég eftirfarandi bréf á Davíð Oddsson, en innihald þess mun skýra sig sjálft.

Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin
Nú þegar heimilin standa frammi fyrir aukinni skuldabyrði hefur ríkisstjórnin ákveðið að fella niður mikilvægt varnarúrræði – almenna heimild til að nýta séreignarsparnað til ráðstöfunar inn á höfuðstól láns. Þetta er bæði illa tímasett og slæm ákvörðun fyrir millitekjufólk. Heimilin standa nú frammi fyrir því að fá verðbólguna af fullum þunga í heimilisbókhaldið.

Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu
Líf án ótta. Grein sem ég er búin að vera með í maganum í nokkra mánuði, en er loks nú að fá sinn stað í sólinni. Og eins og áður þá ætla ég að skrifa þessa grein í smá ADHD stíl. Eins og mér finnst gaman að gera.

Kenningar úr gildi svo að kirkjan þarf að komast á annað stig
Við að lesa Gunnlaugs Stefánsson kvarta yfir að þjóðin sé að hætta að vera kristin, voru orð sem ég sé tækifæri til að koma með leið fyrir stofnunina til að koma betur inn í nútímann.

Dansaðu vindur
Á Íslandi er eftirspurnin eftir raforku mikil. Það er jákvætt að atvinnulífið sé svo blómlegt að umframeftirspurn hafi myndast en neikvætt ef stjórnvöld ná ekki að tryggja að af framkvæmdum verði vegna seinagangs í uppbyggingu á raforkukerfinu. Til mikils er að vinna svo hugmyndir og tækifæri renni ekki úr greipum okkar.

Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi
Það er of margt uggvænlegt að gerast. Fólki líður ekki nógu vel og börnunum okkar líður ekki nógu vel. Þessa dagana er alltof mikið af hræðilegum atburðum að eiga sér stað á Íslandi.

Um vaxtahækkanir og verð á hveiti
Fyrir nokkrum dögum skrifaði bankastjóri ágætisgrein á Vísi.is þar sem hann virtist rökstyðja vaxtahækkanir bankans nýverið á verðtryggðum húsnæðislánum með þeirri samlíkingu að nauðsynlegt sé að hækka verð á brauði ef hveitið er orðið dýrara en brauðið sjálft.

Öryggi byggir á mönnun og launum
Öryggi í heilbrigðisþjónustu er í beinu samhengi við mönnun fagfólks innan geirans. Á ráðstefnu Bandalags hjúkrunarfélaga á Norðurlöndunum, NNF, sem haldin var á Íslandi í síðustu viku voru kynntar rannsóknarniðurstöður sem allar bentu á mikilvægi fagmenntaðra hjúkrunarfræðinga þegar kemur að öryggi sjúklinga.

Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi
Einhverfupaunkið er hópur fullorðinna einhverfra einstaklinga sem berjast gegn fordómum og óréttlæti í garð einhverfra.

Mammon hefur náð lífeyrissjóðum á sitt band
Hagkaup hefur hafið sölu á áfengi í gegnum vefverslun. Viðskiptavinum gefst nú tækifæri til að kaupa áfengi á netinu og sækja í Skeifuna um leið og þú verslar ostinn og mjólkina. Jú þú getur verslað allan sólahringinn í Skeifunni.