Menning

Maður týnir ekki börnunum sínum
Fiðlusnillingurinn Joshua Bell kemur fram á tónleikum í Hörpu á sunnudag ásamt píanóleikaranum Alessio Bax. Leikur á Stradivarius-fiðlu sem er mikill dýrgripur. Segir frábært að leika í Hörpu.

Norðurslóðir voru C.S. Lewis afar hjartfólgnar
Douglas Gresham, stjúpsonur C.S. Lewis, heldur fyrirlestra á ráðstefnu hérlendis um rithöfundinn áhrifamikla. Að sögn Douglas var faðir hans settlegur karl sem elskaði lífið og angaði af tóbaki. Saman tókust þeir á við sorgina.

Sexí saxi með bíótónum Andreu
Andrea Gylfadóttir hefur vetursetu á Akureyri og mun láta hressilega að sér kveða um næstu helgi þegar hún mun teygja Bíóbandið út í nýjar víddir með risa sinfóníukvikmyndatónleikum í Hofi.

Fræg fótboltalýsing Hödda efni í mikinn ljóðabálk
Um óvæntan samruna fótbolta og ljóðlistar.

Farandverkamaður í stríði við algóryþmann
Menning er það sem fjölmiðlar nútímans vilja helst losna við af síðum sínum, segir skrifandi farandverkamaðurinn Ásgeir H. Ingólfsson sem ætlar að snúa vörn í sókn með vefritinu Menningarsmyglið og boðar í raun byltingu sem þegar er hafin með söfnun áskrifenda á hópfjármögnunarsíðunni Karolina Fund.

Og sigurvegarinn er … ha, hver?
Einhver ævintýralegasti bókaútgefandi Íslands óvænt sigurvegari í samkeppni um besta handritið.

We Will Rock You úr Háskólabíói í Hörpu
Söngleikurinn We Will Rock You eftir Queen og Ben Elton var frumsýndur í Háskólabíói þann 15. ágúst. Upphaflega stóð til að sýningar yrðu aðeins í ágúst en vegna mikillar eftirspurnar voru sýningar út september. Nú stendur hins vegar til að opna dyrnar að nýju í Eldborgarsal Hörpu þann 29. nóvember.

Rússar hrifnir af okkar ríkulegu menningu
Söngkonurnar Gerður Bolladóttir og Alexandra Chernyshova sungu eigin tónlist í Pétursborg við píanóleik Kjartans Valdimarssonar og hlutu lof hlustenda.

Tokarczuk og Handke fá Nóbelsverðlaunin
Sjón og Pétur Gunnarsson fagna niðurstöðunni og segja frá verkum þeirra. Pétur hefur þýtt verk eftir Handke og skáldsaga Tokarczuk hreif Sjón mjög.

Bein útsending úr Hörpu: Sinfó spilar Brahms og Tsjajkovskí
Sýnt verður beint frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem hefjast klukkan 19:30 í Hörpu.

Nóbelsverðlaunahafar heimsækja Laxness
Sýning með ljósmyndum þýska ljósmyndarans Peter Badge af Nóbelsverðlaunahöfum verður opnuð í sænska sendiherrabústaðnum við Fjólugötu 9 um helgina.

Verður sjálfur ekki á hátíðinni í holdinu en mjög nálægur í andanum
Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á A! Gjörningahátíð sem opnuð verður á Akureyri á morgun, 10. október.

Teiknaði einstaklinga af Instagram
Melkorka Katrín Tómasdóttir gengur undir listamannsnafninu Korkimon. Hún bauðst til að teikna fólk á Instagram.

Hver saga býr yfir sínum eigin heimi
Ragna Sigurðardóttir sendir frá sér smásagnasafn. Fimm sögur sem gerast á ólíkum tíma og stöðum. Leggur áherslu á það sammannlega.

Mjög mikilvægt fyrir tónlistarlíf á Íslandi
Tónleikaröðin Jazz í Salnum hefur sitt annað starfsár sitt í næstu viku með tónleikum breska jazz píanistans Gwilym Simcock.

Stefnumót
Daði Guðbjörnsson og Lulu Yee sýna saman málverk og leirverk í Galleríi Fold.

Stjörnufans á frumsýningu Shakespeare verður ástfanginn
Leiksýningin Shakespeare verður ástfanginn var frumsýnd síðastliðinn föstudag í Þjóðleikhúsinu við mikinn fögnuð áhorfenda.

Munaðarleysingjaheimilið hlaut Gullna lundann á RIFF
Verðlaunaafhendin RIFF fór fram í Norræna húsinu í kvöld

Þarf að endurhanna allt
Um tímann og vatnið er titill á nýrri bók eftir Andra Snæ Magnason. Þar fjallar hann á afar áhrifaríkan hátt um þá skelfilegu vá sem steðjar að mannkyni vegna loftslagsbreytinga og boðar róttækar lausnir.

Claire Denis hlaut heiðursverðlaun RIFF
Guðni Th. forseti Íslands afhenti Claire Denis verðlaunin á Bessastöðum í dag.

Risastórt ævintýri og óður til listarinnar
Lára Jóhanna Jónsdóttir leikur hefðarmeyna Violu de Lesseps, lykilpersónu í hinum rómantíska gamanleik Shakespeare verður ástfanginn. Frumsýning er annað kvöld, föstudag, þar sem öllu er tjaldað til.

Táknmyndin fagra í gulu regnkápunni
Baráttukonan unga Greta Thunsberg er ekki allra en höfðar svo sterkt til Snorra Ásmundssonar að hann málaði af henni tvö portrett.

Sækja titilinn í ljóð Jóhannesar úr Kötlum
Úr augum þér fiðrildi fljúga er yfirskrift íslensk-norskra tónleika í Sigurjónssafni á Laugarnestanga í kvöld.

Örkin er efni í stórmynd
Ómar Ragnarsson hlaut fyrsta Græna lundann sem veittur er á RIFF. Við sama tækifæri opnaði Landvernd ljósmyndasýningu í Norræna húsinu í tilefni 50 ára afmælis hennar.

Óperusöngkonan Jessye Norman er látin
Ein nafntogaðasta sópransöngkona tuttugasta aldarinnar er látin, 74 ára að aldri.

Ég var afar ópraktískur
Þótt sýningin sem opnuð er í dag í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, nefnist EITTHVAÐ úr ENGU: Myndheimur Magnúsar Pálssonar fer því fjarri að hún sé úr engu því margt ber þar fyrir augu.

„Ég er galdakarl“
Atli Már Indriðason hefur verið valinn listamaður Listahátíðarinnar List án Landamæra. Listahátíðin leggur áherslu á list fatlaðs fólks og verður haldin 5. til 20. október í Gerðubergi.

Opna sögusýningu í tilefni af 70 ára afmæli Þróttar
Knattspyrnufélagið Þróttur hefur staðið fyrir margs konar viðburðum á afmælisárinu.

Stef úr hversdagsleika
Guðlaug Mía Eyþórsdóttir heldur sína fyrstu einkasýningu í Harbinger á Freyjugötu. Þar er hægt að horfa, borða og snerta.

Verðum að stjórna dýrinu
Það er mýkt í orðinu þel. Því valdi Katrín Gunnarsdóttir þann titil á dansverk sem frumsýnt var fyrir helgi í Borgarleikhúsinu.