
Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Haltu þig með vinum þínum þar sem hið óþekkta getur valdið vanda. Þú gleðst yfir því að loforð er haldið og það mun verða þér heilladrjúgt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú mátt vænta gagnlegrar niðurstöðu í máli sem hefur lengi beðið úrlausnar. Þú þarft að hvíla þig og slappa af í góðra vina hópi.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þér gengur ekki nógu vel að vinna með öðru fólki þessa dagana. Þú verður að sýna umburðarlyndi gagnvart samstarfsfólki þínu og hrósa því fyrir það sem það gerir vel.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Dagurinn hentar vel til þess að leysa úr gömlum vandamálum. Þetta verður hamingjuríkur dagur hjá ástvinum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú átt auðvelt með að ná til fólks í dag og færð það til að hlusta á þig. Núna er tilvalið tækifæri til að brydda upp á nýjungum.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Hlustaðu á ráð sem þér eru gefin en notaðu eigin dómgreind til að taka ákvörðun. Þú ert líklegur til að gera góð kaup.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Ekki leyfa deilum að krauma. Betra er að koma hreint fram og gera út um málin, sérstaklega ef um er að ræða heimilislífið eða fjölskyldumál.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þér leiðist trúlega í dag svo að þú skalt ekki sitja aðgerðarlaus. Gerðu eitthvað fjölbreytt og forðastu að helga þig aðeins einu verkefni.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Á næstu vikum verða mál sem hafa lengi verið í deiglunni til lykta leitt. Þetta er eitthvað í sambandi við tilfinningamálin.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Tilhneiging þín til að gagnrýna fólk auðveldar þér ekki að eignast vini eða halda þeim sem fyrir eru. Sýndu þess vegna þolinmæði hvað sem á dynur.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Gamall draumur virðist vera um það bil að rætast hjá þér og þú nýtur þess sannarlega. Gefðu þér tíma fyrir vini þína.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þér veitist erfitt að rata réttu leiðina að settu marki en ef þú sýnir þrautseigju munt þú ná árangri.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Dagurinn verður viðburðaríkur og þú hefur meira en nóg að gera. Gættu þess að vera ekki of tortrygginn.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú rekur þig á ýmsa veggi í dag. Þér reynist erfiðara en þú hélst að nálgast ákveðnar upplýsingar sem þú telur mikilvægar.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Nú ert þú kominn í þitt venjulega form en þú hefur verið fremur til baka að undanförnu. Um leið og sjálfstraust þitt vex ertu tilbúinn að taka að þér ný verkefni.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Núna er góður tími til að sýna öðrum hvað þú raunverulega getur, sérstaklega í vinnunni. Heimilislífið verður gott í dag.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Nýjar hugmyndir fá byr undir báða vængi. Passaðu peningana þína, þeir eru fljótir að fara ef þú gætir ekki að þér.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú ættir að hleypa meiri tilbreytingu inn í líf þitt. Það hefur verið helst til einhæft undanfarið. Hvernig væri að finna sér nýtt áhugamál.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Einhver breyting verður á vinahópnum eða hjá einhverjum innan hans. Þessi breyting gæti haft áhrif á þig persónulega.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Notaðu tækifæri sem þú færð til að bæta andrúmsloftið í kringum þig. Það hefur verið fremur þrúgandi undanfarið.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú kynnist einhverjum sem hefur sérstök áhrif á þig. Ljúktu því sem þú hefur að gera þar sem þig langar að skemmta þér á næstunni.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Forðastu óhóflega eyðslu í dag og hugaðu að fjármálunum. Þetta er ekki besti tíminn til að gera fjárfestingar.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú reynir að breyta ýmsu í kringum þig og tekst bærilega til. Ágreiningur kemur upp í fjölskyldunni en "sáttasemjarinn" á bænum setur deilurnar niður.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þér verður mest úr verki um morguninn, sérstaklega ef þú ert að fást við vandasamt verkefni. Seinni hluti dagsins verður rólegur.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Kynslóðabil veldur einhverjum erfiðleikum í dag þar sem ungir sýna öldruðum ekki næga þolinmæði í ákveðnu máli og eru tregir til að þiggja góð ráð lífsreynds fólks.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Vertu ekki að angra aðra með því að minna þá á mistök sem þeir gerðu fyrir löngu. Þetta á sérstaklega við um atburði kvöldsins.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Fólkið í kringum þig er dálítið óþolinmótt í dag og það gerir þig órólegan. Reyndu að halda stillingu þinni, þá gengur allt betur.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Tilfinningamál verða í brennidepli í dag og þú eyðir talsverðum tíma í að ræða persónuleg mál. Kvöldið verður skemmtilegt.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Gættu þess að vera tillitssamur við ættingja og vini í dag þó að það sé kannski eitthvað sem angrar þig persónulega þessa dagana.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Gamlar væringar gætu skotið upp kollinum ef farið verður að ræða viðkvæm mál. Það væri skynsamlegt að vera ekkert að því.