Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Náinn vinur á í einhverjum erfiðleikum um þessar mundir og þarf á þér að halda. Það er nauðsynlegt að þú sýnir þolinmæði og gefir þér tíma með honum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Dagurinn verður skemmtilegur og þú hefur meira en nóg að gera. Samband þitt við vin þinn er þér ofarlega í huga.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Vertu þolimóður við þá sem þú umgengst og leyfðu öðrum að njóta sín. Kvöldið verður líflegt og eitthvað kemur þér skemmtilega á óvart.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Ef þú ert tilbúinn að hlusta gætir þú lært margt gagnlegt í dag. Hugmyndir þínar falla í góðan jarðveg hjá fólki sem þú metur mikils.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú finnur fyrir breytingum í einkalífinu. Þú þarft á athygli vina þinna að halda á næstunni.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú átt erfitt með að einbeita þér fyrri hluta dagsins og verður fyrir óþægindum vegna óþolinmæði annarra.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú skalt forðast deilur og umræður um andstæð sjónarmið. Þú getur lent í þeirri stöðu að þurfa að vera ósamkvæmur sjálfum þér.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú ert mun bjartsýnni en þú hefur verið lengi og tilbúinn að takast á við flókin verkefni. Þér verður ágengt í heilsuræktarátaki þínu.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Dagurinn verður skemmtilegur og allt sem þú tekur þér fyrir hendur gengur að óskum. Góður vinur kemur í heimsókn.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Sérviska þín getur gengið of langt stundum og gert þér erfitt fyrir á ýmsum sviðum. Þú þarft að taka ákvörðun án þess að hugsa þig um.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Vinnan gengur vel í dag og þú færð hrós fyrir vel unnið starf. Kvöldið verður rólegt en ekki er ólíklegt að gestir stingi inn kollinum.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Reyndu að fara út og gera eitthvað sem veitir þér útrás og þá tilfinningu að þú hafir áorkað einhverju.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú skalt fara varlega í fjármálum í dag og vera viss um að þeir sem þú semur við séu heiðarlegir. Varastu mikla eyðslu.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Athugaðu alla málavexti vel áður en þú tekur mikilvæga ákvörðun eða einhverju gylliboði sem berst.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Ef þú ert tilbúinn að hlusta gætir þú lært margt gagnlegt í dag. Hugmyndir þínar falla í góðan jarðveg hjá fólki sem þú metur mikils.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Fyrri hluta dagsins gengur allt að óskum en kvöldið verður ekki alveg eins og þú hafðir vonast eftir.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú hefur mikið að gera um þessar mundir og nýtur þess fram í fingurgóma. Þú munt uppskera árangur erfiðis þíns.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Dagurinn er heldur viðburðasnauður hjá þér og heldur meira verður um að vera hjá vinum þínum. Ekki láta það angra þig.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér finnst þú hafa mikið að gera og verður því að vera afar skipulagður. Þú þarft líka að læra að segja nei við verkefnum sem einhver er að reyna að koma á þig.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Viðskipti ganga vel í dag og þú átt auðvelt með að semja. Fjölskyldan er þér ofarlega í huga , sérstaklega samband þitt við ákveðna manneskju.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Félagslífið blómstrar um þessar mundir og þú eignast mikið af nýjum vinum. Kvöldið verður afar skemmtilegt.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Það verður mikið um að vera í dag en þú kemst ekki yfir að gera allt sem þú ætlaðir þér þar sem að tafir koma upp í samgöngum.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú þarft líklega á hjálp að halda við eitthvað og ættir að leita til þinna nánustu.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú verður var við illt umtal og ættir að forðast í lengstu lög að koma nálægt því. Það gæti haft leiðinlegar afleiðingar.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þótt eitthvert verk gangi vel í byrjun skaltu ekki gera þér of miklar vonir. Nú er tími breytinga og þú þráir að taka þér eitthvað nýtt fyrir hendur.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú kynnist einhverri áhugaverðri persónu sem hefur djúp áhrif á þig og þú gætir orðið ástfanginn. Spennandi tími er framundan.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú hefur mikið að gera í dag og ættir að fresta stefnumótum sem ekki skipta miklu máli og einbeita þér fremur að því að ljúka áríðandi verkefnum.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú nýtur þess að skemmta þér með vinum þínum eftir allt erfiðið undanfarið. Samviska þín er góð þar sem þú hefur unnið vel.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þín bíður skemmtilegur dagur og viðburðaríkt kvöld. Lífið brosir við þér þessa dagana og þú skalt njóta þess til hins ýtrasta.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Farðu varlega í allar breytingar og viðskipti. Hugsaðu þig vel um áður en þú ferð eftir ráðleggingum ókunnugra.