

Einhver sýnir þér ótrúlega góðvild og þú ert þakklátur fyrir aðstoðina. Þú mátt eiga von á óvæntum og skemmtilegum fréttum seinni hluta dagsins.
Fjölskyldan kemur mikið við sögu í dag. Þú ættir að skipuleggja næstu daga og vikur núna á meðan þú hefur nægan tíma til.
Einhver hefur mikinn áhuga á því sem sem þú ert að að gera og þú ættir að nýta þér það. Þér gæti tekist að koma í framkvæmd einhverju sem þig hefur lengi dreymt um.
Hlustaðu vel á það sem þú heyrir í dag. Þar gætu leynst verulega gagnlegar upplýsingar fyrir þig. Komdu við hjá vini þínum, það myndi gleðja hann.
Það er mikið að gera hjá þér þessa dagana og ef þú heldur ekki vel á spöðunum er hætta á að þú lendir í mikilli tímaþröng.
Þú ættir ekki að gera þér of miklar vonir í sambandi við ferðalag á næstunni. Þú færð væntanlega að ráða litlu um ferðatilhögun.
Reyndu að komast að því hvers vegna vinur þin er svona niðurdreginn. Sjálfstraust þitt er með besta móti og það kemur sér vel.
Þú verður fyrir sífelldum truflunum í dag og átt erfitt með að einbeita þér. Fólk virðist vera upptekið af sjálfu sér.
Allt virðist ganga þér í haginn um þessar mundir og vegna þess gæti gætt öfundar í þinn garð. Þú getur ekkert að því gert.
Þú ert innan um tilfinningasamar manneskju í dag og þarft að haga þér í samræmi við það. Vertu sérstaklega tillitssamur við þína nánustu.
Þú hefur áhrif á ákvarðanir fólks og verður að gæta þess að misnota það ekki.
Eyddu deginum með fólki sem hefur svipaðar skoðanir og þú. Annars er hætta á miklum deilum og leiðindum.
Vinir þínir eru þér ofarlega í huga í dag og þú nærð góðu sambandi við fólkið í kringum þig.
Ekki láta vorkenna þér og ekki leita eftir hjálp nema veruleg nauðsyn sé á. Þú munt eiga rólegt og gott kvöld.
Peningamálin eru ofarlega á baugi og þú þarft að fara vandlega í gegnum málin áður en þú tekur einhverjar ákvarðanir. Rómantíkin blómstrar.
Eitthvað verður til að minna þig á löngu liðna tíð og þér finnst eins og allt hafi verið betra þá. Mundu að þú lifir í nútíðinni en ekki fortíðinni.
Gerðu eins og þér finnst réttast í máli sem þú þarft að taka afstöðu til. Þó að vinir þínir séu boðnir og búnir til að hjálpa stoðar það lítt.
Dagurinn verður mjög ánægjulegur og þú eyðir honum með fólki sem þér líður vel með. Ástin blómstrar um þessar mundir.
Óvæntur atburður setur strik í reikninginn og gæti raskað áætlun sem gerð var fyrir löngu. Vertu þolinmóður við þína nánustu í dag.
Ástarlífið blómstrar um þessar mundir. Kvöldið verður fjörugt og þú verður hrókur alls fagnaðar.
Ekki vera að velta þér upp úr hlutum sem skipta litlu sem engu máli. Hugsaðu heldur um að sinna þínum nánustu og rækta vinskapinn við vini þína.
Mikill erill er hjá einhverjum í kringum þig og þú skalt ekki móðgast þó að ekki sé mikill tími fyrir þig.
Gættu þess að ganga ekki fram af neinum með framferði þínu. Það ríkir mikil spenna og samkeppni á vinnustað þínum.
Þú virðist í tilfinningalegu ójafnvægi og sjálfstraust þitt er með minnsta móti. Þetta ástand varir þó ekki lengi.
Þú munt eiga góðan dag í faðmi fjölskyldunnar. Þér finnst þú vera ákaflega heppinn að eiga allt þetta góða fólk að.
Þú ert í góðu ástandi til að taka ákvarðanir í sambandi við minni háttar breytingar. Þú átt auðvelt með að gera upp hug þinn.
Þú ert fullur bjartsýni og sérð framtíðina í rósrauðum bjarma. Ástin er í góðum farvegi.
Dagurinn verður rólegur framan af en þú hefur meira að gera þegar líður á kvöldið.
Farðu varlega í fjárfestingar og skoðaðu fjármálastöðuna vel áður en þú festir kaup á dýrum hlut. Fjölskyldan stendur þétt saman.
Eirðarleysi þitt gerir þér erfitt fyrir að sinna því sem þú þarft. Ástarsamband sem þú ert í gengur mjög vel um þessar mundir.