

Þú ert orkuminni en venjulega og ættir ekki að taka að þér erfið verkefni. Tilfinningamálin eru í einhverjum flækjum.
Það ríkir einhver óvissa í dag og hegðun ákveðins einstaklings hefur í för með sér vandræði. Úr því leysist þó skjótt.
Þú nýtur góðs af hæfileikum þínum á ákveðnu sviði í dag. Fólk kann vel að meta ákveðni þína í vinnunni.
Morgunninn verður rólegur og notalegur og þér gefst tími til að hugsa málin þar til eitthvað óvænt og ánægjulegt gerist sem breytir deginum.
Peningamálin eru ofarlega á baugi og þú þarft að fara vandlega í gegnum málin áður en þú tekur einhverjar ákvarðanir. Rómantíkin blómstrar.
Þér finnst tími til kominn að breyta til í félagslífinu og gerðir kannski rétt í að finna þér nýtt tómstundagaman. Kvöldið verður spennandi.
Ef þú hyggur á fjárfestingu skaltu fara rólega í sakirnar og vera viss um að allir séu heiðarlegir. Rómantíkin liggur í loftinu.
Hópvinna skilar ekki þeim árangri sem þú vonaðist eftir og þú áorkar sennilega meiru ef þú vinnur einn. Varastu að vera með óþarfa stjórnsemi.
Hætta er á misklíð milli vina. Ef þú átt einhverja sök ertu maður að meiri ef þú viðurkennir það og biðst afsökunar.
Þú lendir í tímahraki fyrri hluta dagsins og það gengur illa að ljúka því sem þú ætlaðir þér. Þetta vesen mun þó alls ekki skemma fyrir þér kvöldið.
Þú þyrftir að fara gætilega í sambandi við peningamál. Útlit er fyrir að þú munir ekki hafa eins mikið á milli handanna og þú bjóst við.
Fyrri hluti dagsins einkennist af tilfinningamálum, aðallega í sambandi við vandamál annarra. Þú verður líklega orðinn þreyttur í kvöld og ættir að slappa af.
Einhver er í vafa um að það sem þú ert að gera sé rétt. Þú skalt hlusta á það sem aðrir hafa að segja en endanlega ákvörðunin verður þó að vera þín.
Þú uppgötvar að einhver sem þú hefur talið vin þinn er ekki allur sem hann er séður. Ekki gera þig sekan um söguburð. Forðastu alla uppgerð.
Enginn veit jafn vel og þú hvernig best er að haga deginum í vinnunni svo þú skalt ekki láta aðra segja þér fyrir verkum.
Þessi dagur verður afar annasamur og þú verður feginn þegar einhver réttir þér hjálparhönd. Þú ættir að reyna að hafa hugann við það sem þú ert að gera.
Dagurinn verður fremur óvenjulegur en einnig afar skemmtilegur. Þú kynnist skemmtilegu fólki sem opnar þér nýja sýn á lífið. Rómantíkin liggur í loftinu.
Þú ættir að hugsa þig vel um áður en þú tekur að þér stórt verkefni því að það gæti tekið meiri tíma en þú heldur í fyrstu.
Þú færð fréttir sem gleðja þig mjög. Þú ert bjartsýnn og fullur áhuga á því sem þú ert að gera.
Þú átt von á einhverju skemmtilegu sem þú hefðir alls ekki búist við.
Gerðu þér dagamun, þú átt það skilið eftir allt sem þú hefur lagt á þig undanfarið. Haltu þínu striki og láttu engan trufla þig.
Þú átt í vændum skemmtilegan morgun þar sem þú tekur þátt í athyglisverðum samræðum. Vinur þinn segir þér merkilegar fréttir.
Nýttu þér þau tækifæri sem bjóðast til að ná fram niðurstöðu með rökræðum við þá sem ráða. Ef þú ert á ferðalagi skaltu búast við töfum.
Það er heillavænlegast fyrir þig að vera sem mest einn í dag. Ef þú gefur kost á þér til félagsstarfa er líklegt að þú munir á endanum ekki hafa tíma til neins annars.
Það kemur þér á óvart að fólk hlustar óvenjulega vel á ráð þín og vill heyra hugmyndir þínar. Láttu það þó ekki stíga þér til höfuðs.
Dagurinn verður heldur viðburðalítill og þú ættir að einbeita þér að vinnunni fyrri hluta dagsins. Hittu vini þína eða ættingja í kvöld.
Vinir þínir koma þér á óvart á einhvern hátt og þú hefur í nógu að snúast í sambandi við félagslíf fyrri hluta dagsins.
Þú færð einhverja ósk þína uppfyllta í dag. Ekki er um neitt stórvægilegt að ræða en þú gleðst samt sem áður mikið yfir því.
Nú snýst allt um ferðalag sem er í bígerð. Þar munt þú kynnast nýju fólki. Vinátta breytist í eitthvað meira.
Eitthvað sem gerist í dag fær þig til að stansa og hugsa þinn gang. Þú gætir séð ýmislegt í nýju ljósi og áttað þig betur á aðstæðum þínum.