

Börnin eru í aðalhlutverki í dag og þú þarft að gefa þeim mikinn tíma. Breytingar eru fyrirsjáanlegar á næstunni og ekki er ólíklegt að þú farir í stutt ferðalag.
Unga fólkið er í aðalhlutverki í dag. Það getur verið að þeim sem eldri eru þyki nóg um fyrirganginn. Þú gætir þurft að miðla málum.
Þú ættir að vera spar á gagnrýni því að hún gæti komið þér í koll. Vertu tillitssamur við þína nánustu.
Þér gengur vel að ráða fram úr minni háttar vanda og hlýtur mikið lof fyrir. Þú gengur í gegnum erfitt tímabil á ástarmálunum.
Þó þú viljir ákveðnum aðila vel getur farið svo að hann taki þér ekki vel og þú ættir að sýna honum skilning í stað þess að reiðast.
Þér gengur best að vinna einn þar sem aðrir virðast aðeins trufla þig. Þú nýtur aukinnar virðingar í vinnunni.
Fjármál fjölskyldunnar fara batnandi. Ef þér finnst þú þurfa á hjálp að halda skaltu ekki hika við að biðja um hana.
Þessi dagur verður sá annasamasti í vikunni og þú gleðst þegar þér býðst hjálp. Það er mikið um að vera í félagslífinu.
Þú verður fyrir óvæntu happi í fjármálum á næstunni. Þú skalt samt ekki eyða um efni fram fyrr en það mál er í höfn.
Nú er rétti tíminn til að skipuleggja framtíðina en þú ættir að varast að taka skyndiákvarðanir. Einhver sýnir þér óvænta vinsemd.
Þú verður fyrir einhverjum vonbrigðum með ástvin þinn í ákveðnu máli. Hér gætu hreinskilnislegar viðræður komið að gagni.
Viðskipti ganga vel í dag og þú átt auðvelt með að semja vel. Fjölskyldan er þér ofarlega í huga, sérstaklega samband þitt við ákveðna persónu.
Sýndu þolinmæði við fjölskyldumeðlim og vertu tillitssamur. Þér gengur erfiðlega að fá fólk til að skipta um skoðun í dag.
Þú færð kjörið tækifæri til að sýna væntumþykju þína í verki í dag. Einnig mætirðu góðvild frá öðrum og færð þá hjálp sem þú þarfnast.
Gamansemi þín á eftir að fleyta þér langt í dag og þú aflar þér vinsælda út á hana. Reyndar ertu í mjög góðu formi um þessar mundir.
Skoðanaskipti í afslöppuðu andrúmslofti verða mjög gagnleg og leiða til jákvæðra breytingar. Fjármálin ganga ekki alveg snurðulaust.
Einhver stendur í vegi fyrir þér varðandi atriði sem er þér einkar hugleikið. Þó að önnur persóna sækist eftir hinu sama og þú ætti það ekki að hafa áhrif á áhuga þinn.
Hikaðu ekki við að grípa tækifæri sem þér býðst. Það á eftir að hafa jákvæð áhrif á líf þitt til frambúðar. Fjárhagurinn fer batnandi.
Eitthvað spennandi liggur í loftinu. Þú verður vitni að einhverju ánægjulegu sem breytir hugarfari þínu í garð einhvers.
Það er hætt við því að þú vanmetir andstæðing þinn eða keppinaut. Þú þarft að hafa töluvert fyrir því að komast þangað sem þú ætlar þér.
Þú ættir að hafa vakandi auga fyrir smáatriðum í dag. Taktu vel eftir fyrrimælum sem þú færð.
Þér finnst kunningi þinn vera skilningslaus og lætur það angra þig. Það ætti ekki að skipta þig máli svo þú skalt hugsa um eitthvað annað.
Einhver stendur í vegi fyrir þér varðandi atriði sem þér er einkar hugleikið. Ekki gefa neitt eftir.
Þú gætir lent í vandræðum með að fá fólk til að hjálpa þér við verkefni sem þú vinnur af því að allir virðast vera uppteknir.
Eyddu deginum með fólki sem hefur svipaðar skoðanir og þú. Annars er hætta á miklum deilum og leiðindum.
Það verður ekki auðvelt að sannfæra fólk um að styðja þig í framkvæmdum þínum. Ímyndunarafl þitt er virkt en hugmyndir þínar fá litla áheyrn.
Reyndu að skipuleggja daginn vel svo að þú komist yfir allt sem þú þarft að gera og náir einnig að slappa af seinni hluta dagsins.
Þú átt góðan dag og færð tækifæri til að sýna frumkvæði og koma skoðunum þínum á framfæri. Fjölskyldan er þér ofarlega í huga.
Kynntu þér vel alla málavexti áður en þú skrifar nafn þitt undir eitthvað. Smáa letrið hefur reynst mörgum skeinuhætt.
Þú þarft að taka sjálfum þér tak varðandi tiltekt á heimilinu. Þar hefur ýmislegt drabbast niður undanfarið. Það er þó ekki eins mikið mál og þú heldur.