
Lífið

Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í bráð
Söngkonan Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í náinni framtíð í viðtali Graham Norton. Hún gaf nýlega út plötuna Midnight sem sló öll met á Spotify og varð mest spilaða platan á einum degi. Myndband við eitt laganna á plötunni hefur þó verið umdeilt og talið ýta undir fitufordóma.

Jerry Lee Lewis er látinn
Tónlistarmaðurinn Jerry Lee Lewis er látinn 87 ára að aldri.

Kynntust á ströndinni og giftu sig í ráðhúsinu
Bachelor in Paradise parið Serena Pitt og Joe Amabile, einnig þekktur sem Grocery Store Joe, giftu sig í ráðhúsinu í New York í gær. Parið trúlofaði sig á ströndinni árið 2021 í lokaþætti BIP.

Stuðmenn koma fram á Rökkvunni á Garðatorgi
Föstudagskvöldið 28. október fer fram ný hátíð, Rökkvan, á Garðatorgi í Garðabæ. Ungir listamenn í bænum fengu tækifæri til að skipuleggja hátíðina í samvinnu við menningarfulltrúa bæjarins og einkennist hátíðin því af þátttöku og hugmyndum ungmenna.

Foreldrar skapi tíma fyrir samverustundir án snjalltækja
„Snjalltæki eru orðin órjúfanlegur hluti af lífi barna og ungmenna, hvort sem okkur líkar það betur eða verr.“ Á þessum orðum hefst pistill sem birtist á Vísi í tilefni af símalausa deginum sem fer fram næsta sunnudag.

Tom Brady og Gisele Bündchen sækja um skilnað
NFL stjarnan Tom Brady og ofurfyrirsætan Gisele Bündchen sækja um skilnað í Flórída í dag eftir 13 ára hjónaband. Tímaritið People hefur fengið þetta staðfest.

Magnús Carlsen tryllti gesti Röntgen með karaókísöng sínum
Myndavélar flugu á loft þegar norska undrabarnið, heimsmeistarinn í skák, greip míkrófóninn og söng Boten Anna á karaókíkvöldi á skemmti- og veitingastaðnum Röntgen í gærkvöldi við mikinn fögnuð.

Fyrsta lagið frá Rihönnu í sex ár
Fyrsta lag söngkonunnar Rihönnu síðan árið 2016 heiðrar leikarann Chadwick Boseman, sem lést árið 2020 úr ristilkrabbameini. Lagið ber heitið Lift Me Up og er það fyrsta sem hún gefur sjálf út í sex ár.

Neðansjávarveitingastaður, vel skipulagðar íbúðir, spa og ylströnd í nýju hverfi
Veitingastaður að hluta til neðansjávar og fleira spennandi er að byggjast upp í Gufunesi.

Stjörnuspá Siggu Kling snýr aftur á Vísi
Í næstu viku snýr Sigríður Klingenberg, best þekkt sem Sigga Kling, aftur á Lífið á Vísi. Stjörnuspá hennar mun birtast á vefnum í hverjum mánuði.

Dýrasti miðinn á Elvis kostar rúma milljón
Tónlistarmaðurinn Elvis Costella er á leiðinni til landsins og mun halda tónleika í Hörpu þann 28. maí á næsta ári.

Bleikar sjálfstæðiskonur í Kópavogi
Félag sjálfstæðiskvenna í Kópavogi, Edda, hélt fyrsta viðburð starfsársins í gær. Ræðumenn og heiðursgestir kvöldsins voru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Heiðraði Chadwick Boseman á frumsýningu Black Panther: Wakanda Forever
Leikkonan Letitia Wright heiðraði Chadwick Boseman með fallegum hætti á frumsýningu kvikmyndarinnar Black Panther: Wakanda Forever í Los Angeles.

„Þetta hús ætti eingöngu að vera selt gegn því að vera friðað að innan“
Aftur til fortíðar kemur strax upp í hugann þegar skoðaðar eru myndirnar af eign til sölu í Bjarmalandi í Reykjavík.

Sagður hafa viljað nefna plötu eftir Adolf Hitler
Bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West er sagður hafa dáðst lengi að nasistaforingjanum Adolf Hitler, svo mjög að hann vildi nefna plötu sem hann gaf út árið 2018 „Hitler“. Samstarfsaðilar West hafa fjarlægt sig frá honum eftir röð hatursfullra ummæla í garð gyðinga að undanförnu.

Afhjúpaði gróðavænlegasta lukkuhjól borgarinnar
Júlíus Þór Björnsson Waage, Akureyringur í verkfræðinámi í Reykjavík, hefur unnið mikið tölfræðilegt afrek í frítíma sínum að undanförnu, sem er að skrásetja tölfræðilega möguleika á vinningum í lukkuhjólunum á öldurhúsum Reykjavíkur.

Hrekkjavöku innblástur frá stjörnunum
Hér er búið að taka saman nokkrar stjörnur sem klæddu sig upp á hrekkjavöku á veg sem auðvelt er að leika eftir eða sækja innblástur í. Kisur, vampírur, nornir og trúðar eru einnig klassískir búningar sem auðvelt er að setja saman fyrir helgina.

Bíður eftir ellefta barninu og er sagður eiga von á því tólfta
Barnamaskínan og þáttastjórnandinn Nick Cannon er sagður eiga von á enn öðru barninu. Barnsmóðir hans Alyssa Scott greindi frá því á Instagram í gær að hún væri ófrísk. Þá herma heimildir ET fjölmiðilsins að Cannon sé faðirinn, þrátt fyrir að hann hafi ekki enn staðfest það.

Matthew Perry biðst afsökunar á ummælum sínum um Keanu Reeves
Leikarinn Matthew Perry hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um Keanu Reeves í bókinni sinni Friends, Lovers and the Big Terrible Thing. Í bókinni ræðir hann ferilinn sinn, ástina og opnar sig í fyrsta skipti um eiturlyfjafíknina sem hann hefur verið að fást við.

Býst ekki við því að fá boð á Met Gala vegna ummæla um Kim Kardashian
Leikkonan Lili Reinhart á ekki von á því að henni verði boðið á Met Gala tískuviðburðinn á næsta ári. Ástæðan eru ummæli sem hún lét falla um stórstjörnuna Kim Kardashian eftir viðburðinn í maí.

Flúraði galdrastaf á legið og konan varð ólétt af þríburum
Þættirnir Afbrigði í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 í gærkvöldi en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.

Segir lausnina að finna í meiri kærleik og umburðarlyndi
„Þessi kærleikur og umburðarlyndi, þessi góðu öfl, þau eru til staðar, þau eru bara í loftinu. Þau eru í okkur! En það er stíflað og það þarf að losa um þessa stíflu og þá flæðir þetta bara af sjálfu sér,“ segir tónlistarmaðurinn KK í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni.

Ævisaga „varaskeifunnar“ kemur út 10. janúar
Ævisaga Harry Bretaprins og hertoga af Sussex er væntanleg í verslanir 10. janúar næstkomandi. Bókin ber titilinn „Spare“, sem mætti þýða sem „Varaskeifa“ á íslensku en hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu.

„Varð kannski reiður út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki hringt oftar í hana“
Gunnlaugur Helgason er einn vinsælasti útvarpsmaður landsins og einnig einn vinsælasti sjónvarpsmaður þjóðarinnar.

„Áunninn athyglisbrestur er ekki til“
Á samfélagsmiðlum á borð við TikTok er að finna fjöldann allan af myndböndum þar sem einkennum ADHD er lýst. Þegar leitað er að myllumerkinu ADHD má sjá að slík myndbönd hafa fengið yfir 16 milljarða áhorfa.

Borða svið til styrktar endurbyggingu „elstu vegasjoppu landsins“
Íbúar á Hvammstanga og nærsveitum munu koma saman til sérstakrar sviðamessu á laugardag þar sem ágóðinn mun renna til endurbyggingar á Norðurbraut, sem lýst hefur verið sem elstu vegasjoppu landsins.

Umdeild Love Island-stjarna á landinu
Jacques O'Neill er staddur á landinu. Jacques varð heimsfrægur í sumar þegar hann tók þátt í bresku raunveruleikaþáttunum Love Island.

Fóru á trúnó og hittust svo á AA-fundi fimm árum síðar
Aron Mímir Gylfason, betur þekktur sem RonniGonni, og Bjarki Viðarsson, betur þekktur sem Jeppakall Doperman Rakki, hafa slegið í gegn á Twitter síðustu vikur. Þeir eru oft sagðir vera meðlimir „undirheima-Twitter“ en eru í dag báðir edrú og urðu meira að segja vinir í meðferð.

Trúlofuð eftir að ástin kviknaði á ströndinni
Bachelor in Paradise parið Dean Unglert og Caelynn Miller-Keyes eru trúlofuð. Parið hefur verið saman í þrjú ár eftir að hafa kynnst á ströndinni í sjöttu seríu þáttanna. Dean hætti með henni og yfirgaf þættina en sneri svo aftur á ströndina og bað hana um að koma með sér, sem hún gerði.

Rómantík á RÚV
Fréttamaðurinn Sunna Valgerðardóttir og dagskrárgerðarmaðurinn Guðni Tómasson eru nýtt par. Þau starfa bæði hjá Ríkisútvarpinu og hefur ástin verið að þróast á milli þeirra síðustu mánuði, líkt og Smartland greindi fyrst frá.