
Lífið

Vinkonurnar óttast að nýi kærastinn spilli hlaupunum
Hlaupakonan Mari Järsk segir vinkonur sínar hafa miklar áhyggjur af því að nýlegt ástarævintýri hennar spilli hlaupaferli hennar.

Þessi átta komust áfram í úrslitakeppni Idol
Í kvöld kom í ljós hvaða átta keppendur það eru sem tryggðu sér sæti í úrslitakeppni Idol sem sýnd verður í beinni útsendingu.

Rapparinn Yung Nigo Drippin' með endurkomu
Á miðnætti kom út platan Stjörnulífið með rapparanum Yung Nigo Drippin'. Platan markar endurkomu rapparans en hann hefur látið lítið fyrir sér fara síðustu ár. Hann hefur legið undir feldi og unnið að plötunni frá árinu 2019.

Arnar Grant snúinn aftur
Arnar Grant hefur hafið störf sem einkaþjálfari hjá líkamsræktarstöðinni Pumping Iron. Verktakasamningi hans hjá World Class var sagt upp á seinasta ári eftir að Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson kærðu Arnar og Vítalíu Lazarevu til héraðssaksóknara fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífsins. Þau hafa bæði hafnað ásökununum.

Hefur ekki borðað í fjóra daga og líður bara vel
„Ég er ótrúlega góður,“ segir Sigurður Örn Ragnarsson sem fastað hefur síðan í kvöldmatnum á mánudag. Borðar hann ekkert og drekkur eingöngu vatn. Hann ræddi uppátækið við Ósk Gunnars á FM957 fyrr í dag.

Sérstakar kröfur stjarnanna: Hvolpar, bóluplast og gervilimur
Þegar heimsfrægar stjörnur koma fram gera þær oftar en ekki kröfu um að ákveðnir hlutir séu til staðar í búningsherbergi þeirra. Þetta getur til dæmis verið ákveðinn matur, nóg af vatni eða einhver sérstakur aðbúnaður sem óskað er eftir. Sumar kröfur eru þó athyglisverðari en aðrar. Þeir Rikki G og Egill Ploder fóru yfir málið í Brennslunni.

„Ég er að reyna að samgleðjast en ég öfunda þig bara svo mikið“
Tólfta þáttaröðin af Heimsókn fer í loftið þann 11. janúar. Í nýju sýnishorni má sjá brot af þeim heimilum sem Sindri Sindrason heimsækir að þessu sinni.

Kim Kardashian vekur athygli í Bjarkarbol
Kim Kardashian er greinilega mikill Bjarkar aðdáandi eins og svo margir, því á dögunum klæddist raunveruleikastjarnan bol með nafni íslensku tónlistarkonunnar.

Sér sjálfan sig í öðru ljósi eftir að myndin kom út
„Mér skilst að menn hafi orðið mjög hrifnir af mér svo ég fór að líta á mig öðrum augum en áður. Ég hef aldrei haft mikið álit á mér,“ segir Árni Jón Árnason, sem vann hug og hjörtu þjóðarinnar í heimildarmyndinni Velkominn Árni.

Sjötíu kílóum léttari en með fleiri líkamskomplexa
Fyrir tveimur árum hitti Sindri Sindrason Önnu Sjöfn Skagfjörð 37 ára þriggja barna móður sem vildi gera eitthvað í sínum málum áður en það yrði of seint. Í dag hefur hún misst 72 kíló og elskar að gera hluti sem hún tók algjörlega fyrir að gera eins og að ganga fjöll.

Umdeildur leigusali selur fjögur hundruð fermetra höll á Arnarnesinu
Við Haukanes í Garðabæ stendur sannkölluð höll sem nú er til sölu fyrir rétt verð. Um er að ræða hvorki meira né minna en fjögur hundruð fermetra einbýli með einstöku sjávarútsýni yfir Arnarnesvog.

Þrjár þrettándabrennur á höfuðborgarsvæðinu
Tvær þrettándabrennur verða haldnar í Reykjavík í dag í tilefni af þrettándanum í dag. Brenna verður einnig í Mosfellsbæ og þá verður sérstök Þrettándagleði í Hafnarfirði.

Nýársspá Siggu Kling er komin á Vísi
Stjörnuspá Siggu Kling fyrir nýja árið er lent á Vísi. Sigga Kling birtir stjörnuspá fyrir öll stjörnumerkin fyrsta föstudag hvers mánaðar.

Nýársspá Siggu Kling - Meyjan
Elsku Meyjan mín, þetta blessaða ár byrjar þannig að þú ættir að finna út leiðir til þess að hvíla þig eins mikið og þú getur, eða að skoppa út úr orkunni sem þú ert í og að fara í ferðalag.

Nýársspá Siggu Kling - Ljónið
Elsku Ljónið mitt, það er búið að vera fjörugt hjá þér. Einn dagur virðist vera í svo góðu lagi en annar ekki svo fínn. Lífið byggist upp á yin og yang og hið jákvæða og hið neikvæða helst yfirleitt í hendur.

Nýársspá Siggu Kling - Vatnsberinn
Elsku Vatnsberinn minn, nýja árið heilsar þér með töluverðri spennu og stressi, þó að þú vitir kannski ekki alveg sjálfur hvaðan þetta stress kemur.

Nýársspá Siggu Kling - Tvíburi
Elsku Tvíburinn minn, þú gætir byrjað þetta ár á þessari dásamlegu hvatvísi þinni. Þú gætir farið svolítið út og suður með hugarfarið og ekki vitað alveg í hvaða átt þú vilt fara.

Nýársspá Siggu Kling - Bogmaðurinn
Elsku Bogmaðurinn minn, það hefur verið rysjótt hjá þér og það er kannski vegna þess að ár drekans er að enda og ár kanínunnar er að byrja í kringum þann 20. janúar.

Nýársspá Siggu Kling - Nautið
Elsku tilfinninga og stórhugaða Nautið mitt. Þú þarft að slíta allt af þér sem bindur þig fasta. Hvort sem það tengir þig við fortíðina, ástarsorg eða hvað sem það nú er.

Nýársspá Siggu Kling - Sporðdrekinn
Elsku Sporðdrekinn minn, þú ert að fara inn í ár sem lætur þig sjá og finna þá verðleika sem heimurinn vill gefa þér og þú munt skynja betur þína bestu eiginleika.

Nýársspá Siggu Kling - Vogin
Elsku Vogin mín, það er allt að fara á fulla ferð á þessu herrans ári 2023. Það er eins og þú sért í sérstökum tengslum við hið Almáttuga, máttinn í öllu. Þú þarft þar af leiðandi að fara varlega í því hvers þú óskar þér og hvað þú þráir.

Nýársspá Siggu Kling - Hrútur
Elsku Hrúturinn minn, þetta verður mjög merkilegt ár og verður svo sannarlega þinn tími. Janúar mánuður er svolítið kaldur. Þú gætir fundið fyrir kvíða eða depurð og þér gæti fundist þú alveg vera tómur í hjartastöðinni.

Nýársspá Siggu Kling - Steingeitin
Elsku Steingeitin mín, þetta ár færir þér margblessuð tækifæri. Þú munt strax sjá að eitt og eitt er að detta inn. Taktu meiri áhættu því það er ekki hægt að segja að þú sért í raun neinn áhættufíkill.

Nýársspá Siggu Kling - Krabbinn
Elsku Krabbinn minn, þú ert ekki alveg búinn að sjá það fyrir þér hvernig þú ætlir að púsla þessu ári saman. Það er lukka yfir þér í byrjunarkortinu, svo bregður þér við ýmislegt þann 15. janúar.

Nýársspá Siggu Kling - Fiskarnir
Elsku Fiskurinn minn, þetta ár verður eitthvað svo öðruvísi en undanfarin ár. Þú lærir að standa með sjálfum þér og að segja þína skoðun fallega svo að aðrir hlusti á. Þú hreinsar frá þér þau leiðindi eða ofbeldi sem aðrir hafa sýnt þér.

Leikkona úr Nágrönnum látin
Bresk-ástralska leikkonan Joan Sydney, sem lék lengi í áströlsku sápuóperunni Nágrönnum, er látin, 83 ára að aldri.

Kraftlyftingakona og fótboltakappi eiga von á barni
Arnhildur Anna Árnadóttir kraftlyftingakona og Alfreð Már Hjaltalín, fyrrverandi knattspyrnumaður og heilsunuddari, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þau greina frá tíðindunum á samfélagsmiðlum.

Gjörbreytt útlit Paulu Abdul vekur upp spurningar
Nýjar myndir af Paulu Abdul vekja upp miklar vangaveltur á meðal aðdáenda. Söngkonan og fyrrverandi Idol dómarinn þykir hafa yngst um fimmtíu ár á einni nóttu.

Spennandi 2023: Eurovision í Liverpool, kóngur krýndur í London og miklu skárra jólafrí
Karl III verður krýndur konungur, Indland mun taka fram úr Kína sem fjölmennasta ríki heims og kosningar eru fyrirhugaðar víða um heim.

Gísli Örn óþekkjanlegur eftir meðferð hjá Rögnu Fossberg
Leikarinn Gísli Örn Garðarsson er óþekkjanlegur í nýrri auglýsingu fyrir Happdrætti Háskóla Íslands. Það er förðunarmeistarinn Ragna Fossberg sem er snillingurinn á bak við gervið.