

Körfuboltamaðurinn Jason Gigliotti er genginn í raðir KR og mun klára tímabilið með liðinu.
Kevin Durant, leikmaður Phoenix Suns, er ekki hrifinn af nýju fyrirkomulagi Stjörnuleiksins í NBA svo vægt sé til orða kveðið.
Nýr leikmaður Álftnesinga í Bónus deild karla í körfubolta hefur spilað yfir sjötíu leiki í NBA-deildinni. Hann var valinn númer 40 í nýliðavalinu af Sacramento Kings árið 2019.
Hver einasti leikmaður Milwaukee Bucks er rúmum 70 milljónum króna ríkari eftir að liðið vann Oklahoma City Thunder af öryggi í úrslitaleik NBA-deildarbikarsins í nótt, 97-81.
Lettneski körfuboltamaðurinn Jānis Timma er látinn en hann var aðeins 32 ára gamall.
Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari Aþenu, er meðvitaður um eigið ágæti en það kom vel í ljós í viðtali við hann eftir tap á móti toppliði Hauka í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld.
Þór Akureyri hélt sigurgöngu sinni áfram á heimavelli sínum í Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld.
Haukakonur endurheimtu toppsæti Bónus deildar kvenna í körfubolta með þrettán stiga útisigri á Aþenu, 77-64, í Austurbergi í kvöld.
Kvennalið Tindastóls fer inn í jólafríið á miklu skriði en liðið vann sinn fjórða deildarsigur í röð í kvöld.
Sérstakur jólaþáttur Körfuboltakvölds Extra verður á dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld.
Dennis Schröder er nýjasti leikmaður Golden State Warriors í NBA deildinni í körfubolta en kappinn gekk frá samningi við liðið um helgina.
Justin James er nýr leikmaður Álftnesinga í Bónus deild karla í körfubolta en um leið hefur félagið látið annan Bandaríkjamenn fara.
Friðrik Ingi Rúnarsson mun ekki klára tímabilið með Íslandsmeisturum Keflavíkur í Bónus deild kvenna í körfubolta.
Njarðvík, topplið Bónus deildar kvenna í körfubolta, hefur orðið fyrir blóðtöku. Næststigahæsti leikmaður liðsins er farin til náms erlendis.
„Líf okkar er á Íslandi,“ segir körfuboltaþjálfarinn Borche Ilievski sem ætlaði að stoppa stutt við á Íslandi með fjölskyldu sinni en nú, átján árum síðar, hafa þau fest rætur hér á landi.
Farið var yfir tilþrif 10. umferðar Bónus-deildar karla í þættinum Bónus Körfuboltakvöld á föstudaginn. Dómari í leik Hattar og ÍR átti þar toppsætið.
Njarðvík tók á móti Keflavík í Bónus deild kvenna í IceMar-höllinni í kvöld. Njarðvík spilaði fanta góðan körfubolta í kvöld og sóttu annan sigurinn á stuttum tíma gegn Keflavík og lögðu þær með tíu stiga mun 98-88.
Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason lagði langmest að mörkum fyrir lið Bilbao Basket í dag en liðið varð að sætta sig við tap gegn Lleida á útivelli, 84-66.
Lokaþáttur Kanans fer í loftið á Stöð 2 og Stöð 2 Sport í kvöld. Meðal viðmælenda í kvöld er Keyshawn Woods, fyrrum leikmaður Tindastóls sem lék með liðinu þegar yfir 60 ára bið Skagfirðinga eftir Íslandsmeistaratitlinum lauk.
LeBron James er kominn í leyfi hjá liði Los Angeles Lakers af persónulegum ástæðum. Ummæli James um margfrægar veislur rapparans Diddy hafa verið rifjuð upp í tengslum við fjarveru hans.
Óhætt er að segja að Jón Halldór Eðvaldsson taki ekki undir þá gagnrýni sem sett hefur verið fram á mikinn fjölda erlendra leikmanna í efstu deildum Íslands í körfubolta. Hann kveðst hundleiður á umræðu um þessi mál.
Grindvíkingar komu sér aftur á beinu brautina í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið lagði Íslandsmeistara Vals 97-90. Liðin mættust einnig í bikarnum á sunnudag og Grindvíkingar höfðu harma að hefna í kvöld.
Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, segir að stóru augnablikin hafi skilið á milli þegar hans menn máttu þola ellefu stiga tap gegn Þór í Þorlákshöfn í kvöld.
Lárus Jónsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, segist ekki vera hissa á því að það hafi reynst hans mönnum erfitt verkefni að landa ellefu stiga sigri gegn Álftanesi í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld.
Grindavíkingar unnu sjö stiga sigur á Val, 97-90, í lokaleik tíundu umferðar Bónus deildar karla í körfubolta. Grindvíkingar virtust ætla að vinna öruggan sigur en þeir hleyptu Valsmönnum aftur inn í leikinn í fjórða leikhlutanum. Grindavíkurliðið stóðst þó atlögu Íslandsmeistaranna og sá til þess að Valsmenn sitja áfram í fallsæti.
Nikolas Tomsick var stigahæsti maður vallarins er Þór Þorlákshöfn vann sterkan ellefu stiga sigur gegn Álftanesi í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld.
Bragi Hinrik Magnússon er í hópi þeirra sem hafa áhyggjur af stöðu íslenska leikmanna í Bónus deild karla í körfubolta.
Þór Þorlákshöfn vann sterkan ellefu stiga sigur er liðið tók á móti Álftanesi í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld, 89-78.
Sonur LeBrons James, Bronny, skoraði þrjátíu stig þegar South Bay Lakers tapaði fyrir Valley Suns, 106-100, í G-deildinni í körfubolta.
Í tilraun sinni til að hleypa fersku lífi í karlalið ÍR í körfubolta ákváðu forráðamenn félagsins að ráðast í þjálfarabreytingar og ráða inn gamlan vin, Borche Ilievski. Hann hefur aðeins eitt markmið í huga. Að koma ÍR aftur í úrslitaeinvígi efstu deildar.