Körfubolti

Lakers og Milwaukee komin áfram í næstu umferð
Los Angeles Lakers og Milwaukee Bucks eru komin áfram í aðra umferð í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Staðfesta að NBA byrjar aftur á morgun
NBA-deildin hefur verið staðfest að boltinn fari aftur að rúlla á morgun, laugardag.

Trump gagnrýndi NBA: „Þetta eru eins og stjórnmálasamtök“
Leikmenn NBA-deildarinnar hafa fengið mikið hrós fyrir að láta til sín taka í baráttunni gegn kynþáttamisrétti en Bandaríkjaforseti er ekki í þeim hópi.

Michael Jordan mögulega bjargvættur NBA úrslitakeppninnar í ár
Michael Jordan er sagður eiga stóran þátt í því að það tókst að tala til mjög ósátta leikmenn NBA-deildarinnar og fá þá til að hætta við að aflýsa úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Segir úrslitakeppni NBA halda áfram um helgina
Körfuboltamenn NBA-liðanna hafa ákveðið að byrja aftur að spila í úrslitakeppninni sem hlé varð á í gær þegar þremur leikjum var frestað vegna mótmæla leikmanna.

Gekk úr myndveri til að sýna leikmönnum stuðning
Einn vinsælasti NBA-sérfræðingur Bandaríkjanna gekk úr myndveri í gær til að sýna leikmönnum NBA-deildarinnar stuðning sinn í verki.

LeBron James og Kawhi Leonard töluðu um að klára ekki úrslitakeppnina
Leikmenn Los Angeles liðanna í NBA-deildinni fóru fyrir því að mótmæli óréttlætinu í Bandaríkjunum með því að neita að spila úrslitakeppnina sem var komin á fulla ferð.

Flóðbylgja frestana í bandarísku íþróttalífi eftir ákvörðun Bucks í gær
Íþróttamenn og íþróttalið í Bandaríkjunum stóðu með Milwaukee Bucks liðinu í nótt og það var því ekkert af þeim leikjum sem áttu að fara fram í öðrum íþróttagreinum í landinu.

Giannis í hóp með Jordan, Olajuwon, Garnett og Robinson
Giannis Antetokounmpo er fyrsti leikmaður Milwaukee Bucks í 36 ár sem er valinn varnarmaður ársins í NBA-deildinni í körfubolta.

Öllum leikjum kvöldsins frestað
Öllum þremur leikjum kvöldsins sem áttu að fara fram í úrslitakeppni NBA körfuboltanum hefur nú verið frestað.

Milwaukee mætti ekki til leiks í mótmælaskyni
Ekkert verður úr fimmta leik Milwaukee Bucks og Orlando Magic í úrslitakeppni NBA-deildarinnar en leikmenn Milwaukee ætla ekki að spila leikinn vegna réttindabaráttu svarta.

Doc Rivers: Trump og hans fólk tala um ótta en það erum við sem eru drepin
Doc Rivers, þjálfari Los Angeles Clippers, hélt hjartnæma og áhrifamikla einræðu um ástandið í Bandaríkjunum eftir sigur liðsins í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt.

10,7 milljónir söfnuðust fyrir Berglindi: „Mun aldrei gleymast“
Söfnunin fyrir körfuknattleikskonuna Berglindi Gunnarsdóttur tókst frábærlega en hápunktur hennar var mjög vel heppnuð hlaupahátíð í bænum hennar Stykkishólmi um síðustu helgi.

Morris neitar því að hafa reynt að meiða Luka Doncic í nótt
Umdeilt atvik átti sér stað í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt þegar leikmaður Los Angeles Clippers steig á ökkla Luka Doncic. Var þetta viljandi eða ekki?

Hetjudáðir Jamal Murray héldu lífi í Denver og Paul George vaknaði til lífsins
Frábær frammistaða Jamal Murray kom öðru fremur í veg fyrir að Utah Jazz kæmist áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt en Los Angeles Clippers er aftur komið yfir í einvígi sínu eftir stórsigur á Dallas Mavericks.

Gata í miðbæ Los Angeles borgar skírð eftir Kobe Bryant
Það er við hæfi að hér eftir þurfi fólk að keyra veginn hans Kobe Bryant til þess að komast að Staples Center.

LeBron eftir leikinn í nótt: Við svarta fólkið í Bandaríkjunum erum skíthrædd
LeBron James talaði um stöðu síns fólks í Bandaríkjunum og komandi kosningar í nóvember í viðtali eftir stórleik sinn og Lakers liðsins í nótt.

LeBron James og Lakers menn frábærir á Kobe Bryant deginum
Leikmenn Los Angeles Lakers heiðruðu Kobe Bryant í nótt með því að yfirspila Portland Trail Blazers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og komast í 3-1 í einvígi liðanna.

Austin Magnús fer frá Hlíðarenda á Ásvelli
Haukar hafa fengið Austin Magnús Bracey til liðs við sig en hann kemur frá Val.

Paul George sá fyrsti í 60 ár
Önnur af stórstjörnum Los Angeles Clippers hefur alls ekki fundið taktinn gegn Dallas Mavericks í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.

Luka Doncic kórónaði ótrúlegan leik sinn með geggjaðri sigurkörfu á flautunni
Luka Doncic átti enn einn stórleikinn í úrslitakeppni NBA í nótt þegar Dallas jafnaði sitt einvígi, Utah komst í lykilstöðu og bæði Boston Celtics og meistarar Toronto Raptors komust áfram í næstu umferð.

Aðeins einn unnið fleiri leiki í úrslitakeppni en LeBron
LeBron James er búinn finna taktinn með Los Angeles Lakers sem tapaði óvænt fyrir Portland Trail Blazers í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Lakers vann naumlega | Thunder hélt einvíginu á lífi | Myndbönd
Los Angeles Lakers, Milwaukee Bucks, Miami Heat og Oklahoma City Thunder unnu öll í úrslitekeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt.

Raptors og Celtics svo gott sem komin áfram | Jazz og Clipperz í forystu | Myndbönd
Alls fóru fjórir leikir fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Toronto Raptors og Boston Celtics eru komin 3-0 yfir í einvígum sínum og þurfa aðeins einn sigur til viðbótar. Utajh Jazz og Los Angeles Clippers eru 2-1 yfir.

Einmana á leið til Íslands
Einn nýrra leikmanna Njarðvíkur í Domino´s deild karla er á leið til Íslands og birti áhugaverða mynd úr flugvélinni þar sem hann virðist vera Palli einn í heiminum.

Loksins vann Lakers leik í úrslitakeppninni
Los Angeles Lakers vann sinn fyrsta leik í úrslitakeppni síðan árið 2012 er þeir jöfnuðu metin gegn Portland Blazers í 1. umferðinni.

Doncic og bekkurinn sá til þess að Dallas jafnaði gegn Clippers
Luka Doncic gerði 28 stig er Dallas jafnaði metin í 1-1 gegn LA Clippers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Lokatölur 127-114.

„Hittum ekki úr skotunum okkar“ | Fyrsta skipti síðan 2003 sem bæði toppliðin tapa
Ástæðan fyrir óvæntu tapi Los Angeles Lakers gegn Portland Trail Blazers í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta var einföld að mati LeBron James.

Sagði það ekki góða tilfinningu að vita að hún væri lömuð fyrir neðan axlir
Berglind Gunnarsdóttir, landsliðskona í körfubolta, ræddi við Svövu í Sportpakka kvöldsins um slysið sem hún lenti í upphafi árs. Skyldi það hana eftir lamaða fyrir neðan axlir.

Nýliðarnir fá tvo leikmenn fyrir komandi átök
Körfuknattleiksdeild Fjölnis tilkynnti í dag að kvennalið félagsins hefði samið við tvo nýja leikmenn sem munu leika með liðinu í Dominos-deild kvenna á næsta tímabili.